Fréttablaðið - 11.12.2012, Page 10
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
6
7
5
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
6
7
5
J LAB NUS DESEMBER
Komdu við og kynntu þ r væntan og veglegan j lab nus
sem fylgir llum n jum Hyundai b lum desember
NEW THINKING.
NEW POSSIBILITIES.
www.hyundai.is
Opnunartími Hyundai Kauptúni 1
Opið frá kl. 07.45–18.00 alla virka daga og 10.00–16.00 á laugardögum.
Í neyðartilfellum er hægt að nýta sér 24ra tíma neyðarþjónustu varahlutaverslunar.
UPPLIFÐU N JA T MA MEÐ HYUNDAI
TAKMARKAÐUR AKSTUR
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílasala Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070Hyundai / BL ehf.
Kauptúni 1 – 210 Garðabæ – Sími: 575 1200
www.hyundai.is – www.facebook.com/hyundai.is
HYUNDAI i30
BENSÍN EÐA DÍSIL
Verð frá 3.290.000 kr.
HYUNDAI ix35
BENSÍN EÐA DÍSIL
Verð frá 5.890.000 kr.
*Takmarkað magn
Komdu við
og kynntu
þér vegleg
an
jólabónus
* með
nýjum bíl f
rá okkur!
JÓLABÓNU
S
SKIPULAGSMÁL „Nú í haust ræddu
menn um gjörbreyttar aðstæður
– allt annað líf, bæði hvað varðar
töflunotkun og ekki síst þar sem
litaða glerið heldur sólargeislum
að miklu leyti úti. Það hefur verið
okkur sérstaklega ánægjulegt að
svona vel tókst til,“ segir í umsögn
Lindu Rósar Michaelsdóttur, rekt-
ors Menntaskólans í Reykjavík,
til skipulags- og byggingasviðs
Reykjavíkurborgar um hinn nýja
glervegg skólans við Þingholts-
stræti 18.
Linda segir alla aðstöðu fyrir
framkvæmdirnar hafa verið erf-
iða bæði nemendum og kennurum.
„Illa gekk að nota töflur og skjá-
varpa ef sólin skein og ef gardín-
ur voru dregnar fyrir myndaðist
algjörlega óviðunandi hitamolla í
bæði kennslustofum og vinnustof-
um sem snúa út að Þingholtsstræt-
inu.“
Fréttablaðið greindi frá því
í haust að byggingarleyfi fyrir
umræddum framkvæmdum, sem
fela mestmegnis í sér uppsetningu
nýs gler- og álveggjar á austur- og
vesturhlið skólans, var afturkall-
að vegna gagnrýni íbúa í nágrenn-
inu. Veggurinn hafi virkað eins
og spegill sem varð til þess að
nágrannarnir hafi nánast horft
beint inn um glugga hver annars,
auk þess sem þeir voru „berskjald-
aðir gagnvart gangandi umferð“.
Ekkert grenndarmat var gert
á framkvæmdunum og var því
úrskurðað að endurnýja leyfisferl-
ið. Nú hefur svo verið gert.
Rektor óskar eftir því í umsögn
sinni að byggingarleyfið verði
samþykkt, þó hún taki það fram að
skipulagsmál á svæðinu séu í raun
ekki mál skólans.
Helgi Hjálmarsson skrifar
umsögn fyrir hönd hönnuða
veggjarins að fyrir liggi að tals-
verð speglun hafi verið af veggn-
um fyrir framkvæmdirnar og
ættu þetta því ekki að vera miklar
breytingar.
Umsókn um nýtt byggingarleyfi
var lögð fram þann 23. nóvember
síðastliðinn. sunna@frettabladid.is
Rektor segir spegla
bæta andrúmsloftið
Búið er að sækja um nýtt byggingarleyfi vegna glerveggs á austur- og vesturhlið
Menntaskólans í Reykjavík. Rektor segir breytingarnar bæta aðstöðu í skólanum
til muna. Leyfið var afturkallað í haust vegna óæskilegrar speglunar af veggnum.
SPEGLAVEGGURINN Rektor Menntaskólans í Reykjavík segir speglaglerið auka
gæði kennslunnar innandyra.
Illa gekk að nota töflur
og skjávarpa ef sólin skein
og ef gardínur voru dregnar
fyrir myndaðist algörlega
óviðunandi hitamolla.
Linda Rós Michaelsdóttir, rektor MR
Miður sín yfir símahrekk
1 ÁSTRALÍA Áströlsku útvarpsmennirnir, sem hringdu á spítalann sem Katrín hertogaynja dvaldi á í síðustu viku og þóttust vera Karl Bretaprins og Elísa-
bet drottning, hafa beðist afsökunar á uppátækinu. Hjúkrunarfræðingurinn
sem svaraði símtalinu frá þeim svipti sig að öllum líkindum lífi á föstudag, en
opinber dánarorsök hefur ekki enn verið gefin út. Útvarpsmennirnir Mel Greig
og Michael Christian komu fram í viðtölum í gær og sögðust miður sín yfir
málinu. „Það líður ekki sú mínúta sem við hugsum ekki um fjölskyldu hennar
og það sem þau hljóta að vera að ganga í gegnum,“ sagði Greig.
Bera kennsl á mann sem féll af himni
2 BRETLAND Lögregla í vesturhluta London hefur óskað eftir hjálp almenn-ings við að bera kennsl á mann sem fannst látinn á gangstétt í september.
Í fyrstu var talið að maðurinn hefði verið myrtur. Svo komst lögreglan að þeirri
niðurstöðu að hann hefði falið sig í hjólabúnaði flugvélar og fallið út þegar
hjólin voru sett niður fyrir lendingu á Heathrow. Hann hafði engin skilríki en
var með peninga frá Angóla í vasanum. Því er gengið út frá því að hann sé
þaðan, en ekkert hefur gengið að komast að því hver hann var.
Mandela enn á spítala
3 SUÐUR-AFRÍKA Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, er enn á spítala. Engar upplýsingar hafa
þó verið gefnar um hvað ami að hinum 94 ára gamla
Mandela.
Mandela hefur verið á spítala síðan á laugardag, en
miklar vangaveltur eru uppi um það hvað amar að honum
og hvers vegna engar upplýsingar eru veittar um ástand
hans. Málið var umfjöllunarefni leiðara í blöðum í gær.
Jacob Zuma, forseti landsins, hefur heimsótt Mandela á
spítalann og segir hann hafa það gott.
HEIMURINN
1
2
3