Fréttablaðið - 11.12.2012, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 11. desember 2012 | SKOÐUN | 17
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
Ég skrifaði grein nýverið um
framtíð heilbrigðisþjónustu hér-
lendis og velti vöngum yfir því
hvað væri skynsamlegt að athuga
í því samhengi. Þessi grein er
áætlað framhald hennar með inn-
leggi í umræðuna sem hefur verið
undanfarið. Allar götur síðan ég
kom heim úr námi árið 1999 hefur
verið býsna neikvæð umræða um
heilbrigðisþjónustu. Þá þykir mér
hún hafa aukist til muna síðast-
liðin ár eða frá kreppu og má lík-
lega setja almenna vanlíðan og
öryggisleysi samfara umfjöllun
um skuldavanda heimila, fyrir-
tækja og ríkis að einhverju leyti í
samhengi við það. Ítrekaðar frá-
sagnir eru af sparnaði, lélegum
tækjakosti og húsnæði, slælegum
aðbúnaði starfsmanna, lélegum
launum og svona mætti lengi
telja. Það sárvantar að ræða hið
góða og benda á jákvæða hluti
sem eru að gerast alla daga líka
í heilbrigðisþjónustunni. Þá má
ekki gleyma að reikna þjóðhags-
leg áhrif af góðri heilbrigðis-
þjónustu og fara að líta á það sem
hagnað fremur en endalausan
kostnað eins og okkur hættir til
að gera.
Við megum ekki gleyma því að
þrátt fyrir allt erum við smáþjóð
sem ber sig saman við þær allra
stærstu og við krefjumst almennt
þess að lífsgæði okkar séu sam-
bærileg á við þær og helst betri.
Ég vil reyndar meina að á margan
hátt séum við öfundsverð, en auð-
vitað er margt sem betur mætti
fara. Í þessu ljósi er rétt að átta
sig á því að við getum ekki keppt
í öllum greinum læknisfræðinnar
sökum skorts á fjölda sjúklinga
til að viðhalda færni og þjálfun
fyrir utan þá augljósu staðreynd
að við eigum ekki þann tækja-
kost sem til þarf, hvað þá húsnæði
sem stenst kröfur nútímans. Við
því þarf að bregðast með stefnu-
mörkun.
Fagfólk á heimsmælikvarða
Ég tel að við eigum fagfólk á
heimsmælikvarða, þá sérstaklega
þegar kemur að ósérhlífni, sam-
stöðu og þeim séríslenska eigin-
leika að láta hlutina „reddast“
eða ganga upp. Það er nefnilega
þess vegna sem heilbrigðiskerfið
er jafn gott og raun ber vitni. Við
heilbrigðisstarfsmenn sættum
okkur ekki við annað en að leggja
okkur fram um að ná sem best-
um árangri hverju sinni, en það
læðist óneitanlega sá grunur að
manni að verið sé að bregða fæti
fyrir okkur á stundum með mis-
gáfulegum ákvörðunum. Samráð
er af skornum skammti og alþing-
ismenn, meira að segja fyrrum
velferðarráðherra, standa í niður-
skurði en leggja á sama tíma til
að skoðuð verði niðurgreiðsla
til græðara, einfaldlega vegna
persónulegrar reynslu einhvers
þeirra. Allt þetta þegar ekki einu
sinni er búið að tryggja niður-
greiðslu hefbundinna faga eins
og tannlækninga eða sálfræði-
þjónustu.
En hvernig ætti heilbrigðis-
þjónustan að vera? Flest erum
við sammála því að heilsugæslan
ætti að vera fyrsti viðkomustaður
þess sem leitar eftir þjónustu og
að hún geti þá sinnt þeim þörfum
sem skilgreindar eru af not-
endum hennar. Hingað til hefur
slík skilgreining ekki verið sett
fram af hálfu notenda svo mér sé
kunnugt um heldur hafa fagað-
ilar og stjórnendur lagt línurnar
nær eingöngu og liggur vandi
„þjónustuveitandans“ mögulega
í þeirri þversögn að telja sig vita
hvað notandinn vill en leita ekki
eftir slíkum upplýsingum. Við
eigum einnig að skoða hverjar
þarfir fagaðilanna eru og reyna
að samræma þessi sjónarmið líkt
og gerist í öllum rekstri. Sömu
nálgun þarf varðandi sjúkrahús-
þjónustu og alla stoðþjónustu svo
hægt sé að átta sig á samhengi
hlutanna.
Sjúklingar ættu að eiga það
sem kalla mætti „þjónustufull-
trúa“ sem mætti jafnvel vera raf-
rænn þar sem þeir gætu nálgast
sínar upplýsingar, tímabókanir,
geymt lyfjakort, helstu greining-
ar, rannsóknarsvör, lækna, stað-
setningar, símanúmer og upp-
lýsingar um þær forvarnir sem
viðkomandi ætti að horfa til sam-
kvæmt klínískum leiðbeiningum.
Allt þetta krefst auðvitað þess að
við höfum samtengda rafræna
sjúkraskrá, en allar þessar upp-
lýsingar liggja nú þegar fyrir.
Einungis þarf að leysa hvernig
á að birta þær skjólstæðingnum
sjálfum eða fulltrúa hans.
Samræma þarf sjúkraskrá
Við þurfum að auka afköst á
sama tíma og við verðum að
tryggja gæðin, það gerist með
hvatakerfum, góðu eftirliti og
tölvukerfi sem uppfyllir vænting-
ar. Nú er mikið rætt um nauðsyn
þess að byggja nýtt sjúkrahús
sem kostar milljarðatugi og er
líklega góð fjárfesting til lengri
tíma litið, en við höfum ekki enn
náð því að samræma sjúkraskrá
sem ég myndi setja í algeran for-
gang umfram allt annað í heil-
brigðisþjónustunni í dag vegna
þess tiltölulega litla kostnaðar
sem því fylgir og þess mikla hag-
ræðis og framtíðartækifæra sem
það gefur okkur.
Þá þarf að leysa mönnunar-
vanda landsbyggðarinnar þar
sem ekki hafa fengist læknar til
starfa á sumum stöðum nema
í gegnum afleysingar sem er
dýrari kostur og verri samfella
þjónustu. Mögulega væri slíkt
gert með því að taka aftur upp
héraðsskyldu eins og tíðkaðist
forðum. Ég tel þó betra að veita
þjónustuna á afmörkuðum svæð-
um með vaktarúllu bráðatækna
(paramedics) og vel þjálfuðum
hjúkrunarfræðingi (nurse practi-
cioner) með stuðningi miðlægr-
ar fjarskiptaþjónustu þar sem
læknar væru til ráðgjafar allan
sólarhringinn jafnvel með mynd-
símatækni. Slík eining þar sem
símaþjónusta fyrir allt landið
væri samhæfð og tímabókanir
jafnvel líka myndi skila mik-
illi hagræðingu og yfirsýn. Þá
þyrfti að efla upplýsingagjöf til
almennings og veita leiðbeining-
ar um það hvernig á að nálgast
heilbrigðisþjónustu með mið-
lægri vefsíðu, í gegnum símaráð-
gjöf, auglýsingar og upplýsinga-
bækling á hvert heimili. Þá tel
ég nauðsynlegt að gera almenn-
ingi kleift að átta sig á kostnaði
vegna veittrar heilbrigðisþjón-
ustu þó greiðsluþátttaka aukist
ekki endilega. Það eykur virð-
ingu fyrir þjónustunni og gerir
hana að lokum skilvirkari. Dæmi
um þetta er að kostnaður vegna
heilsugæslu og sjúkrahússþjón-
ustu er að mestu falinn og kemur
ekki fram á reikningi skjól-
stæðings, en hann er sýnilegur
á reikningum sérfræðilækna á
stofu, þessu þarf að breyta.
Samræma þarf betur þjón-
ustu sérfræðilækna, sjúkra-
húsa, heilsugæslu, sálfræðinga,
sjúkraþjálfara og annarra fag-
stétta í heilbrigðisþjónustu með
einu upplýsingakerfi, þannig
sparast miklar fjárhæðir, upp-
lýsingar verða miðlægar, með-
ferð batnar og öryggi sjúklinga
eykst til muna sem hlýtur að vera
meginmarkmiðið í því skyni að
veita góða og skilvirka heilbrigð-
isþjónustu.
Tillögur að skipulagi heilbrigðisþjónustu á Íslandi
Samræma þarf
betur þjónustu sér-
fræðilækna, sjúkrahúsa,
heilsugæslu, sálfræðinga,
sjúkraþjálfara og annarra
fagstétta í heilbrigðisþjón-
ustu með einu upplýsinga-
kerfi, þannig sparast miklar
fjárhæðir, upplýsingar verða
miðlægar, meðferð batnar
og öryggi sjúklinga eykst.
VÖRUR SEM EIGA
HEIMA Í ÞÍNU ELDHÚSI
Fæst í verslunum Hagkaups og Bónus