Fréttablaðið - 11.12.2012, Blaðsíða 34
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30
Sigrún Hjálmtýsdóttir og blásara-
sextett halda sína árlegu aðventu-
tónleika í Mosfellskirkju í kvöld
klukkan 20.30.
Efnisskráin er með hefðbundn-
um hætti, klassískir tónar og jóla-
lög.
Aðventutónleikar Diddúar og
drengjanna hafa verið sérstak-
ur tónlistarviðburður í menning-
arlífi Mosfellsbæjar í hartnær
tvo áratugi. Á tónleikunum hafa
frá upphafi verið frumfluttar
umskriftir á klassískum verkum
fyrir blásarasextett og sópran, en
þetta er ekki algeng samsetning
hljóðfæra og raddar.
Hljóðfæraleikarar eru Sigurð-
ur Ingvi Snorrason og Kjartan
Óskarsson, sem leika á klarín-
ett, Emil Friðfinnsson og Þorkell
Jóelsson sem leika á horn og á
fagott leika Brjánn Ingason og
Björn Árnason.
Diddú og drengirnir í Mosfellskirkju
Aðventutónleikar Diddúar og drengjanna verða haldnir í Mosfellskirkju í kvöld. Efnisskráin er með hefð-
bundnum hætti, klassískir tónar og jólalög. Tónleikarnir hafa verið fastur liður á aðventunni í nær 20 ár.
ÁRLEGUR VIÐBURÐUR Diddú og drengirnir halda aðventutónleika í Mosfellskirkju
í kvöld.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
I0
4
4
5
2
5
Áhugafólk um eldri dráttarvélar
getur glaðst yfir nýútkomnum
DVD-pakka frá Tókatækni með
viðtölum, myndum og fróðleik
um dráttarvélar frá árunum 1940
til 1980, söfnun þeirra og endur-
bætur. Þar er rætt við Sigmar í
Lindabæ, Þórodd Má Árnason frá
Kistufelli og Viðar Bjarnason,
Ásólfsskála, sem allir eru véla-
safnarar.
Komið er við á Sunnlenskum
sveitadögum, sýningu Fornvéla-
félags Íslands á Hvolsvelli, Par-
dus-akstursleikninni á Hofsósi,
Traktorstorfærunni á Flúðum
og í Skógræktinni á Hallorms-
stað þar sem aldnir höfðingjar
af dráttarvélaætt eru enn í fullri
vinnu. Þá má sjá gamlar vélar
af öllu landinu í ljósmyndahorn-
inu og bregður flestum tegund-
um þeirra fyrir við fjölbreyttar
aðstæður.
Tókatækni er fyrirtæki Hjalta
Stefánssonar og Heiðar Óskar
Helgadóttur.
Verðið á pakkanum er 3.900
krónur og salan fer fram gegnum
tokataekni@gmail.com og í síma
471 3898. - gun
Höfðingjar af
dráttarvélaætt
PAKKINN Inniheldur viðtöl um gamlar
vélar.
Skáldsagan Fahrenheit 451 eftir
Ray Bradbury hefur nú verið
endurgerð sem teiknimynda-
saga. Það er bandaríski teikn-
arinn Tim Hamilton sem fært
hefur hina sígildu sögu Bradbu-
rys yfir í myndrænt form, en
árið 1966 hafði franski leikstjór-
inn François Truffaut gert eftir
henni kvikmynd.
Bókin kom fyrst út árið 1953
og vakti strax töluverðan úlfaþyt,
en í henni segir af samfélagi þar
sem bækur eru brenndar og sér-
stakt brunalið hefur þann starfa
með höndum að ganga í hús og
leita bóka.
Bradbury lést síðastliðið sumar
en hafði áður samþykkt útgáfu
Hamiltons af sinni frægustu
sögu. - fsb
Fahrenheit 451
sem teikni-
myndasaga
SAMÞYKKUR Bradbury hafði samþykkt
teikningar Hamiltons áður en hann lést.
NORDICPHOTOS/GETTYR