Fréttablaðið - 11.12.2012, Blaðsíða 32
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 28
➜ Skemmst er að segja frá því að diskurinn er frábær. Kristinn
syngur af innlifun, röddin er unaðslega mjúk og hljómmikil, túlk-
unin einstaklega breið og litrík. Ekki er Víkingur síðri.
MENNING
„Vivaldi er flottur. Konsertarnir
hans eiga alltaf rétt á sér og verða
aldrei þreytandi,“ segir Hlíf Sig-
urjónsdóttir, ein níumenninganna
sem skipa strengjasveitina Spic-
cato sem ætlar að spila L‘Estro
Armonico eftir Antonio Vivaldi
á tvennum tónleikum í vetur, sex
þá fyrstu í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar í kvöld, 11. desember
og þá síðari í Neskirkju 23. apríl
2013.
L‘Estro Armonico – Harmonísk-
ar hugljómanir – er sem sagt safn
tólf konserta fyrir fiðlur. „Vivaldi
samdi þá árið 1711 og þeir settu
hann á stall meðal bestu tónskálda
samtímans, að sögn Hlífar sem
segir þá hafa verið nefnda sem
áhrifamestu tónsmíðar 18. aldar-
innar. Strengjasveitina Spiccato
skipa auk Hlífar þau Ágústa María
Jónsdóttir, Gunnhildur Daðadótt-
ir, Martin Frewer, Sarah Buckley,
Sesselja Halldórsdóttir, Ólöf Sig-
ursveinsdóttir, Ólafur Sigurjóns-
son og Richard Korn. Spurð hvort
þessi sveit hafi verið til lengi svar-
ar Hlíf: „Sem band undir nafninu
Spiccato, nei, nafnið var eigin-
lega sett á þennan hóp í tilefni
tónleikanna en kjarninn í sveit-
inni hefur verið að spila saman í
nokkur ár og blandast öðrum koll-
egum af og til. Menn vinna saman
í því sem ástríðan hvetur þá til að
gera. Þetta eru alltaf smá samn-
ingaviðræður: Hvað langar þig að
spila? Hvað eigum við að spila?
Hvað segirðu um þetta? Eigin-
lega eru þessir tónleikar barnið
hans Martins Frewer. Við Mart-
in höfum verið að vinna talsvert
saman að útgáfu geisladisks sem
er nýkominn í verslanir og er gef-
inn líka út í Bandaríkjunum. Það
var meiriháttar sigur að fá það
í gegn, því þá erum við komin á
stóran markað.
Þessir íslensku dúóar á diskun-
um eru allt 20. og 21. aldar tónverk
og þegar þeirri spilamennsku lauk
sagði hann. „Heyrðu, mig langar
svo að spila konserta eftir Vivaldi,
mundir þú vilja vera með?“ Ég
sagði bara: „Já, auðvitað, það væri
æðislegt,“ og hvatti hann áfram og
svo fórum við að safna liði. Það er
þessi músík sem heillar, hún er
bara svo yndisleg.“ gun@frettabladid.is
Vinna saman í því sem
ástríðan hvetur þá til að gera
L‘Estro Armonico – Harmonískar hugljómanir er heiti tónleika í Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar á Laugarnestanga í kvöld sem hefj ast klukkan 19.30. Þar eru á
ferðinni konsertar eft ir Vivaldi sem strengjasveitin Spiccato fl ytur.
SPICCATO Nafnið var sett á hópinn nýlega þegar hann fór að æfa konserta Vivaldis sem verða leiknir að hluta til í kvöld og að
hluta til í apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BÆKUR ★★★ ★★
Stekk
Sigurbjörg Þrastardóttir
JPV ÚTGÁFA 2012
Alexandra Flask býr
í Barcelona og vinnur
hlutastarf á nuddstofu.
Í upphafi bókarinnar
Stekk er hún nýflutt
í íbúð á fjórðu hæð
vegna þess að hún hefur einlæg
áform um að stökkva fram af svöl-
unum. Hún undirbýr stökkið vand-
lega, les sér til um áverka og reikn-
ar út mögulegan skaða við fallið.
Fljótlega fær lesandinn að vita
að ástæða þess að hin þrítuga Alex-
andra er búin að fá nóg af því lífi
sem hún lifir er sú að hún syrg-
ir Eder, mann sem hún stóð í plat-
ónsku ástarsambandi við, en hann
hefur látist úr hvítblæði. Og það er
snemma ljóst að áform hennar eru
ekki að fyrirfara sér, heldur skaða
líkama sinn alvarlega: „Þess vegna
stekk ég. Eder, heyrirðu það? Til
þess að taka út fulla refsingu, til
þess að ná fullkominni stjórn. Því að
hér eftir þarf ég að hafa svo ræki-
lega fyrir sérhverri hreyfingu að
ég mun aldrei gera neitt sem ég sé
eftir …“ (19)
Stekk fjallar um sorg og missi,
sem aðalpersónan tekst á við með
þessum frumlega hætti. Eftir dauða
Eders stendur Alexandra nefnilega
frammi fyrir ýmsum siðferðis-
spurningum sem hún ræður illa við,
en „lífsháskinn gerir mikið gagn,
hann gerir lítið úr hversdagslegum
ónotum.“ (144)
Í sögunni er gríðarmikil áhersla
lögð á líkamann, takmarkanir hans
og sköddun sem hann
getur orðið fyrir. Líkam-
anum er enn fremur lýst
sem gagnslausu kjöti, en
það endurspeglar vita-
skuld hugarástand aðal-
persónunnar. Alexandra
hugsar linnulítið um blóð
og beinmerg, sprungin
höfuð og hráblaut innyfli.
„Rifin lifur, skaðaðir háls-
liðir, samfallin lungu …“.
(12) Þetta verður vitaskuld
fremur óhugnanlegt á köfl-
um, en sérkennilega heillandi.
Stekk er fjölþjóðleg bók, ef svo
má að orði komast. Aðalsögupers-
ónan er hálfur Breti og hálfur
Íslendingur, dvelur á sögutímanum
í tveimur erlendum stórborgum og
umgengst fólk af ýmsu þjóðerni.
Aðrar persónur en Alexandra sem
eitthvað kveður að í sögunni eru
vinkonan Livia, sem hún nefnir Líf,
Sanders, viðhald Lífar, Eder, sem
er látinn, hin breska amma Skinka
(kölluð það vegna þess að hún er
forfallinn West Ham-aðdáandi)
og svo tilfallandi elskhugar Alex-
öndru. Persónurnar eru óvenjuleg-
ar og eftirminnilegar, einkum kon-
urnar.
Það er ekki erfitt að sjá það af
þessari bók að höfundur hennar
hefur skrifað fleiri ljóðabækur en
skáldsögur, enda er textinn vandað-
ur og orðin valin af kostgæfni. Það
vantar þó eitthvað sem drífur les-
andann áfram, lítil spenna er í sög-
unni og því er hún fremur seinlesin.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Frumleg bók og
fallega skrifuð, en tíðindaleysið í
sögunni nálgast það að vera yfir-
þyrmandi á köflum.
Að taka út fulla refsingu
TÓNLIST ★★★★★
Vetrarferðin
Kristinn Sigmundsson og
Víkingur Heiðar Ólafsson
DIRRINDÍ
Þeir Kristinn Sigmundsson og Víkingur Heiðar
Ólafsson fluttu Vetrarferðina eftir Schubert í Hörpu
í fyrra. Nú er flutningurinn kominn á geisladisk og
gott betur. Diskurinn er tvöfaldur, á honum er bæði
kvikmyndataka frá tónleikunum á DVD diski, og líka
stúdíóupptaka. Á DVD diskinum er hægt að velja
að hafa texta á íslensku eða ensku um leið og maður
fylgist með tónlistinni. Það er góður valkostur sem
dýpkar upplifunina af tónlistinni.
Á kápu disksins er mynd af listamönnunum, Vík-
ingur öðrum megin, Kristinn hinum megin. Þeir
eru þunglyndislegir á svipinn. Það er við hæfi, því
tónlistin er tregafull. Vetrarferðin fjallar um sorg-
mæddan mann á langri vetrargöngu. Hún saman-
stendur af 24 ljóðum sem eru minningar frá ljúfu
sumri þegar ástin blómstraði, eða lýsingar á von-
leysi vetrarins. Tónlistin er hrífandi eins og allt eftir
Schubert. Þetta er eitt af mögnuðustu ljóðasöngverk-
um tónbókmenntanna.
Skemmst er að segja frá því að diskurinn er frá-
bær. Kristinn syngur af innlifun, röddin er unaðslega
mjúk og hljómmikil, túlkunin einstaklega breið og lit-
rík. Ekki er Víkingur síðri. Píanóröddin býr til stemn-
inguna í hverju lagi áður en söngurinn byrjar. Hún
skapar alls konar litbrigði, andstæður og umhverfis-
hljóð, rammar sönginn inn og lyftir honum upp í
hæstu hæðir. Víkingur nær því öllu af aðdáunar-
verðri smekkvísi og næmi. Samruni söngs og píanó-
leiks er líka óaðfinnanlegur, jafnvægið á milli lista-
mannanna eins og best verður á kosið. Óneitanlega er
þetta tilvalin jólagjöf fyrir tónlistarunnendur. Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Mögnuð útgáfa, bæði stúdíóupptaka og
líka DVD-diskur með frábærum tónleikum.
Frábær Shubert