Fréttablaðið - 11.12.2012, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 11.12.2012, Blaðsíða 40
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 36 HANDBOLTI Það tók ekki langan tíma að telja alla hausana sem eru á myndinni hér fyrir ofan – sem tekin var um miðjan fyrri hálfleik í granna slag Fram og Vals í N1- deild karla í handbolta sl. fimmtu- dag. Áhorfendur í salnum voru 141 – þar af stór hluti börn og iðkendur úr herbúðum Fram. Forsvarsmenn handknattleiksdeilda Fram og Vals segja að það gangi illa að fá áhorf- endur á völlinn og samkeppnin um frítíma fólks sé enn harðari en áður. Akureyringar eru hins vegar sátt- ari við sinn hlut en fín mæting er á heimaleiki handboltafélagsins. „Mér finnst þetta bara góð mæt- ing svona miðað við það sem við höfum upplifað á sumum leikjum,“ sagði Ómar Ómarsson, formaður handknattleiksdeildar Vals, þegar hann var inntur eftir viðbrögðum á þeirri staðreynd að 141 áhorfandi var mættur á viðureign Fram og Vals. „Við hjá Val höfum haft miklar áhyggjur af þessu og undanfarin tvö tímabil hafa verið sérstaklega slæm. Það hefur ýmislegt verið reynt, til dæmis að bjóða upp á grill- aða hamborgara en það hefur verið á brattann að sækja hjá okkur líkt og hjá öðrum liðum.“ Ómar segir að það sé tímabært að félögin í samvinnu við Handknattleikssam- band Íslands fari í aðgerðir til þess að fjölga áhorfendum. „Við hjá Val erum hrifnir af þeirri hugmynd að byrja leikina fyrr á kvöldin – þannig að áhorfendur komi beint úr vinnu á leikina. Þetta er t.d. gert í Þýska- landi með góðum árangri en þar er einnig margt annað í boði á leikj- um sem við höfum ekki boðið upp á hér.“ Aðspurður sagði Ómar að það væri ekki efst á óskalistanum að leyfa sölu á léttvíni eða bjór, eins og gert er í Þýskalandi. „Það hefur vissulega verið rætt en ég tel að það sé ekki tímabært að svo stöddu.“ Aðgöngumiði fyrir fullorðna á leik hjá meistaraflokki hjá Val er 1.000 krónur. „Miðaverðið er eitt af því sem við höfum velt fyrir okkur. Það væri kannski betra að fá fyrir- tæki til þess að vera styrktaraðila á einstaka leiki og bjóða öllum frítt á völlinn. Það eru ýmsar leiðir færar en við þurfum að gera eitthvað í samvinnu við önnur félög til þess að fá fólk á völlinn. Og það sem svíður mest er hve fáir áhorfendur mæta á kvennaleikina hjá okkur. Þar erum við með flott lið en það dugir ekki til. Það má samt ekki gleyma því að það er ágæt aðsókn hjá nokkrum liðum – Akureyri, ÍR og Afturelding hafa náð fínni stemningu á leikjum sínum,“ sagði Ómar. Ég veit ekki hvað er til ráða „Það er á brattann að sækja,“ sagði Árni Ólafur Hjartarson, formaður Fram. „Við höfum reynt ýmislegt til þess að fá fleiri á völlinn – með því að gefa iðkendum miða á leik- ina. En ég veit ekki hvað er til ráða. Sumir segja að keppnisfyrirkomu- lagið sé með þeim hætti að það sé engin spenna í þessu fyrr en í fjög- urra liða úrslitum. Samkeppnin um athygli fólks er alltaf fyrir hendi og við þurfum að bregðast við með einhverjum hætti. Kannski er spennan ekki nógu mikil,“ sagði Árni og leggur áherslu á að tekjur af miðasölu dugi varla fyrir kostn- aði við hvern leik. „Það eru engar tekjur af aðgöngumiðasölu – varla fyrir dómarakostnaði. Það eru kannski 150 manns á vellinum og margir með frímiða á völlinn í gegnum HSÍ eða börn undir 16 ára,“ sagði Árni en það kostar 1.000 kr. fyrir fullorðna á heimaleiki hjá Fram. „Við höfum ekki rætt það hvort sala á léttvíni eða bjór myndi breyta stemningunni fyrir leikjum. Ég efast um það sjálfur. Hjá okkur er hópur sem kallast Framstuðar- ar sem fá kaffi og veitingar í hálf- leik – það er ágætlega sótt en þeir þyrftu bara að vera miklu fleiri, og það þarf að bregðast við þessari þróun með einhverjum aðgerðum,“ sagði Árni. Akureyringar mæta vel í Höllina Það er ekki á öllum stöðum þar sem að áhorfendur láta sig vanta á áhorfendapallana. Hannes Karls- son, formaður Akureyri handbolta- félags, er að mörgu leyti ánægður með mætinguna á heimaleiki félags- ins í íþróttahöllinni á Akureyri. „Við erum með sæti fyrir um 1.200 manns en við erum að fá þetta 600- 1.000 áhorfendur á leik. Það fer eftir mótherjanum hverju sinni,“ sagði Hannes. Það má velta ýmsum mögu- leikum fyrir sér hvernig hægt er að fjölga áhorfendum og leiktímann og leikdaga er alltaf verið að ræða um. Að mínu mati eru fimmtudagskvöld- in kl. 19.00 besti tíminn og einstaka leiki mætti færa aftur á föstudags- kvöld. Það fer líka eftir gengi liða hvernig mæting er, þannig er það alltaf en vissulega má alltaf gera betur,“ sagði Hannes. seth@365.is Heimaleikir FramHeimaleikir Vals Íþróttaráð Kópavogs hefur ár hvert útnefnt íþróttafólk ársins en mun nú hafa tilnefningar bæjarbúa til hliðsjónar við val sitt. Upplýst verður um útnefninguna á íþróttakarli og íþróttakonu Kópavogs á íþróttahátíð í Salnum í byrjun janúar. Eyðublað fyrir tilnefningar er á vef Kópavogsbæjar. Frestur til að skila tilnefningum rennur út 17. desember nk. kopavogur.is KÓPAVOGSBÚAR – takið þátt í að velja íþróttafólk Kópavogs 2012 SPORT ÁHYGGJUEFNI HVE FÁIR MÆTA Aðeins 141 áhorfandi mætti á leik Fram og Vals í N1-deild karla í handbolta. Forsvarsmenn beggja félaga hafa áhyggjur af gangi mála og þeir vilja grípa til aðgerða. Staðan er mun skárri á Akureyri þar sem að 600-1.000 áhorfendur mæta á heimaleiki liðsins. DAUF STEMNING Hér sést hluti þeirra 141 einstaklings sem sáu sér fært að mæta á leik reykvísku stórveldanna, Fram og Vals. Þegar leikskýrsla var fyllt út var greinilega ákveðið að margfalda með tveimur því áhorfendur samkvæmt skýrslu voru 282. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FRÁBÆRIR Það er ekki alls staðar illa mætt. ÍR-ingar hafa mætt frábærlega í allan vetur. HEIMILD: HANDKNATTLEIKSSAMBAND ÍSLANDS 7 heimaleikir vor 2004 139 áhorfendur að meðaltali 6 heimaleikir vetur 2012 368 áhorfendur að meðaltali 7 heimaleikir vor 2004 317 áhorfendur að meðaltali 6 heimaleikir vetur 2012 275 áhorfendur að meðaltali gegn Akureyri 400 áhorfendur gegn FH 224 áhorfendur gegn ÍR 400 áhorfendur gegn Aft ureldingu 395 áhorfendur gegn Haukum 483 áhorfendur gegn FH 250 áhorfendur Valur - Fram 282 áhorfendur* *Blaðamaður Fréttablaðsins taldi 141 rétt fyrir hlé gegn Fram 348 áhorfendur gegn ÍR 362 áhorfendur gegn HK 195 áhorfendur gegn Aft ureldingu 238 áhorfendur FÓTBOLTI Það var söguleg stund í heimsfótboltan- um á sunnudag er Lio- nel Messi setti ótrú- legt met. Þá sló hann markamet Þjóðverj- ans Gerds Müller yfir flest mörk á einu ári. Müller skoraði 85 mörk á sínum tíma en tvö mörk Messi gegn Real Betis komu honum í 86 mörk á þessu ári. Hann á enn eftir að spila tvo leiki á árinu. „Metið mitt stóð í fjörutíu ár. 85 mörk í sextíu leikjum. Nú er besti leikmaður heims búinn að slá það met. Ég get ekki annað en glaðst með honum. Hann er ótrú- legur leikmaður,“ sagði auðmjúk- ur Müller við þýska fjölmiðla. Þegar Müller setti metið árið 1972 þá var hann 27 ára gam- all. Hann skoraði 72 mörk fyrir Bayern München og 13 fyrir landslið Vestur-Þýska- lands. „Messi er svo indæll og algjör fyrirmyndar- atvinnumaður. Ég vona að hann skori fleiri mörk og haldi metinu næstu fjörutíu árin. Hann er ótrúleg- ur og það eina sem ég get kvartað yfir er að hann skuli ekki spila með Bayern,“ sagði Þjóðverjinn léttur. Messi er aðeins 25 ára gamall og hefur þrisvar sinnum verið valinn besti knattspyrnumaður heims. Hann gæti fengið þau verðlaun í fjórða skiptið í janúar. Hann er tilnefndur ásamt Cris- tiano Ronaldo og Andres Iniesta. „Ég mun reyna að skora fleiri mörk og gera mönnum erfitt fyrir að slá þetta met,“ sagði Messi og hrósaði síðan liðsfélögum sínum af sinni alkunnu hógværð. - hbg Müller gleðst með Lionel Messi Lionel Messi sló 40 ára gamalt markamet Þjóðverjans Gerds Müller. ÓTRÚLEGUR Messi missti sig ekkert í fögnuðinum er hann sló metið. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.