Fréttablaðið - 11.12.2012, Síða 21
ÞRIÐJUDAGUR 11. desember 2012 | SKOÐUN | 21
Það hefur ekki ríkt nein
lognmolla í kringum
kirkjuna á undanförn-
um misserum. Reglulega
birtast í fjölmiðlum frétt-
ir af einstaklingum innan
kirkjunnar sem hafa mis-
notað vald sitt með kúgun
og ofbeldi. Jafnvel æðstu
ráðamenn hafa orðið upp-
vísir að slíku, bæði innan
íslensku þjóðkirkjunnar
og kaþólsku kirkjunnar.
Og þetta á ekki bara við
hér á landi, heldur víða
um heim. Alls staðar rísa upp
einstaklingar sem hafa kjark til
að segja sögu sína, sögu af því
hvernig níðst var á þeim á stöð-
um sem áttu að veita öruggt skjól.
Og þetta gerist ekki bara innan
kirkjunnar, heldur víða í félaga-
samtökum, t.d. í íþróttahreyfing-
unni og skátahreyfingunni.
Vonbrigði með kirkjuna
Margir hafa orðið fyrir von-
brigðum með kirkjuna og kristna
trú. Ein vinkona mín sagði við
mig í gær: „Manni finnst það
ennþá verra þegar svona gerist í
kirkjum, maður á að geta treyst
því að þar sé allt í lagi.“ Og það
er að sjálfsögðu alveg rétt, kristin
kirkja ber ábyrgð á því að veita
öllum skjól sem til hennar leita,
þar eiga allir að finna sig örugga.
En kirkjan hefur því miður vakn-
að upp við þann vonda draum á
síðustu árum að þar, eins og ann-
ars staðar hafa menn komist til
valda og áhrifa sem hafa misnot-
að stöðu sína og beitt konur og
börn ofbeldi. Þetta er staðreynd
sem kirkjan hefur þurft að glíma
við, og hefur sú glíma oft á tíðum
verið mjög sársaukafull.
Skila þarf sakavottorði
En nauðsynleg er hún og ég tel að
hún hafi skilað sterkara kirkju-
samfélagi sem horfst hefur í augu
við raunveruleikann í auðmýkt og
gert ýmislegt til að hindra það að
kynbundið ofbeldi eigi sér stað í
starfi kirkjunnar. Íslenska þjóð-
kirkjan hefur gripið til ýmissa
ráðstafana. Öll þau sem sækj-
ast eftir að starfa með börnum
og unglingum þurfa að skila
sakavottorði, fagráð um með-
ferð kynferðisbrota er starfandi
innan kirkjunnar og hefur orðið
að fyrirmynd varðandi slíkt starf,
auk þess er kirkjan aðili að fram-
kvæmdaáætlun Lútherska heims-
sambandsins um að vinna gegn
kynbundnu ofbeldi.
Ofbeldi á hvergi að líðast
En síðast en ekki síst verður það
að koma skýrt fram í allri boðun
kirkjunnar, að sem lærisveinar
Jesú Krists verðum við alltaf að
taka okkur stöðu með þeim sem
þurfa að þola hvers konar ofbeldi
og kúgun.
Það er óásættanlegt að gefa
afslátt af þeirri afstöðu. Ofbeldi
er synd og á hvergi að líðast, það
er alveg skýrt. Kirkjan mótmæl-
ir því hvers konar kynbundnu
ofbeldi og fylgir þar fordæmi
Jesú Krists, sem kom fram við
konur sem jafningja, af virðingu
og kærleika, og sem leyfði börn-
unum að koma til sín.
Kirkjan mótmælir
kynbundnu ofbeldi!
KYNBUNDIÐ
OFBELDI
Arna Ýrr
Sigurðardóttir
prestur í
Glerárkirkju.
➜ Íslenska þjóðkirkj-
an hefur gripið til
ýmissa ráðstafana. Öll
þau sem sækjast eftir
að starfa með börn-
um og ungling um
þurfa að skila saka-
vottorði, fagráð um
meðferð kynferðis-
brota er starfandi
innan kirkjunnar…
LAMBAKJOT.IS
Gljáð hátíðarlambmeð pistasíuhnetum, hunangi, ananas og rauðum perlumSkerið gróft munstur í lærið í líkingu við taflborð. Nuddið með salti og pipar. Bakið við 180 °C í 20 mín. Takið lærið út og látið standa í 15-20 mín. Saxið pistasíuhnetur (ekki of smátt). Sjóðið vatn og hunang í potti ásamt kryddi og ananas. Setjið pistasíur og sjávarsalt útí í lokin. Dreifið helmingnum ofan á lærið og bakið lærið áfram í 30 mín. eða þar til kjarnhiti er orðinn 58-61°. Leyfið lærinu að hvíla í minnst 10 mín. Smyrjið svo með afganginum af vökvanum og berið fram.Eplaturn á blöðrukáli (1 turn á mann)Skerið toppinn af epli, kjarnhreinsið og skerið restina í þrjár til fjórar sneiðar og steikið í smjöri og smá sykri. Blandið saman rjómaosti, piparrót, hunangi og saxaðri myntu og smyrjið á 3 eplasneiðar. Leggið hangikjöt á milli og raðið upp, efst kemur eplalokið með stöngli. Einnig má setja salat með.Skerið blöðrukálið hringlaga og sjóðið í saltvatni í 3 mín. Snöggkælið og hitið svo upp með góðri olíu. TrönuberjasósaSjóðið niður safa og vín með kanilstöng þar til 1/3 er eftir af vökvanum, bætið kjötsoði við og sjóðið áfram þar til góðu bragði er náð.Bætið trönuberjunum í sósuna rétt áður en borið er fram. Sjóðið ekki.
FYRIR 10-12 MANNS2 lambalæri
4 dl hunang, 4 dl vatn200g pistasíuhneturkrydd á hnífsoddi: Malaðar kardímommur, kanill, pipar, malað og ristað kúmen, karrí, 10 msk hakkaður eða saxaður ananas, 1 msk sjávarsalt,1 msk heill rósapipar (rauðar perlur)Eplaturn á blöðrukáli12 smá epli, hrátt hangikjöt 2-3 sneiðar í hvert epli, 400 g rjóma-ostur, 3-4 greinar fersk mynta,2 msk rifin piparrót, 2 msk hunang,smjör, sykur og blöðrukál
Trönuberjasósa1 l trönuberjasafi, kanilstöng, 1 l kjötsoð, 2 dl rauðvín, 100 g trönuber