Fréttablaðið - 11.12.2012, Síða 14
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 14
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
7
5
3
NEW THINKING.
NEW POSSIBILITIES. TAKMARKAÐUR AKSTUR
E
N
N
E
M
M
N
E
/
S
ÍA
/
S
N
M
5
5
7
5
3
HYUNDAI SANTA FE
JEPPI RSINS SLANDI
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílasala Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070Hyundai / BL ehf.
Kauptúni 1 – 210 Garðabæ – Sími: 575 1200
www.hyundai.is – www.facebook.com/hyundai.is
Opnunartími Hyundai Kauptúni 1
Opið frá kl. 07.45–18.00 alla virka daga og 10.00–16.00 á laugardögum.
Í neyðartilfellum er hægt að nýta sér 24ra tíma neyðarþjónustu varahlutaverslunar.
Bílablaðamenn Íslands hafa valið Hyundai Santa Fe jeppa ársins 2012 fram yfir alla aðra
jeppa á markaðinum. Komdu í heimsókn til okkar strax í dag og fáðu að prufukeyra glænýjan
Santa Fe. Við erum með heitt á könnunni og gómsætar pipakökur.
Í desember fylgir mjög veglegur jólabónus með öllum nýjum Hyundai.
GLÆSILEG VIÐURKENNING!
Um fimm þúsund félög, sem hafa
ekki skilað ársreikningi vegna
ársins 2011, fengu send boðunar-
bréf vegna þeirra vanskila um
síðustu mánaðamót. Bregðist
forsvarsmenn félaga ekki við og
skila ársreikningum þeirra getur
embætti ríkisskattstjóra lagt á
þau sektir. Samkvæmt upplýs-
ingum þaðan voru um 1.500 félög
sektuð vegna vanskila á ársreikn-
ingum ársins 2010 og um 3.000
vegna ársins 2009.
Í frumvarpi um breytingar á
lögum um ársreikninga, sem tekið
var til annarrar umræðu í gær,
eru lagðar fram ýmsar breyting-
ar. Á meðal þeirra er sú að upp-
lýst verði um tíu stærstu hlut-
hafa hvers félags og eignarhlut
þeirra í ársreikningum, en í dag
þarf einungis að tilgreina þá aðila
sem eiga meira en tíu prósenta
hlut. Í nefndaráliti efnahags- og
viðskiptanefndar kemur einnig
fram að Fyrirtækjaskrá ríkis-
skattstjóra (RSK) hefði lagt það
til, í minnisblaði til nefndarinnar,
að „undir gildissvið laga um árs-
reikninga yrðu felld samlagsfélög
þar sem ábyrgðaraðilar eru félög
með takmarkaða ábyrgð.“ Ástæð-
ur þessa eru þær að mjög hefur
færst í aukana á Íslandi að fyrir-
tæki breyti félagaformi sínu yfir
í samlagsfélag. Þau eru nú um
1.500 og fjölgaði um 255 á þessu
ári. Slík félög þurfa ekki að skila
ársreikningum nema þegar allir
eigendur þeirra eru lögaðilar. Í
minnisblaði RSK segir að í mörg-
um tilfellum hafi sú leið verið
farin að „félag með takmarkaða
ábyrgð er látið bera persónulega
ábyrgð á öllum skuldbindingum
samlagsfélagsins“. Með þeim
hætti sé því í raun um takmark-
aða ábyrgð að ræða.
Úrræðin gegn kennitöluflakki
Í nefndarálitinu er einnig fjallað
um að auka þurfi eftirlitsúrræði
embættis ríkisskattstjóra með
skilum á ársreikningum. Meðal
annars er lagt til að embættið fái
heimild til að beita stjórnarmenn
þeirra félaga sem ekki skila inn
ársreikningum fésektum eða
afskrá félögin með þeim afleið-
ingum að skuldir þeirra færast
yfir á eigendur þeirra. Í dag er
hægt að sekta félögin sjálf fyrir
að skila ekki inn ársreikningnum
en ekki stjórnarmenn eða eigend-
ur. Þá er einnig vonast til þess að
úrræðin muni gagnast vel í bar-
áttunni gegn kennitöluflakki.
Vanskil dragi úr tiltrú á atvinnulífið
Viðskiptaráð Íslands lagði á það
áherslu við meðferð málsins fyrir
nefndinni að hún myndi kalla eftir
hugmyndum frá ríkisskattstjóra
um hert viðurlög vegna vanskila
á ársreikningum. Í nefndarálitinu
segir að Viðskiptaráð telji „að
umfangsmikil vanskil ársreikn-
inga dragi úr tiltrú á atvinnulíf-
ið, bæði hér heima og erlendis, og
hafi neikvæð áhrif á viðskipti, við-
skiptakostnað og viðskiptakjör“.
thordur@frettabladid.is
Fimm þúsund bréf vegna vanskila
Um fimm þúsund félög hafa enn ekki skilað inn ársreikningi. Skil hafa batnað og færri félög voru sektuð í ár en í fyrra. Fyrirhugaðar breyt-
ingar á lögum um ársreikninga munu auka gagnsæi og fjölga úrræðum eftirlitsaðila. Tilgreina verður tíu stærstu eigendur allra félaga.
BREYTINGAR Ríkisskattstjóri leggur til að breytingar verði gerðar á skilum samlagsfélaga á ársreikningum og að tíu stærstu
eigendur allra félaga verði tilgreindir í ársreikningi þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Skúli Jónsson, sviðsstjóri skráa-
sviðs Ríkisskattstjóra, segist hafa
upplifað mikla viðhorfsbreytingu
til þess að halda almennilega
ársreikningaskrá hérlendis. „Þessi
viðhorfsbreyting kom í kjölfar
þess að innan viðskiptalífsins
áttuðu menn sig á því að þeir
voru ekki að fá greiðslutryggingar
erlendis þar sem var litið á Ísland
sem einhvers konar platþjóð-
félag. Eitt af því sem er nauðsyn-
legt fyrir íslenskt viðskiptalíf er
að hafa góða ársreikningaskrá.
Árið 2010 hófum við kerfis-
bundið að sekta þá sem voru
ekki að skila ársreikningum.
Við höfum líka birt opinberlega
upplýsingar um þá sem hafa ekki
verið að skila og fundið að félög
vilja ekki vera á þessum lista.
Þetta er því allt að breytast mjög
í rétta átt. Skil á reikningum eru
að batna og þeir berast fyrr en
áður.“
Upplifir
viðhorfsbreytingu