Fréttablaðið - 11.12.2012, Qupperneq 2
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Pálmi, er svona mikið af
menningarvitum í hverfinu?
„Já, og er það ekki bara góðs viti?“
Pálmi Freyr Randversson er verkefnis-
stjóri hjá Reykjavíkurborg. Hagsmunaaðilar
umhverfis Vitastíg í miðbænum vilja skil-
greina svæðið sem sérstakt Vitahverfi til að
koma því betur á kortið. Pálmi hefur kynnt
verkefnið innan borgarinnar.
GRENIVÍK Útgerðarfyrirtækið
Gjögur greiddi um síðustu mán-
aðamót starfsfólki sínu í land-
vinnslu fyrirtækisins á Grenivík
þrjú hundruð þúsund krónur, auk
orlofs, í afkomubónus.
„Tilefnið er góð afkoma land-
vinnslunnar á Grenivík á árinu.
Einnig fá starfsmenn veglega
jólagjöf frá fyrirtækinu,“ segir
um málið á vefsetri Grenivíkur.
Þar kemur einnig fram að fyrr-
nefnd upphæð miðist við fullt
starf og sé greidd hlutfallslega út
frá starfshlutfalli og starfstíma
hvers og eins á árinu. - gar
Velgengni í fiski á Grenivík:
Fá 300 þúsund í
jólabónus í ár
DÓMSTÓLAR
Bílþjófur fær tvo mánuði
Maður á þrítugsaldri með áralangan
sakaferil hefur verið dæmdur í tveggja
mánaða fangelsi og sviptur ökurétti
ævilangt. Í fyrra stal hann bíl auk
þess að vera tekinn við akstur undir
áhrifum. Dómurinn var kveðinn upp í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
VELFERÐARMÁL Peningum sem
söfnuðust með átaki sem kennt
var við öðlinga hafa nýst Neyð-
armóttöku vegna nauðgana vel.
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra og fulltrúar Reykjavíkur-
borgar tóku í gær við bæklingi,
lógói, límmiðum og veggspjaldi
fyrir hönd neyðarmóttökunnar.
Í bæklingnum er fjallað um
sálrænar afleiðingar kynferðis-
ofbeldis, en slíkan bækling hefur
skort sárlega. Þá hefur verið útbú-
ið upplýsingaspjald í þúsundatali
sem dreift verður í framhalds-
skóla, heilsugæslustöðvar og víðar.
Þá veitti Guðbjartur einnig við-
töku límmiða með upplýsingum
um þjónustu Neyðarmóttökunnar
sem dreift verður á skemmtistaði
og krár með það fyrir augum að
þeir verði límdir á spegla á salern-
um. - bj
Peningar sem öðlingar söfnuðu nýtast Neyðarmóttöku vegna nauðgana vel:
Límmiðar á skemmtistaði og krár
VEITTU VIÐTÖKU Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og fulltrúar Reykjavík-
urborgar tóku við bæklingi, veggspjaldi og fleiru fyrir hönd Neyðarmóttöku vegna
nauðgana í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEILBRIGÐISMÁl „Það á bara að
drepa mann lifandi,“ segir Bjarni
Bærings Bjarnason á Brúar-
reykjum í Borgarfirði sem svipt-
ur hefur verið starfsleyfi fyrir
kúabú sitt.
„Þetta er bara valdníðsla af
hálfu Matvælastofnunar,“ segir
Bjarni sem kveður héraðsdýra-
lækni Vesturlands hafa komið
honum að óvörum að morgni 8.
nóvember síðastliðins.
„Það höfðu borið átta beljur
í einum rykk sjötta og sjöunda
nóvember. Þetta voru erfiðar fæð-
ingar og ég hafði ekki sofið í tvo
sólarhringa og hafði ekki þrifið
og fjósið orðið drullugt,“ útskýrir
Bjarni þá stöðu sem var í fjósinu
að morgni 8. nóvember og sjá má
af meðfylgjandi mynd.
Steinþór Arnarson, lögfræð-
ingur hjá Matvælastofnun, segir
Brúarreyki hafa fengið margítrek-
aðan frest til úrbóta frá því býlið
var tekið til eftirlits í fyrravetur.
Í janúar á þessu ári hafi ekki verið
jafn mikið af gripum í fjósinu og
nú sé. Þeim hafi hins vegar fjölg-
að mikið og séu nú um níutíu þótt
fjósið sé aðeins gert fyrir sextíu
kýr.
Steinþór kveður frávikin frá
reglunum á Brúarreykjum ekki
hafa verið alvarleg fyrr en 8.
nóvember. „Það var greinilegt
að mjaltirnar ganga ekki þann-
ig fyrir sig að matvælaöryggi sé
tryggt,“ segir hann.
Aftur var farið í eftirlit á Brúar-
reyki 15. nóvember. „Þá var búið
að þrífa og allt var í lagi nema það
voru of margir gripir í fjósinu.
Allt annað var í lagi,“ fullyrðir
Bjarni. Steinþór segir aðra sögu.
„Það var ekki orðið ásættanlegt
og starfsleyfið var afturkallað,“
segir hann.
Bjarni játar að kýrnar í fjósinu
séu of margar samkvæmt reglum.
Hann hafi leyft of mörgum grip-
um að lifa. Hann bendir á að áður
fyrr hafi mátt vera með fleiri
gripi en básar segja til um í lausa-
göngufjósum. „Það eru alltaf ein-
hverjir gripir að éta og þeir sofa
aldrei allir í einu svo það eru allt-
af tuttugu til þrjátíu básar auðir.“
Auk þess sem Bjarni hefur ekki
lengur leyfi til að selja frá sér
mjólk má hann ekki senda gripi
til slátrunar. Ekkert hefur þó
komið fram sem bendir til þess að
nokkuð sé athugavert við kjöt eða
mjólk frá Brúarreykjum. Stein-
þór segir afturköllun starfsleyf-
isins eiga að vera fyrirbyggjandi
en Bjarni telur skrítið að þurfa að
kasta mjólk sem sé fyrsta flokks
og verða að farga úrvalskjöti í
sveltandi heimi. „Hvaða bull er
þetta í þjóðfélaginu?“ spyr Bjarni
sem kveðst hafa sótt strax aftur
um leyfi en ekki fengið svar. Hann
er ekki bjartsýnn á hvað við taki
ef búið endurheimtir ekki starfs-
leyfið. „Þá er það bara kúlan eða
reipið.“ gar@frettabladid.is
Fótum kippt undan
bónda í djúpum skít
Bjarni Bærings Bjarnason, bóndi á Brúarreykjum í Borgarfirði, segist beittur
valdníðslu með afturköllun Matvælastofnunar á starfsleyfi kúabús hans. Fótum sé
kippt undan fjárhag fjölskyldunnar. Hann hefur sótt aftur um leyfi og bíður svars.
Í FJÓSINU Á BRÚARREYKJUM „Þú sérð alltaf einhverja drulluklepra á kúm,“ segir
bóndinn á Brúarreykjum sem kveður slæmt ástand í fjósi hans að morgni 8. nóvem-
ber síðastliðins hafa verið einsdæmi. MYND/MATVÆLASTOFNUN ÍSLANDS.
Hvaða bull er þetta í
þjóðfélaginu?
Bjarni Bærings Bjarnason, bóndi á
Brúarreykjum.
SJÁVARÚTVEGUR
Færeyingar með 5.000
tonn
Á fyrstu tíu mánuðum ársins hafa
færeysk skip veitt tæp 5.040 tonn af
botnfiski við Ísland. Þorskafli færeysku
skipanna er kominn í 1.048 tonn
miðað við 1.219 tonn á sama tíma í
fyrra en heimild færeyskra skipa á yfir-
standandi ári eru 1.200 tonn.
SPURNING DAGSINS
Frá kr. 89.900
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann 2. janúar
á frábæru tilboði. Þú bókar fllugsæti og fjórum dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir.
Verð kr. 89.900
Netverð á mann, m.v. 4 í íbúð með 2 svefnherbergjum í 13 nætur.
Verð kr. 99.900
Netverð á mann, m.v. 2 í studio/ íbúð í 13 nætur.
Stökktu til
Kanarí
2. janúar í 13 nætur
DÓMSMÁL Hæstiréttur felldi í
gær úr gildi úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur um að máli gegn
Magnúsi Guðmundssyni, fyrrver-
andi forstjóra Kaupþings í Lúxem-
borg, í Al-Thani málinu skuli vísað
frá. Ákæran gegn honum verður
því tekin til efnislegrar meðferðar
í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Al-Thani málið snýst um það að
Magnús og þrír aðrir lykilmenn í
rekstri Kaupþings voru ákærðir
fyrir umboðssvik og markaðsmis-
notkun í tengslum við sölu á 5% hlut
í bankanum til
Sheikh Moham-
med bin Kha-
lifa Al-Thani.
Sérstakur sak-
sóknari telur að
um sýndarvið-
skipti hafi verið
að ræða og Al-
Thani hafi aldrei
greitt neitt fyrir
hlutinn. Þessum
gjörningi hafi verið ætlað að halda
uppi hlutabréfaverði í bankanum.
Auk Magnúsar voru Hreiðar Már
Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri
Kaupþings, Sigurður Einarsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður, og Ólafur
Ólafsson, stærsti eigandi bankans,
ákærðir. Sakborningar kröfðust allir
frávísunar. Við fyrirtöku í héraðs-
dómi úrskurðaði dómari að þeim
ákæruliðum sem lúta að Magnúsi
skyldi vísað frá, svo óskýrir og van-
reifaðir væru þeir. Hæstiréttur felldi
þann úrskurð úr gildi og telur ákær-
una nógu skýra til þess að sakborn-
ingar geti gripið til varna. - jhh
Mál gegn Magnúsi Guðmundssyni skal tekið til meðferðar í héraðsdómi:
Ákæran gegn Magnúsi stendur
MAGNÚS
GUÐMUNDSSON
NOREGUR Þeir Herman Van Rompuy, José Manuel Barroso og Martin
Schulz, forsvarsmenn þriggja helstu stofnana Evrópusambandsins,
tóku við friðarverðlaunum Nóbels við hátíðlega athöfn í Ósló, höfuð-
borg Noregs, í gær. Við athöfnina voru tuttugu af 27 þjóðarleiðtogum
ESB-ríkjanna.
Thorbjörn Jagland, formaður Nóbelsnefndarinnar, sagði í ræðu
sinni að ESB hefði verið forsenda stöðugleika í Evrópu eftir tvær
heimsstyrjaldir og breytt henni í álfu friðar.
Margir hafa gagnrýnt val Nóbelsnefndarinnar og sagt að ESB eigi
verðlaunin ekki skilið. Þeirra á meðal eru fjórir handhafar friðarverð-
launanna. Desmond Tutu, einn þeirra, segir það ekki standast lög að
ESB hljóti friðarverðlaunin. - shá
Afhending friðarverðlauna mjög umdeild:
Friðarverðlaun Nóbels afhent
ÓSLÓ Í GÆR Forsetar framkvæmdastjórnarinnar, leiðtogaráðs og ESB-þingsins tóku
við friðarverðlaununum í gær. NORDICPHOTOS/AFP
VÍSINDI Vísindamenn búa sig nú
undir að bora í gegnum ísinn á
Suðurskautinu til að rannsaka
vatn undir ísnum. Takist þeim að
bora 3,2 kílómetra í gegnum ísinn
rjúfa þeir hálfrar milljón ára ein-
angrun vatnsins undir ísnum.
Mikil vinna hefur verið lögð
í að hanna bor sem ekki aðeins
getur borað niður í vatnið.
Tilgangur verkefnisins er að
kanna hvort líf geti þrifist við
svo erfiðar aðstæður, og þá hvers
konar líf. - bj
Bora í ísinn á Suðurskautinu:
Rjúfa 500.000
ára einangrun