Fréttablaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 80
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| SPORT | 60
HANDBOLTI Lífið hjá hinum 32 ára
gamla Hannesi Jóni Jónssyni tók
óvænta stefnu fyrir um sex vikum.
Þá var hann greindur með krabba-
mein en illkynja æxli fannst í
þvagblöðrunni. Hannes var settur
í aðgerð daginn eftir þar sem þrjú
illkynja æxli voru fjarlægð.
Hann átti von á því að fara í létta
skoðun í gær en af því varð ekki.
Hann neyðist til þess að leggjast
undir hnífinn á nýjan leik.
„Þeir skera aftur á sama stað.
Taka ný sýni sem verða síðan
send í ræktun. Ég hélt þetta yrði
létt skoðun. Svo myndi ég gefa háa
fimmu og fara heim en svo var nú
aldeilis ekki,“ sagði Hannes við
Fréttablaðið í gær en hann þarf
að liggja á spítalanum fram yfir
helgi.
Kominn aftur á byrjunarreit
„Ég fæ svo vonandi einhver góð
tíðindi úr þessari ræktun. Ég er
samt aftur kominn á byrjunar-
reit hvað varðar handboltann. Ég
var að búa mig undir að spila um
helgina. Ég verð að taka þessu.
Byrja svo að æfa upp á nýtt í næsta
mánuði og reyna að vera tilbúinn
í slaginn eftir áramót. Það er mitt
markmið eins og staðan er núna.“
Leikmaðurinn hefur verið
ágætur til heilsunnar síðan hann
gekkst undir aðgerðina fyrir um
sex vikum.
„Heilsan hefur verið merkilega
góð. Ég fór hægt af stað en var
kominn í ræktina um viku eftir
aðgerðina. Fór eðlilega bara hægt
af stað með því að labba á bretti
og hanga í gufu. Það hefur svo
verið fínn stígandi í þessu. Ég hef
ekkert æft með strákunum en hef
verið að hlaupa síðustu vikuna. Ég
tók þrjá kílómetra á ellefu mínút-
um í morgun [í gær] og er í þrusu-
standi,“ sagði Hannes, en að lenda
í slíku áfalli tekur eðlilega einnig
á andlega líðan manna.
Set kassann út
„Þetta var mikið sjokk að sjálf-
sögðu. Þetta var erfitt. Það kemur
sér vel að maður á góða að. Á end-
anum er þetta samt spurning um
að setja kassann út og bera sig vel.
Ég held að maður sé aldrei undir
svona áfall búinn. Ég held að eng-
inn geti sagt það með góðri sam-
visku að hann hafi verið búinn
undir svona fréttir,“ sagði Hannes
en hann átti kannski síst von á því
að lenda í slíku þar sem hann er
atvinnumaður í íþróttum og lífs-
stílinn í samræmi við það.
„Ég er ungur, hraustur og í góðu
formi og maður hefur litið á þetta
sem gömlu-karla sjúkdóm hingað
til. Ég reyni að ganga út frá því
besta og reyni að skipuleggja mig
í samræmi við það.“
Hvað svo sem kemur úr nýj-
ustu rannsóknum liggur fyrir að
Hannes verður alltaf undir eftir-
liti næstu fimm árin.
„Þetta er risastórt verkefni sem
er lagt á mig og alla fjölskylduna.
Ég er samt jákvæður og ef ég
tækla þetta ekki þá tæklar þetta
enginn,“ sagði Hannes Jón Jónsson
ákveðinn. henry@frettabladid.is
Þetta er risastórt
verkefni sem er lagt á
mig og fjölskylduna. Ef
að ég tækla þetta ekki
þá tæklar þetta enginn.
Hannes Jón Jónsson, handboltakappi
visir.is
Nánari upplýsingar um leikina
má fi nna á Vísi.
N1-DEILD KARLA
ÍR 28
AKUREYRI 26
ÍR - Mörk (skot): Sturla Ásgeirsson 7/3 (10/5),
Sigurjón Friðbjörn Björnsson 5 (6), Ingimundur
Ingimundarson 5 (7), Jón Heiðar Gunnarsson 4
(5), Davíð Georgsson 3/1 (5/2), Guðni Már Krist-
insson 2 (2), Jónatan Vignisson 2 (4), Björgvin
Hólmgeirsson (4),
Varin skot: Kristófer Fannar Guðmundsson 8
(30/2, 27%), Hermann Þór Marinósson 3 (7, 43%),
Akureyri - Mörk (skot): Bjarni Fritzsson 9/2
(11/2), Guðmundur H. Helgason 8 (11), Bergvin
Þór Gíslason 5 (6), Geir Guðmundsson 2 (7),
Hreinn Þór Hauksson 1 (1), Heimir Örn Árnason 1
(2), Andri Snær Stefánsson (1),
Varin skot: Jovan Kukobat 14/2 (41/5, 34%),
Tomas Olason 1/1 (2/2, 50%),
VALUR 30
AFTURELDING 30
Valur - Mörk (skot): Hjálmar Þór Arnarson 7 (8),
Valdimar Fannar Þórsson 6/1 (11/2), Finnur Ingi
Stefánsson 6 (14), Þorgrímur Smári Ólafsson 4 (9),
Atli Már Báruson 3 (4), Gunnar Kristinn Þórsson 2
(2), Sveinn Aron Sveinsson 2 (2), Vignir Stefánsson
(1), Adam Seferovic (1),
Varin skot: Hlynur Morthens 10 (30/1, 33%),
Lárus Helgi Ólafsson 5 (15/3, 33%),
Afturelding - Mörk (skot): Jóhann Jóhannsson
8/4 (13/4), Sverrir Hermannsson 6 (9), Hilmar
Stefánsson 5 (6), Örn Ingi Bjarkason 5 (11), Pétur
Júníusson 4 (7), Benedikt R. Kristinsson 2 (3),
Hrafn Ingvarsson (1),
Varin skot: Davíð Svansson 12/1 (42/2, 29%),
DOMINOS-DEILD KVENNA
GRINDAVÍK 76
SNÆFELL 83
Grindavík: Crystal Smith 37 Petrúnella Skúladóttir
17, Ingibjörg Ellertsdóttir 8, Helga Hallgrímsdóttir
6, Harpa Rakel Hallgrímsdóttir 6/10 fráköst.
Snæfell: Hildur Sigurðardóttir 28, Kieraah Marlow
22, Hildur Björg Kjartansdóttir 14, Alda Leif Jóns-
dóttir 8, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 6.
KEFLAVÍK 84
NJARÐVÍK 54
Keflavík: Birna Valgarðsdóttir 18, Sara Hinriks-
dóttir 14, Ingunn Kristínard. 14, Jessica Jenkins
12, Pálína Gunnlaugsd. 9, Bryndís Guðmund. 8.
Njarðvík: Lele Hardy 19/19 fráköst, Salbjörg Sæv-
arsdóttir 12, Emelía Ósk Grétarsdóttir 6, Eyrún Líf
Sigurðardóttir 6, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 5
HAUKAR 73
VALUR 56
Haukar: Siarre Evans 23/20 fráköst, Margrét
Hálfdanardóttir 20, Gunnhildur Gunnarsdóttir 10,
Sólrún Gísladóttir 5, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 4.
Valur: Guðbjörg Sverrisdóttir 15, Alberta Auguste
10, Ragna Brynjarsdóttir 10, Unnur Ásgeirsdóttir
6, Kristrún Sigurjónsd. 6, Ragnheiður Benónísd. 4
KR 74
FJÖLNIR 56
KR: Björg Guðrún Einarsdóttir 14, Sigrún
Ámundadóttir 13, Patechia Hartman 13, Helga
Einarsdóttir 8, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 7.
Fjölnir: Britney Jones 15, Bergdís Ragnarsdóttir
11, Fanney Lind Guðmundsdóttir 8, Eva María
Emilsdóttir 7, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 6.
ÞÝSKI HANDBOLTINN
RHEIN-NECKAR LÖWEN 17
KIEL 28
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk
fyrir Kiel og Alexander Petersson tvö fyrir
Löwen.
FLENSBURG 37
TV NEUHAUSEN 26
Ólafur Gústafsson skoraði tvö mörk fyrir Flens.
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
SOUTHAMPTON 1
NORWICH 1
1-0 Rickie Lambert (32.), 1-1 Robert Snodgrass
(45.).
STOKE CITY 2
NEWCASTLE 1
0-1 Papiss Demba Cisse (47.), 1-1 Jon Walters
(80.), 2-1 Cameron Jerome (85.).
SWANSEA 3
WBA 1
1-0 Michu (9.), 2-0 Wayne Routledge (11.), 3-0
Wayne Routledge (39.), 3-1 Romelo Lukaku
(45.+3).
TOTTENHAM 2
LIVERPOOL 1
1-0 Aaron Lennon (7.), 2-0 Gareth Bale (16.), 2-1
Gareth Bale, sjm (72.).
CHELSEA 0
FULHAM 0
EVERTON 1
ARSENAL 1
0-1 Theo Walcott (1.), 1-1 Marouane Fellaini
(28.)
MAN. UTD 1
WEST HAM 0
1-0 Robin van Persie (1.).
WIGAN 0
MAN. CITY 2
0-1 Mario Balotelli (69.), 0-2 James Milner (71.).
Enginn er búinn
undir svona áfall
Handknattleikskappinn Hannes Jón Jónsson stefndi að því að spila handbolta
um næstu helgi. Það mun ekki ganga upp því hann þarf að leggjast aft ur undir
hnífi nn í dag. Þrjú illkynja krabbameinsæxli voru fj arlægð í síðasta mánuði.
UTAN VALLAR Hannes Jón er hér í leik gegn meisturum Kiel. Hann spilar ekki handbolta á næstunni. NORDICPHOTOS/BONGARTS
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
CASALL
MAGAHJÓL
3.790 kr.
MIKIÐ ÚRVAL
SPORTAUKAHLUTA.
FÓTBOLTI Norski framherjinn Ole
Gunnar Solskjær hefur átt góðu
gengi að fagna sem þjálfari en
hann hefur gert Molde að Noregs-
meisturum síðustu tvö tímabil.
Þessi fyrrverandi framherji
Manchester United til ellefu ára
er þegar orðinn mjög eftirsóttur í
Englandi en sjálfan dreymir hann
um að stýra Man. Utd.
„Alla sem hafa spilað með Man.
Utd dreymir um að verða ein-
hvern tímann nógu góðir til þess
að stýra félaginu. Ég er samt ekki
svo heimskur að halda að ég sé
tilbúinn í slíkt risaverkefni,“ sagði
Norðmaðurinn.
„Ef þessi draumur á að rætast
hjá mér verð ég að leggja afar hart
að mér í mörg ár í viðbót. Ég á enn
eftir að læra ansi mikið um þetta
starf og sýna að ég geti staðið af
mér almennilegt mótlæti,“ sagði
Norðmaðurinn hógværi.
„Þeir sem vilja stýra þessu
félagi þurfa að sanna bæði fyrir
stjórn og stuðningsmönnum að
þeir séu þess verðugir. Stuðnings-
mennirnir vita að ég er United-
maður fyrir lífstíð. Það mun aldrei
breytast. Þetta félag á sérstakan
sess í mínu hjarta. Það næstbesta
við að vera leikmaður er að vera
stjórinn.“ - hbg
Dreymir um að
stýra Man. Utd
FÉLAGAR Solskjær með Ferguson á
góðri stund. NORDICPHOTOS/GETTY
F1 Valtteri Bottas,
ungur Finni sem
hefur undanfarið
reynsluekið fyrir
Williams-liðið í
Formúlu 1, hefur
verið ráðinn sem
keppnisökuþór liðsins
á næsta ári. Þar mun hann aka við
hlið Pastor Maldonado.
Bottas stóð sig frábærlega á
þeim föstudagsæfingum sem
hann fékk að aka í sumar. Fimm-
tán sinnum í sumar fékk þessi 23
ára gamli ökuþór bílinn frá Bruno
Senna. Senna hverfur á braut og
hefur ekki fengið keppnissamning
í Formúlu 1 á næsta ári.
Bottas varð meistari í GP3 árið
2011 og segir draum sinn vera
að rætast. „Það hefur verið lífs-
draumur minn að aka í Formúlu 1,“
sagði hann. „Og að gera það með
goðsagnakenndu liði er mjög sér-
stakt fyrir mig.“ - bþh
Bottas með
Maldonado
FÓTBOLTI Spænskir fjölmiðlar skrifa nú daglega um
framtíð Jose Mourinho hjá Real Madrid. Nú berast
fréttir af því að að franska félagið Paris Saint-Germa-
in sé tilbúið að gera allt til þess að fá hann til sín.
Marca hefur heimildir fyrir því að forráðamenn
PSG hafi boðið Mourinho óútfyllta ávísun þar
sem portúgalski þjálfarinn getur ákveð-
ið sjálfur hvaða ofurlaun hann fær hjá
félaginu.
Að auki ætla eigendur PSG að veiða
Mourinho með því að bjóða honum fulla
knattspyrnu- og peningastjórn á félaginu
sem þýðir að hann getur selt og keypt þá
leikmenn sem hann vill.
Nasser Al Khelaifi er hægri hönd sjeiks-
ins í Katar sem keypti félagið og hefur síðan
dælt inn í það peningum en Al Khelaifi er
ekki tilbúinn að staðfesta sögusagnirnar í við-
tali við Marca. - óój
Hvað viltu mikið, vinur?
PSG býður Mourinho gull og græna skóga.
EFTIRSÓTTUR
PSG er sagt ætla
að fá Mourinho
til félagsins.
SPORT