Fréttablaðið - 11.12.2012, Blaðsíða 12
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12
wowtravel.is
Verð á
mann frá: 12.990 kr.
á nýju ári
Innifalið er flug með sköttum.
Bókaðu á wow.is eða í síma 590 3000.
Köben
Kíktu í kaupstaðinn
Verð á mann
í tvíbýli, frá: 46.900 kr.
Innifalið er flug með sköttum, gisting í 2 nætur með
morgunverði á Wakeup Copenhagen.
Bókaðu á wowtravel.is eða í síma 590 3000.
Borgarferð
Alhliða ánægjuför
til Köben
Flug, gisting, hafmeyja og öl
Verð á mann
m.v. 2 fullorðna
og 1 barn, frá: 89.633 kr.
Innifalið er flug og gisting á Hotel Salzburgerhof með hálfu fæði.
Afslátturinn gildir á skíðapökkum í janúar 2013.
Bókanlegt á wowtravel@wowtravel.is
eða í síma 590 3000.
Skíðaferð
Brunaðu til Austurríkis
með alla fjölskylduna
50% afsláttur á flugi fyrir börnin
Tímabil: 7. jan. – 15. mars
8. – 10. febrúar
Gott færi
LOFORÐ
WOW
LÆGSTA VERÐIÐNÝJAR VÉLAROG BREIÐASTA
BROSIÐ
TÓMSTUNDIR Hestamenn deila hart
um ágæti þess að banna notkun
stangaméla með tunguboga. Þannig
eru líflegar umræður um málið og
önnur munnmein hesta á spjallvef
Hestafrétta.
Í nýlegri skýrslu Matvælastofn-
unar er lagt til að bregðast við
áverkum í munni keppnishesta með
því að banna slík mél. Skýrslan, sem
var birt í byrjun mánaðarins, tók til
skoðunar á keppnis- og sýningar-
hestum á Landsmóti hestamanna og
Íslandsmóti í hestaíþróttum á þessu
ári. Í ljós komu áverkar og erting í
húð í tannlausu bili í munni hesta
undan bitinu á mélið.
Sigurbjörn Bárðarson, hesta-
maður og knapi, segir að beita megi
öllum búnaði illa og þannig að valdi
skaða. „Hægt er að ganga of langt
í notkun á næstum öllum reiðbún-
aði. Veldur hver á heldur,“ segir
hann og telur að frekari rannsókna
sé þörf. „Ekkert hefur verið kann-
að hjá útreiðarmönnum hvort þessir
áverkar séu almennir. Þetta þarf að
kanna betur, en um leið full ástæða
til að gefa gaum niðurstöðunni í
tengslum við þetta mótahald.“
Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir
hrossasjúkdóma hjá Matvælastofn-
un og höfundur skýrslunnar sem
út kom í byrjun mánaðarins, telur
að fullyrðingar um að tunguboga-
mél meiði ekki nema í keppni séu
ágiskanir. „Ég vil láta banna þetta
í keppni því þar tel ég mesta hættu
á að þessi mél skaði hesta. En ég tel
að það geti líka gerst í almennri reið
því allar sömu forsendur eru fyrir
hendi. Menn geta sett sama þrýsting
á hest í útreiðum og gert er í keppni.
Í öllu falli þarf að nota þetta mjög
varlega,“ segir hún.
Með því að banna umrædd mél
gæti dregið mjög hratt úr meiðslum
á kjálkabeini hesta, en það segir Sig-
ríður bara einn þeirra þátta sem séu
til skoðunar til að bæta munnheilsu
hesta. Umræðan fari fram á vett-
vangi velferðarnefndar Landssam-
bands hestamannafélaga og innan
félagasamtaka.
Fram kemur á vef Matvælastofn-
unar að velferðarnefndin hafi nú
lagt til að stangir með tunguboga
verði bannaðar í tvö ár „og þá metið
aftur hvort áverkar á tannlausa
bilinu hafi minnkað“.
Aukin umræða um velferð hesta
og endurskoðun á notkun á búnaði
og aðbúnaði í keppni vonar Sigríður
hins vegar að verði til góðs. „Ég trúi
ekki öðru en að þokist í rétta átt,“
segir hún. olikr@frettabladid.is
SIGRÍÐUR
BJÖRNSDÓTTIR
SIGURBJÖRN
BÁRÐARSON
Hægt er að misnota
nær allan reiðbúnað
Hestamenn rífast um ágæti tannröspunar og notkun méla með tunguboga. Ný
rannsókn bendir til að mélin meiði. Hestamenn segja frekari rannsókna þörf.
Skýrsluhöfundur vonar að mál þokist í rétta átt. Taka þurfi á undirliggjandi vanda.
Hestamenn ræða einnig í sínum hópi hvort verjandi sé að raspa tennur hesta,
eins og hér hefur tíðkast áratugum saman. Telja sumir að með þessu séu hross
kvalin og framkölluð í þeim tannpína. Aðrir segja að tannmein og hvassar
brúnir tanna þurfi að raspa til þess að hross þrífist betur.
Sigurbjörn Bárðarson segir að í sumum tilvikum sé röspun nauðsynleg
en vera kunni að fákunnátta hafi orðið til þess að einstaka hafi farið offari í
röspun. „Þetta kallar frekar á upplýsingar og fræðslu um málið,“ segir hann.
Sigríður Björnsdóttir telur aftur á móti ljóst að ávinningur tannröspunar
sem fyrirbyggjandi aðferðar skili sér ekki vel. Séu hestar hins vegar með undir-
liggjandi vanda í tönnum þurfi að skoða það sérstaklega. „Ég bið menn bara
að vanda sig og sjá tækifærin í dýpri greiningum en festast ekki í röspuninni.“
Skiptar skoðanir um tannröspun
ÞÚ GETUR GERT KRAFTAVERK Í DAG
Með hreinu vatni g efur þú betri heilsu, menntun og bjarta framtíð.
Þú getur hjálpað núna með því að
greiða valgreiðslu í heimabanka
Einnig:
frjálst framlag á framlag.is
gjafabréf á gjofsemgefur.is
907 2003 styrktarnúmer (2.500 kr.)
söfnunarreikningur:
0334-26-50886, kt. 450670-0499
GEFÐU GJÖF SEM
SKIPTIR MÁLI
PI
PA
R\
TB
W
A
-
SÍ
A
-
12
32
39