Fréttablaðið - 11.12.2012, Blaðsíða 8
Hólmsteinn Gauti Sigurðsson,
saksóknari í Vafningsmálinu svo-
nefnda, fór fram á fimm og hálfs
árs fangelsisdóm yfir Lárusi Weld-
ing, fyrrverandi forstjóra Glitnis,
þegar málið var flutt í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Hann krafðist
fimm ára dóms yfir Guðmundi
Hjaltasyni, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra fyrirtækjasviðs
bankans.
Réttarhöldunum lauk í gær eftir
munnlegan málflutning saksókn-
ara og verjendanna tveggja. Þau
stóðu samtals í þrjá og hálfan dag.
Hólmsteinn Gauti sagði í ræðu
sinni sannað að Lárus og Guð-
mundur hefðu tekið ákvörðun um
að lána Milestone jafnvirði tíu
milljarða króna í febrúar 2008.
Sú lánveiting hafi brotið gegn
reglum bankans og skapað gríðar-
lega hættu á miklu fjártjóni, sem
sannist meðal annars á því að enn
hafi ekkert fengist upp í lánið.
Verjendur andmæltu þessu í
ræðum sínum og sögðu alls ekkert
liggja fyrir um að Lárus og Guð-
mundur hefðu tekið ákvörðunina
um að lána Milestone. Þvert á móti
hefði ekki eitt einasta vitni borið á
þann veg.
Hólmsteinn rökstuddi refsikröfu
sína með vísan til Exeter-málsins
svokallaða, þar sem Jón Þorsteinn
Jónsson og Ragnar Z. Guðjónsson
fengu fjögurra og hálfs árs fang-
elsisdóm fyrir umboðssvik sem
námu einum tíunda af því sem um
er að tefla í Vafningsmálinu.
Verjendur sögðu málin hins
vegar ósambærileg, meðal annars
þar sem fyrir lægi að Lárus og
Guðmundur hafi ekki átt neinna
persónulegra hagsmuna að gæta
af láninu.
Hólmsteinn eyddi nokkru púðri í
að rökstyðja að Vafningur, sem átti
upphaflega að taka við láninu og
fékk það raunar eftir að það hafði
legið inni á reikningi Milestone
yfir helgi, hafi í raun verið hluti
af Milestone-samstæðunni.
Skúli Magnússon, einn þriggja
dómara málsins, greip þá fram í
fyrir honum og spurði hvaða máli
þetta skipti fyrst ekki væri ákært
fyrir Vafningslánið. „Ég vona að
við séum hér staddir í sama mál-
inu og ég sé ekki með vitlausa
ákæru,“ sagði Skúli.
Verjendurnir gagnrýndu rann-
sóknina harkalega, sögðu aðal-
rannsakendurna vanhæfa, málið
varla nema hálfrannsakað og að
búinn hefði verið til glæpur sem
aldrei hefði verið framinn.
Til stendur að kveða upp dóm í
málinu 28. desember, klukkan tvö.
| FRÉTTASKÝRING | 11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR8
RÉTTARHÖLD Í VAFNINGSMÁLI SÉRSTAKS SAKSÓKNARA
Með því að kaupa
FRIÐARLJÓSIÐ
styrkir þú hjálparstarf
og um leið verndaðan
vinnustað.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
1
02
97
5
LÁTUM
FRIÐARLJÓSIÐ
LÝSA UPP AÐVENTUNA
www.volkswagen.is
Volkswagen Crafter
Crafter fer létt með að flytja fyrirhafnarlaust
mjög þungan og fyrirferðarmikinn farm. Crafter
er sterkbyggður sendiferðabíll og er búinn
einstaklega sparneytnum dísilvélum með
allri nýjustu tækni frá Volkswagen. Crafter er
áreiðanlegur, sparneytinn og þrátt fyrir stærðina
er hann mjög þægilegur í akstri og umgengni.
Til afgreiðslu strax
Atvinnubílar
Crafter kostar aðeins frá
6.990.000 kr.
(5.569.721 kr. án vsk)*
Fyrir erfiðustu
verkefnin
3ja ára ábyrgð og allt
að 200.000 km akstur
Þungra dóma krafist
Saksóknari fer fram á fimm og hálfs árs dóm yfir Lárusi Welding vegna Vafnings-
málsins og fimm ár yfir Guðmundi Hjaltasyni. Dómur fellur innan þriggja vikna.
SEGJAST ALSAKLAUSIR Lárus Welding, Guðmundur Hjaltason og verjendateymi þeirra fullyrða að þeir hafi ekkert gert rangt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ítarlega var sagt frá málfl utn-
ingnum á Vísi.is í gær. Nánar má
fræðast um málið þar.
visir.is
Stígur
Helgason
stigur@frettabladid.is
Save the Children á Íslandi