Fréttablaðið - 29.11.2012, Side 86
29. nóvember 2012 FIMMTUDAGUR| MENNING | 66
„Ég drekk rosalega mikið af ísköldu
sódavatni með sítrónu, svo ætli
ég verði ekki að segja að það sé í
uppáhaldi.“
Andri Bjartur Jakobsson, trommuleikari.
DRYKKURINN
Deep Purple stígur á svið í Nýju
Laugardalshöllinni 12. júlí á næsta
ári.
Þetta verður í fjórða sinn sem
þessi heimsfræga rokkhljómsveit
kemur til Íslands. Fyrst spilaði hún
árið 1971 í Laugardalshöllinni og
svo aftur 2004 og 2007, bæði skipt-
in í Höllinni. Samanlagt hefur
sveitin selt um þrjátíu þúsund miða
hér á landi. Að sögn tónleikahald-
arans Björgvins Þórs Rúnarssonar
á hljómsveitin Íslandsmet í miða-
sölu hérlendis þegar um erlenda
sveit er að ræða. Árið 2007 hélt
Deep Purple tvenna tónleika í Höll-
inni og seldist upp á þá á örskömm-
um tíma.
„Þetta verður frábært tækifæri
fyrir Íslendinga að sjá þessa snill-
inga í hinsta sinn, því mér skilst að
þetta verði í síðasta sinn sem þeir
koma hingað. Eftir samtal mitt við
þeirra fólk er ég sannfærður um að
Íslendingar fái risatónleika þann
12. júlí,“ segir Björgvin og bætir
við: „Deep Purple er enn í fullu
fjöri og hefur verið að fá afbragðs-
dóma fyrir tónleikana sína.“
Deep Purple er ein af þekktustu
rokksveitum sögunnar. Meðal vin-
sælustu laga hennar eru Smoke
on the Water, Highway Star, The
Woman From Tokyo, Child in Time
og Perfect Stranger. Í dag er hljóm-
sveitin skipuð þeim Ian Paice, Ste-
ven Morse, Donald Airey, Roger
Glover og Ian Gillan.
Miðasala á tónleikana hefst á
Midi.is fimmtudaginn 13. desemb-
er. Nýja Laugardalshöllin tekur
tíu þúsund manns og selt verður í
svæði A og B. Söngvarinn kröftugi
Eyþór Ingi Gunnlaugsson mun hita
upp ásamt hljómsveit sinni. - fb
Deep Purple kemur til Íslands í fj órða sinn
Rokkhljómsveitin heimsþekkta heldur tónleika í nýju Laugardalshöllinni 12. júlí á næsta ári.
TIL ÍSLANDS Ian Gillan og félagar í
Deep Purple eru á leiðinni til Íslands í
fjórða sinn. NORDICPHOTOS/GETTY
„Ég hef verið að pæla í þessu
greinasafni áður og þetta nám
gaf mér ástæðu til að drífa þetta
af,“ segir tónlistarspekingurinn
Arnar Eggert Thoroddsen.
Bók hans Tónlist … er tónlist:
Greinar 1999 – 2012, kemur út á
laugardaginn á Degi íslenskrar
tónlistar. Þar er að finna hinar
ýmsu greinar um tónlist sem
hann hefur skrifað sem blaðamað-
ur hjá Morgunblaðinu.
Arnar Eggert stundar meistara-
nám í tónlistarfræðum í Edinborg
og ákvað að nýta tækifærið og
taka saman skrifferil sinn á Mogg-
anum. „Líftími greina í dagblöð-
um er oft stuttur. Mig langaði að
taka það sem mér fannst skemmti-
legt og gefa því lengra líf,“ segir
hann. „Ég tók þetta saman eftir
tilfinningu. Þetta eru skemmti-
legar greinar sem ég man eftir
og líka það sem telst tónlistarlega
merkilegt, eins og greinar um
Sigur Rós eða Björk. Þegar maður
les þetta í gegn sér maður svolít-
ið tónlistarsögu þessara áratuga.“
Bókin verður prentuð í tvö þús-
und eintökum og er þetta þriðja
bók Arnars Eggerts. Áður hefur
hann gefið út Umboðsmaður
Íslands: Öll trixin í bókinni, ásamt
Einari Bárðarsyni, og 100 bestu
plötur Íslandssögunnar, ásamt
Jónatani Garðarssyni.
Útgáfuhóf verður haldið í Máli
og menningu á laugardaginn.
Höfundurinn kemst ekki á stað-
inn en ætlar að spjalla við gesti
og gangandi í gegnum Skype.
Aðspurður segir Arnar Eggert að
námið í Skotlandi gangi prýðilega.
„Maður er að nördast í músík
allan daginn. Ég gæti ekki verið
á betri stað.“ -fb
Tónlistargreinum gefi ð lengra líf
Spekingurinn Arnar Eggert Thoroddsen gefur út nýja bók með blaðagreinum.
Í EDINBORG Arnar Eggert Thoroddsen
stundar nám í tónlistarfræðum í
Edinborg.
„Það sakar ekki að reyna. Er
maður ekki alltaf að leita að áskor-
unum í lífinu?,“ segir leikstjór-
inn, leikarinn og framleiðandinn
Bjarni Haukur Þórsson sem er á
lista yfir umsækjendur um stöðu
leikhússtjóra við Borgarleikhúsið
í Ósló, eða Oslo Nye Teater.
Staðan er áhrifamikil í Noregi,
enda er Borgarleikhúsið í Ósló
eitt af fjórum stærstu leikhúsum
landsins. Listi yfir umsækjend-
ur var gerður opinber í byrjun
vikunnar en 14 manns sækja um
stöðuna. Bjarni er ekki ókunnur
norska leiklistarbransanum því
hann hefur meðal annars sett
upp leiksýningar þar í landi. „Ég
var hvattur af norskum vinum og
kunningjum til að sækja um þessa
stöðu, en ég er nú ekki vongóður
um að verða ráðinn. Það eru ekki
fordæmi fyrir því að útlendingur
sé ráðinn í stöðu sem þessa,“ segir
Bjarni Haukur, sem þessa dagana
er með í bígerð framleiðslu kvik-
myndar sem verður byggð á leik-
ritinu Afanum eftir hann sjálfan.
Borgarleikhúsið í Ósló hefur
gengið í gegnum fjárhagsörðug-
leika undanfarið og ákveðin upp-
stokkun á sér stað innan leikhúss-
ins. Bjarni segir þær breytingar
sem fram undan eru hjá leikhúsinu
spennandi og hann sé tilbúinn að
taka þátt í þeim ef þess er óskað.
„Það eru breytingar í pípunum
innan leikhússins sem gera starf-
ið mjög áhugvert. Ég lauk MBA-
prófi í fyrra og þetta starf er rök-
rétt framhald á því námi.“
Bjarni segist ekki kominn svo
langt að hugsa hvað hann myndi
gera yrði hann ráðinn. Samning-
urinn hljóðar upp fjögur ár og
nýr leikhússtjóri tekur við í janú-
ar 2014. Bjarni þekkir hins vegar
vel til í Noregi og segist skilja
norskuna ágætlega, en hann talar
sænsku reiprennandi. „Ég ólst upp
í Svíþjóð og maður kemst nokkuð
langt á sænskunni í Noregi. Það
er hins vegar nóg að gera hjá mér
núna svo ég hef lítið náð að hugsa
um þetta, enda eru ekki miklar
líkur á því að ég verði ráðinn. Við
sjáum hvað setur.“
alfrun@frettabladid.is
Sækist eft ir stöðu Borg-
arleikhússtjóra í Ósló
Leikstjórinn, leikarinn og framleiðandinn Bjarni Haukur Þórsson sækir um
áhrifastöðu í Noregi og etur þar kappi við mörg þekkt nöfn innan norska leik-
húsbransans. Hann segist ekki sérlega vongóður um að verða ráðinn.
SÆKIR UM LEIKHÚSSTJÓRASTÖÐU Í NOREGI Bjarni Haukur Þórsson var hvattur
af norskum vinum til að sækja um stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins í Ósló.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
● Stofnað í febrúar 1929.
● Staðsett í hjarta miðbæjar Ósló með þremur
sviðum í þremur byggingum á sama svæði í
höfuðborginni.
● Árið 2008 var leikhúsið eitt mest sótt leik-
hús Noregs og sóttu yfir 197.000 áhorfendur
sýningar þar á árinu.
● Sama ár voru 122 fastir starfsmenn við leik-
húsið. Alls voru starfsmenn yfir 400 talsins.
● Meðal umsækjenda um leikhússtjórastöð-
una er leikarinn Geir Kvarme, en hann er mjög
þekktur í heimalandi sínu. Kvarme er fastráð-
inn leikari við leikhúsið og hefur setið í stjórn
þess undanfarin ár. Norskir fjölmiðlar telja
hann því líklegastan til að hreppa hnossið.
Oslo Nye Teater