Fréttablaðið - 11.12.2012, Síða 40
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 36
HANDBOLTI Það tók ekki langan
tíma að telja alla hausana sem eru
á myndinni hér fyrir ofan – sem
tekin var um miðjan fyrri hálfleik
í granna slag Fram og Vals í N1-
deild karla í handbolta sl. fimmtu-
dag. Áhorfendur í salnum voru 141
– þar af stór hluti börn og iðkendur
úr herbúðum Fram. Forsvarsmenn
handknattleiksdeilda Fram og Vals
segja að það gangi illa að fá áhorf-
endur á völlinn og samkeppnin um
frítíma fólks sé enn harðari en áður.
Akureyringar eru hins vegar sátt-
ari við sinn hlut en fín mæting er á
heimaleiki handboltafélagsins.
„Mér finnst þetta bara góð mæt-
ing svona miðað við það sem við
höfum upplifað á sumum leikjum,“
sagði Ómar Ómarsson, formaður
handknattleiksdeildar Vals, þegar
hann var inntur eftir viðbrögðum
á þeirri staðreynd að 141 áhorfandi
var mættur á viðureign Fram og
Vals.
„Við hjá Val höfum haft miklar
áhyggjur af þessu og undanfarin
tvö tímabil hafa verið sérstaklega
slæm. Það hefur ýmislegt verið
reynt, til dæmis að bjóða upp á grill-
aða hamborgara en það hefur verið
á brattann að sækja hjá okkur líkt
og hjá öðrum liðum.“ Ómar segir
að það sé tímabært að félögin í
samvinnu við Handknattleikssam-
band Íslands fari í aðgerðir til þess
að fjölga áhorfendum. „Við hjá Val
erum hrifnir af þeirri hugmynd að
byrja leikina fyrr á kvöldin – þannig
að áhorfendur komi beint úr vinnu
á leikina. Þetta er t.d. gert í Þýska-
landi með góðum árangri en þar er
einnig margt annað í boði á leikj-
um sem við höfum ekki boðið upp
á hér.“ Aðspurður sagði Ómar að
það væri ekki efst á óskalistanum
að leyfa sölu á léttvíni eða bjór, eins
og gert er í Þýskalandi. „Það hefur
vissulega verið rætt en ég tel að það
sé ekki tímabært að svo stöddu.“
Aðgöngumiði fyrir fullorðna á
leik hjá meistaraflokki hjá Val er
1.000 krónur. „Miðaverðið er eitt af
því sem við höfum velt fyrir okkur.
Það væri kannski betra að fá fyrir-
tæki til þess að vera styrktaraðila á
einstaka leiki og bjóða öllum frítt á
völlinn. Það eru ýmsar leiðir færar
en við þurfum að gera eitthvað í
samvinnu við önnur félög til þess að
fá fólk á völlinn. Og það sem svíður
mest er hve fáir áhorfendur mæta á
kvennaleikina hjá okkur. Þar erum
við með flott lið en það dugir ekki
til. Það má samt ekki gleyma því
að það er ágæt aðsókn hjá nokkrum
liðum – Akureyri, ÍR og Afturelding
hafa náð fínni stemningu á leikjum
sínum,“ sagði Ómar.
Ég veit ekki hvað er til ráða
„Það er á brattann að sækja,“ sagði
Árni Ólafur Hjartarson, formaður
Fram. „Við höfum reynt ýmislegt
til þess að fá fleiri á völlinn – með
því að gefa iðkendum miða á leik-
ina. En ég veit ekki hvað er til ráða.
Sumir segja að keppnisfyrirkomu-
lagið sé með þeim hætti að það sé
engin spenna í þessu fyrr en í fjög-
urra liða úrslitum. Samkeppnin um
athygli fólks er alltaf fyrir hendi
og við þurfum að bregðast við
með einhverjum hætti. Kannski
er spennan ekki nógu mikil,“ sagði
Árni og leggur áherslu á að tekjur
af miðasölu dugi varla fyrir kostn-
aði við hvern leik.
„Það eru engar tekjur af
aðgöngumiðasölu – varla fyrir
dómarakostnaði. Það eru kannski
150 manns á vellinum og margir
með frímiða á völlinn í gegnum
HSÍ eða börn undir 16 ára,“ sagði
Árni en það kostar 1.000 kr. fyrir
fullorðna á heimaleiki hjá Fram.
„Við höfum ekki rætt það hvort
sala á léttvíni eða bjór myndi
breyta stemningunni fyrir leikjum.
Ég efast um það sjálfur. Hjá okkur
er hópur sem kallast Framstuðar-
ar sem fá kaffi og veitingar í hálf-
leik – það er ágætlega sótt en þeir
þyrftu bara að vera miklu fleiri,
og það þarf að bregðast við þessari
þróun með einhverjum aðgerðum,“
sagði Árni.
Akureyringar mæta vel í Höllina
Það er ekki á öllum stöðum þar
sem að áhorfendur láta sig vanta á
áhorfendapallana. Hannes Karls-
son, formaður Akureyri handbolta-
félags, er að mörgu leyti ánægður
með mætinguna á heimaleiki félags-
ins í íþróttahöllinni á Akureyri.
„Við erum með sæti fyrir um 1.200
manns en við erum að fá þetta 600-
1.000 áhorfendur á leik. Það fer eftir
mótherjanum hverju sinni,“ sagði
Hannes. Það má velta ýmsum mögu-
leikum fyrir sér hvernig hægt er að
fjölga áhorfendum og leiktímann og
leikdaga er alltaf verið að ræða um.
Að mínu mati eru fimmtudagskvöld-
in kl. 19.00 besti tíminn og einstaka
leiki mætti færa aftur á föstudags-
kvöld. Það fer líka eftir gengi liða
hvernig mæting er, þannig er það
alltaf en vissulega má alltaf gera
betur,“ sagði Hannes.
seth@365.is
Heimaleikir FramHeimaleikir Vals
Íþróttaráð Kópavogs hefur ár hvert útnefnt
íþróttafólk ársins en mun nú hafa tilnefningar
bæjarbúa til hliðsjónar við val sitt.
Upplýst verður um útnefninguna á íþróttakarli
og íþróttakonu Kópavogs á íþróttahátíð í Salnum
í byrjun janúar.
Eyðublað fyrir tilnefningar er á vef Kópavogsbæjar.
Frestur til að skila tilnefningum rennur út
17. desember nk.
kopavogur.is
KÓPAVOGSBÚAR
– takið þátt í að velja
íþróttafólk Kópavogs 2012
SPORT
ÁHYGGJUEFNI
HVE FÁIR
MÆTA
Aðeins 141 áhorfandi mætti á leik Fram og Vals í
N1-deild karla í handbolta. Forsvarsmenn beggja
félaga hafa áhyggjur af gangi mála og þeir vilja grípa
til aðgerða. Staðan er mun skárri á Akureyri þar sem
að 600-1.000 áhorfendur mæta á heimaleiki liðsins.
DAUF STEMNING Hér sést hluti þeirra 141 einstaklings sem sáu sér fært að mæta á leik reykvísku stórveldanna, Fram og Vals. Þegar leikskýrsla var fyllt út var greinilega ákveðið að margfalda með tveimur því
áhorfendur samkvæmt skýrslu voru 282. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRÁBÆRIR Það er ekki alls staðar illa mætt. ÍR-ingar hafa mætt frábærlega í allan vetur.
HEIMILD: HANDKNATTLEIKSSAMBAND ÍSLANDS
7 heimaleikir vor 2004
139 áhorfendur að meðaltali
6 heimaleikir vetur 2012
368 áhorfendur að meðaltali
7 heimaleikir vor 2004
317 áhorfendur að meðaltali
6 heimaleikir vetur 2012
275 áhorfendur að meðaltali
gegn Akureyri
400 áhorfendur
gegn FH
224 áhorfendur
gegn ÍR
400 áhorfendur
gegn Aft ureldingu
395 áhorfendur
gegn Haukum
483 áhorfendur
gegn FH
250 áhorfendur
Valur - Fram
282 áhorfendur*
*Blaðamaður Fréttablaðsins taldi 141 rétt fyrir hlé
gegn Fram
348 áhorfendur
gegn ÍR
362 áhorfendur
gegn HK
195 áhorfendur
gegn Aft ureldingu
238 áhorfendur
FÓTBOLTI Það var söguleg
stund í heimsfótboltan-
um á sunnudag er Lio-
nel Messi setti ótrú-
legt met. Þá sló hann
markamet Þjóðverj-
ans Gerds Müller yfir
flest mörk á einu ári.
Müller skoraði 85
mörk á sínum tíma en tvö
mörk Messi gegn Real Betis
komu honum í 86 mörk á þessu
ári. Hann á enn eftir að spila tvo
leiki á árinu.
„Metið mitt stóð í fjörutíu ár.
85 mörk í sextíu leikjum. Nú er
besti leikmaður heims búinn að
slá það met. Ég get ekki annað en
glaðst með honum. Hann er ótrú-
legur leikmaður,“ sagði auðmjúk-
ur Müller við þýska fjölmiðla.
Þegar Müller setti metið árið
1972 þá var hann 27 ára gam-
all. Hann skoraði 72 mörk fyrir
Bayern München og 13 fyrir
landslið Vestur-Þýska-
lands.
„Messi er svo indæll
og algjör fyrirmyndar-
atvinnumaður. Ég
vona að hann skori
fleiri mörk og haldi
metinu næstu fjörutíu
árin. Hann er ótrúleg-
ur og það eina sem ég get
kvartað yfir er að hann skuli
ekki spila með Bayern,“ sagði
Þjóðverjinn léttur.
Messi er aðeins 25 ára gamall
og hefur þrisvar sinnum verið
valinn besti knattspyrnumaður
heims. Hann gæti fengið þau
verðlaun í fjórða skiptið í janúar.
Hann er tilnefndur ásamt Cris-
tiano Ronaldo og Andres Iniesta.
„Ég mun reyna að skora fleiri
mörk og gera mönnum erfitt fyrir
að slá þetta met,“ sagði Messi og
hrósaði síðan liðsfélögum sínum
af sinni alkunnu hógværð. - hbg
Müller gleðst með Lionel Messi
Lionel Messi sló 40 ára gamalt markamet Þjóðverjans Gerds Müller.
ÓTRÚLEGUR Messi missti sig ekkert í
fögnuðinum er hann sló metið.
NORDICPHOTOS/GETTY