Fréttablaðið - 11.12.2012, Síða 4
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
KATAR, AP „Þetta er ekki niður-
staðan sem við vildum í lok þessa
fundar, ég get fullvissað ykkur
um það,“ sagði utanríkisráðherra
Nauru-eyja í Míkrónesíu, Kieren
Keke, sem var í forsvari fyrir lítil
eyríki á loftslagsráðstefnunni í
Doha í Katar. „Við erum ekki held-
ur á þeim stað sem við þyrftum að
vera á til að koma í veg fyrir að
eyjur fari undir sjó.“
Lítil eyríki og önnur þróunar-
lönd voru mörg hver ósátt við nið-
urstöðu fundarins, þrátt fyrir að
væntingar hafi ekki verið miklar
fyrir fundinn.
„Við teljum þessa niðurstöðu
ófullnægjandi í losun og fjármál-
um. Samkomulagið mun líklega
verða til þess að þriggja til fimm
gráðu hækkun verður á hitastigi
heimsins, jafnvel þó við höfum
samþykkt að reyna að láta meðal-
hitastigið ekki hækka um meira
en 1,5 gráður, til þess að tryggja
að allar eyjur lifi af. Það er ekkert
nýtt fjármagn – bara loforð um að
eitthvað verði gert í framtíðinni.
Þeir sem koma í veg fyrir þetta
þurfa að hætta að tala um hvern-
ig líf þeirra fólks verður og fara
að tala um hvort okkar fólk mun
lifa af.“
Fátæk ríki kröfðust þess í byrj-
un ráðstefnunnar að sett yrði fram
tímaáætlun um það hvernig ríku
löndin myndu hækka aðstoð vegna
loftslagsbreytinga í 100 milljónir
Bandaríkjadala á ári fram til árs-
ins 2020, þegar nýtt samkomulag
um losun gróðurhúsalofttegunda
á að taka gildi. Þessu hafði verið
lofað fyrir þremur árum síðan. Í
lokasamþykkt ráðstefnunnar eru
ríku löndin þó aðeins hvött til þess
að safna að minnsta kosti 10 millj-
ónum dala á ári, en ekki skylduð til
neins. Þá er því lofað að fundnar
verði leiðir til að hækka aðstoðina.
Ríku löndin gengust þó við
ábyrgð sinni á skaða sem loftslags-
breytingar hafa valdið í mörgum
þróunarríkjum á ráðstefnunni.
Samkomulag um framleng-
ingu Kýótó-bókunarinnar varð
til á laugardaginn, eftir að ráð-
stefnunni átti að vera lokið. Mik-
ill ágreiningur ríkti á lokasprett-
inum og stór ríki eins og Rússland,
Japan, Nýja-Sjáland og Kanada
drógu sig út úr samkomulaginu.
Ríkin sem samþykktu bókunina
losa aðeins um fimmtán prósent
af gróðurhúsalofttegundum út í
andrúmsloftið.
thorunn@frettabladid.is
VÍSINDI Fornleifafræðingafélag Íslands (FFÍ) óttast að fornleifa-rannsóknir gætu lagst af á næstu árum verði lög um menningar-minjar samþykkt um áramót. Ekki er gert ráð fyrir neinum fram-lögum til fornleifarannsókna í fjár-lögum næsta árs og hafa styrkir til greinarinnar dregist saman um 60 prósent frá árinu 2008. Hin nýju lög kveða á um að Forn-minjasjóður skuli taka að sér mun víðara hlutverk en áður, eins og báta- og skipaviðgerðir, og verður vinna að stefnumótun í minjavörslu greidd úr honum að hluta. Þrátt fyrir það eru framlög minnkuð um 30 prósent á sama tíma. Ármann Guðmundsson, for-maður félagsins, segir framtíð greinarinnar hér á landi einkenn-ast af mikilli óvissu vegna þessa. „Sjóðurinn var eyrnamerkturþessari vísind i
Óttast að fornleifarannsóknir gætu lagst af á næstu árumForsendur til fornleifarannsókna eru brostnar taki lög um menningarminjar gildi um áramót, að mati forn-leifafræðinga. Fjárframlög skorin niður um 60% síðan 2008. Mikið atvinnuleysi hjá stéttinni síðustu fimm ár.
TY
:
a
u
s og að undan- ess mun starfa sem hverfastjórn þangað til.
- mþl
Um 70% íslenskra fornleifafræðinga
hafa verið atvinnu-
laus í einhvern
tíma síðustu
fimm ár.
MIKIÐ
ATVINNU-LEYSI
70%
Sam-
kvæmt
nýrri
skoðana-
könnun
sem gerð
var meðal
stéttarinnar
nýverið.
VÍSINDI Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, vill að Fornminjasjóður
verði efldur í næstu fjárlögum. Ljóst sé að
góðum umsóknum um styrki er varða fornleifa-
rannsóknir hafi verið hafnað á undanförnum
misserum og tiltölulega lágar fjárhæðir verið
samþykktar samanborið við árin fyrir hrun.
„Það þarf að leggja áherslu á að efla sjóðinn
með því að skoða stöðuna sérstaklega í næstu
fjárlögum,“ segir Katrín. „Þá mætti meðal ann-
ars beita þeim rökum að [fornleifar] skipti máli
fyrir ferðamennsku. Það á að horfa til þessarar
uppbyggingar í framtíðinni.“
Fréttablaðið greindi frá því á föstudag að
Fornleifafræðingafélag Íslands hefði þungar
áhyggjur af stöðu fornleifarannsókna í landinu
vegna sílækkandi
fjárveitinga frá rík-
inu sem sé aðallega
til komið vegna
breytts og víðara
hlutverks Forn-
minjasjóðs.
Þá úthlutar fjár-
laganefnd Alþingis
ekki lengur fjár-
magni til forn-
leifarannsókna en
Katrín segir að með þeirri breytingu hafi sjóð-
urinn verið stækkaður á móti.
„Hann er stækkaður um helming, en engu
að síður munar verulegu um
framlög fjárlaganefndar,“
segir hún. „Ég skil áhyggj-
ur fornleifafræðinga og tek
undir að það sé mikilvægt að
byggja upp sjóðinn í skrefum
án aðkomu hennar.“ - sv
225,8138
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,55 127,15
202,89 203,87
163,21 164,13
21,879 22,007
22,243 22,373
18,914 19,024
1,5388 1,5478
193,62 194,78
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
10.12.2012
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Himinbrim, önnur breiðskífa hljóm-
sveitarinnar Nóru, hlaut fjögurra
stjörnu gagnrýni Trausta Júlíussonar
tónlistargagnrýnanda í Fréttablaðinu
en ekki þriggja stjörnu eins og
ranglega var sagt í samantekt um dóma
vikunnar á laugardag.
LEIÐRÉTT
Menningarmálaráðherra segist skilja áhyggjur fornleifafræðinga af sílækkandi fjárveitingum:
Vill efla Fornminjasjóð í næstu fjárlögum
HAFA ÁHYGGJUR Fornleifafræð-
ingar óttast um framtíð fornleifa-
fræði á Íslandi vegna niðurskurðar.
SLYS Kona á níræðisaldri sem
varð fyrir strætisvagni í Kópa-
vogi á föstudagsmorgun, lést á
gjörgæsludeild síðar sama dag.
Konan varð fyrir vagni sem
var ekið í austur á Nýbýlavegi og
var flutt á slysadeild í kjölfarið.
Fljótlega var hún flutt á gjör-
gæsludeild þar sem hún lést.
Ekki er unnt að greina frá
nafni hinnar látnu að svo stöddu.
- sv
Varð fyrir strætisvagni:
Lést á spítala
eftir bílslys
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
Austanstrekkingur allra syðst, annars
3-8 m/s.
LITLAR BREYTINGAR í veðrinu næstu daga. SA-áttir verða ríkjandi með hægviðri
norðan- og austantil en strekkingi allra syðst. Úrkomulítið að mestu, síst við
suðurströndina en nokkuð bjart norðan- og austanlands. Hlýjast allra syðst.
1°
4
m/s
3°
9
m/s
4°
10
m/s
7°
15
m/s
Á morgun
Austan 10-15 m/s við suðurströndina,
annars hægviðri.
Gildistími korta er um hádegi
0°
-3°
0°
-1°
-3°
Alicante
Aþena
Basel
15°
16°
5°
Berlín
Billund
Frankfurt
1°
-1°
0°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
-1°
-1°
-1°
Las Palmas
London
Mallorca
24°
4°
14°
New York
Orlando
Ósló
13°
27°
-11°
París
San Francisco
Stokkhólmur
3°
15°
-1°
3°
5
m/s
5°
3
m/s
2°
3
m/s
1°
6
m/s
3°
4
m/s
2°
6
m/s
-2°
6
m/s
3°
-1°
2°
-4°
-2°
MANNRÉTTINDI Við Tjörnina í Reykjavík í gær voru 150 skýjaluktir
tendraðar og sendar til himins. Með því var mannréttindabaráttunnar
í heiminum minnst, eins og víða annars staðar í heiminum á mannrétt-
indadegi Sameinuðu þjóðanna.
Það var Pólska félagið á Íslandi sem stóð fyrir viðburðinum í gær í
samvinnu við Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Jón Gnarr,
borgarstjóri Reykjavíkur, tendraði ljósið í fyrstu luktinni. Tilgang-
urinn var að lýsa yfir stuðningi við þá fjölmörgu sem berjast fyrir
mannréttindum hvarvetna í heiminum á degi hverjum, og sýna fórn-
arlömbum samhug. Allsherjarþing SÞ samþykkti Mannréttindayfir-
lýsingu sína á þessum degi árið 1948. - shá
Mannréttindabaráttunnar í heiminum minnst:
Ljósaluktir sendar til himins
VIÐ TJÖRNINA Fjöldi fólks tók þátt í viðburðinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lítil eyríki ósátt við
loftslagsráðstefnu
Ýmis lítil eyríki, sem stafar mikil hætta af loftslagsbreytingum, eru ósátt við
niðurstöður loftslagsráðstefnunnar í Doha. Samkomulagið verður til þess að
hitastigið hækkar um allt að fimm gráður, segir forsvarsmaður eyríkjanna.
KRÖFÐUST RÉTTLÆTIS Mótmælendur voru inni í ráðstefnuhöllinni um helgina, en
takmarkanir á frelsi mótmælendanna voru talsverðar í Katar. NORDICPHOTOS/AFP
Þeir sem koma í veg
fyrir þetta þurfa að hætta
að tala um hvernig líf
þeirra fólks verður og fara
að tala um hvort okkar
fólk mun lifa af.
Kieren Keke
utanríkisráðherra Nauru-eyja
BANDARÍKIN
Gerðu samkomulag
Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, hefur samið við Nafissatou
Diallo, sem kærði hann fyrir nauðgun.
Hún höfðaði einkamál gegn honum eftir
að sakamál var látið niður falla.