Fréttablaðið - 29.11.2012, Side 72
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING | 52
Tyler Perry reynir að fylla í spor
Morgans Freeman og fer með hlut-
verk Alex Cross í samnefndri mynd
sem kemur í kvikmyndahús um
helgina. Freeman lék Cross í þeim
tveimur myndum sem þegar hafa
verið gerðar um hann, Along Came
a Spider og Kiss the Girls, en allar
eru myndirnar byggðar á metsölu-
bókum James Patterson. Myndinni
er leikstýrt af Rob Cohen sem á
meðal annars myndina The Fast and
the Furious á ferlinum, en það var
fyrsta myndin í seríunni endalausu.
Lost-stjarnan Matthew Fox, sem
margir muna eftir úr fjölskylduþátt-
unum Party of Five, bregður sér hér
í alveg nýtt hlutverk og leikur sturl-
aða raðmorðingjann Picasso. Sá sér-
hæfir sig í pyntingum og nýtur þess
að kvelja fórnarlömb sín eins mikið
og hann mögulega getur. Cross og
félagi hans Tommy Kane, leikinn af
Edward Burns, leggja allt í sölurnar
til að hafa hendur í hári morðingj-
ans og áður en langt um líður er bar-
áttan orðin heldur betur persónuleg.
Spennutryllirinn Nobels Teste-
mente er einnig frumsýndur um
helgina og er byggður á metsölubók
Lizu Marklund. Myndin fjallar um
blaðamanninn Anniku Bengtzon
sem sérhæfir sig í umfjöllun um
glæpamál fyrir sænskt dagblað.
Þegar hún lendir í skotárás þar sem
tvær manneskjur týna lífinu fær
hún ekki að fjalla um það sjálf, ver-
andi vitni í því. Fljótlega gerir hún
sér þó grein fyrir að maðkur er í
mysunni og leggur hún sjálfa sig í
mikla hættu til að komast til botns í
málinu. - trs
SÉRSTAKI
R
GESTIR
Dísa Jakob
s
Kristjana S
tefáns
Krummi Bjö
rgvins
Góa og Fjarðarkaup
kynna með stolti
Við komum með jólin til þín
E
N
N
E
M
M
E
N
N
E
M
M
N
/
S
IA
/
S
IA
•
N
M
5
•
N
47
58
47
58
Miðasala á Miði.is og í síma 540 9800
www.jolagestir.is
Þökkum frábærar viðtökur!
Miðasala á aukatónleika
í fullum gangi
Cate Blanchett er í viðræðum við
Disney um að fara með hlutverk í
endurgerð á ævintýrinu um Ösku-
busku. Blanchett mundi þá fara
með hlutverk vondu stjúpunnar.
Mark Romanek mun leikstýra
myndinni.
Disney hefur þegar látið endur-
gera Alice in Wonderland og tökur
á Maleficent, kvikmynd um illu
nornina úr ævintýrinu um Þyrni-
rós, eru nú í gangi. Angelina Jolie
fer með hlutverk Maleficent.
Handritshöfundurinn Aline
Brosh McKenna skrifaði uppkast
að handriti Öskubusku árið 2010 en
Chris Weitz hefur nú tekið við verk-
inu sem ber vinnuheitið Untitled
Cinderella Story. Blanchett hefur
verið upptekin við gerð þríleiksins
um Hobbitann þar sem hún bregð-
ur sér aftur í hlutverk álfadrottn-
ingarinnar Galadriel.
Í hlutverk stjúpunnar
Cate Blanchett er í viðræðum við Disney. Gæti farið
með hlutverk vondu stjúpunnar í Öskubusku.
ÆVINTÝRALEG Cate Blanchett fer úr
einu ævintýri í annað. Hún gæti farið
með hlutverk í Öskubusku.
NORDICPHOTOS/GETTY
150sinn sem Brad Pitt og Andrew Dominik leiða
saman hesta sína.2. 4
mánuðir fóru í tökur
á Killing Them Soft ly.
mínútur var
upphafl eg
lengd
myndarinnar.
Kvikmyndin Killing Them Softly
var frumsýnd í gær. Myndin er
byggð á skáldsögu George V.
Higgins og er þriðja kvikmynd
ástralska leikstjórans Andrew
Dominik.
Killing Them Softly segir frá
handrukkaranum Jackie Cogan,
leiknum af Brad Pitt, sem er feng-
inn til að koma á reglu í glæpa-
samfélaginu eftir að tveir smá-
krimmar ræna spilakvöld sem
skipulagt er af glæpamönnum.
Myndin þykir minna um margt á
Pulp Fiction og Lock, Stock and
Two Smoking Barrels; samtölin
eru löng og sóðaleg, umhverfið
drungalegt og myndatakan listi-
lega gerð. Leikaralistinn er lang-
ur og stjörnum prýddur og með
helstu hlutverk fara áður nefnd-
ur Brad Pitt, Scoot McNairy, Ben
Mendelsohn, Ray Liotta, Richard
Jenkins, James Gandolfini, Vin-
cent Curatola, Max Casella og
Sam Shepard. Aðeins eitt kven-
mannsnafn er á leikaralista Imdb.
com og er það nafn Linöru Wash-
ington sem fær þann heiður að
leika nafnlausa vændiskonu sem
persóna Gandolfini heldur í háveg-
um.
Dominik segir myndina vera
ádeilu á fjármálahrunið í Banda-
ríkjunum og líkir fjármála-
mönnum Wall Street við ótínda
glæpamenn sem byggja veldi sín
á svikum og illa fengnu fé. Ekk-
ert pláss er fyrir konur í þessum
heimi, enda ræður „karlmennsk-
an“ ríkjum, þó hún risti grunnt
þegar á reynir.
Fyrsta kvikmynd Andrew Dom-
inik var Chopper sem kom út árið
2000 og skartaði Eric Bana í hlut-
verki glæpamannsins Chopper.
Myndin sló í gegn og þótti Bana
framúrskarandi í hlutverki sínu.
Næsta kvikmynd Dominik var
vestrinn The Assassination of
Jesse James by the Coward Robert
Ford sem kom út árið 2007. Brad
Pitt fór með hlutverk útlagans
Jesse James og lék Casey Affleck
banamann hans, Robert Ford. Pitt
var mikill aðdáandi Chopper og
hafði sjálfur samband við Dom-
inik þegar hann fékk veður af The
Assassination of Jesse James og
óskaði eftir hlutverki. Með mann
eins og Pitt í aðalhlutverki reynd-
ist Dominik auðvelt að fá Warner
Bros. til að fjármagna myndina.
Killing Them Softly fær nánast
fullt hús stiga á vefsíðunni Rot-
tentomatoes.com. Gagnrýnendur
halda vart vatni og gefa henni 90
prósent en áhorfendur gefa mynd-
inni 98 prósent.
Hljóðlaus manndráp
Killing Them Soft ly er þriðja kvikmynd Andrew Dominik. Brad Pitt leikur
handrukkara sem fenginn er til að koma röð og reglu á undirheima.
ÓTÍNDIR GLÆPAMENN Scoot McNairy og Ben Mendelsohn leika smákrimma sem
gerast sekir um að ræna aðra glæpamenn í kvikmyndinni Killing Them Softly.Kvikmyndin Zardoz eftir John
Boorman verður sýnd á Svörtum
sunnudegi í Bíói Paradís. Myndin
er frá árinu 1974 og skartar Sean
Connery í aðalhlutverki.
John Boorman hafði nýlokið við
kvikmyndina Deliverance þegar
hann hófst handa við Zardoz.
Sagan gerist árið 2293 og hefur
heimurinn farið í gegnum miklar
breytingar frá okkar tíma. Con-
nery leikur hlutverk hermannsins
Zed sem lendir í stórfurðulegum
ævintýrum.
Zardoz varð mjög umdeild og
hlaut litla aðsókn þegar hún var
frumsýnd. Í seinni tíð hefur hún
komið sér á stall ásamt öðrum
„költ“ myndum og er í dag talin
af mörgum ein besta mynd Boor-
mans.
Sýningar hefjast klukkan 20.
Furðuleg framtíð
Zardoz verður sýnd í Bíói Paradís á sunnudagskvöld.
FRAMTÍÐARSÝN Kvikmyndin Zardoz
skartar Sean Connery í aðalhlutverki.
Hún er sýnd á svörtum sunnudegi.
NORDICPHOTOS/GETTY
GEÐSJÚKUR Leikarinn góðkunni Matthew Fox bregður sér í algjörlega nýtt hlutverk
í myndinni Alex Cross. Þar leikur hann geðsjúka raðmorðingjann Picasso sem nýtur
þess að kvelja fórnalömb sín eins mikið og hann mögulega getur.
Morðæði í bíóhúsum um helgina
Tvær morðsögur eru frumsýndar um helgina sem báðar byggja á metsölubókum