Fréttablaðið - 11.12.2012, Blaðsíða 23
BRUSCHETTA
Ítölsk bruschetta eða sneið af grilluðu snittubrauði
með grófhökkuðum tómötum, hvítlauk, olíu, fersku
basil, salti og pipar er frábært nasl, sæki hungrið að.
Raðið brauðsneiðunum á ofnplötu og grillið stutta
stund. Smyrjið brauðið með hvítlauksrifi og setjið
restina yfir.
Vinsældir snjóbrettaíþróttarinnar hafa aukist mikið hér á landi undanfarin ár. Nú, þegar búið
er að opna helstu skíðasvæði lands-
ins, fyllast brekkurnar af skrautlega
klæddum snjóbrettaköppum í bland
við skíðamenn og sleðakríli. Linda
Björk Sumarliðadóttir, formaður
Brettafélags Íslands, segir snjóbretta-
íþróttina vera tilvalið fjölskyldusport
sem henti fólki á öllum aldri. „Það
hefur verið mikil gróska í snjóbretta-
íþróttinni, sérstaklega undanfarin tvö
ár. Það er erfitt að benda á einhverja
sérstaka skýringarþætti en vinsældir
snjóbretta og reyndar líka hjólabretta
koma oft í bylgjum. Auðvitað má rekja
mikinn áhuga barna og unglinga hér
á landi til velgengni snjóbrettamann-
anna Halldórs og Eiríks Helgasona og
Gulla Guðmundssonar.“
Til að geta stundað íþróttina þarf
bretti, festingar og skó en Linda segir
hjálminn líka teljast til hálfgerðrar
skyldueignar. „Flestir ættu síðan að
komast af með góðan útivistarfatnað
til að byrja með. Kostnaður við
þennan byrjendapakka er mjög mis-
jafn eftir merkjum en getur hlaupið á
100-150.000 krónum. Þó er hægt að fá
mun ódýrari pakka ef ódýrari merkin
eru keypt en þá geta gæðin verið
síðri. Ef ég ætti að ráðleggja byrj-
endum um val á bretti mundi ég fyrst
og fremst stinga upp á góðu alhliða
bretti sem passar fyrir allar aðstæður,
hvort sem stefnan er tekinn á stökk,
frjálst rennsli eða götusport. Svo er
líka hægt að kaupa notuð bretti og
fylgihluti.“
Helstu snjóbrettasvæðin hér á landi
að sögn Lindu eru Bláfjöll, Siglufjörður
og Hlíðarfjall. „Svo er auðvitað upplagt
fyrir byrjendur að fara bara út í næstu
brekku og æfa sig. Sjálf byrjaði ég
þannig og bjó til pínulítinn stökkpall.
Þetta er líka einn stærsti kostur snjó-
brettaiðkunar, maður kemst af með
mjög litla aðstöðu ef maður vill fara út
að leika sér.“
ÚT AÐ LEIKA Í SNJÓNUM
VETRARÍÞRÓTTIR Snjóbretti eru vinsæl hjá fólki á öllum aldri. Auðvelt er að
stíga fyrstu skrefin í næstu brekku í hverfinu.
ÚTIVERA
Linda Björk Sumarliða-
dóttir, formaður Bretta-
félags Íslands.
MYND/ÚR EINKASAFNI
FJÖLSKYLDUSPORT
Snjóbrettaíþróttin er
fyrir fólk á öllum aldri.
MYNDIR/ANTON OG ÚR EINKA-
SAFNI
VÁ!
jólaafsláttur
af nýjum vörum
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870
Opið mán.-fös. kl. 11.00-18.00, lau. 11.00-15.00 • www.friendtex.is • praxis.is • soo.dk
Tískufötin
færðu hjá okkur
Stuðnin
gs
stöngin
Stuðningsstöngin er hjálpar- og öryggistæki sem auðveldar fólki að vera virkt og athafnasamt við daglegt líf án þess að þurfa að reiða sig
á aðra. Margir Iðjuþjálfarar, sjúkraþjálfarar og læknar hafa mælt með stuðningsstöngunum fyrir sína skjólstæðinga.
Stuðningsstangirnar hafa fengið verðlaun fyrir notagildi, öryggi og hönnun á alþjóðlegum hjálpartækjasýningum í USA.
Yfir 500
0 noten
dur
á Ísland
i síðan
1999
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
Höfuðljós
Öflugt höfuðljós fyrir útivistarfólk
Verð: 14.450 kr.
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is