Fréttablaðið - 11.12.2012, Side 35
ÞRIÐJUDAGUR 11. desember 2012 | MENNING | 31
Gerðu jólamatinn
enn betri!
Komdu við í Heilsuhúsinu fyrir jólin.
Kryddið, meðlætið, krafturinn og bökunarvörurnar okkar
gera matinn bragðbetri og þér líður vel um jólin.
Lífrænt, glútenlaust og
spelt mjöl í allan bakstur.
Allt í eftirréttinn.
Lífrænt og bragðmikið krydd
í jólamatinn, margar tegundir
sem henta í alla matargerð.
Biona lífræna
meðlætið gerir
jólamáltíðina
enn betri.
Krafturinn
í jólasósuna
og súpur,
lífrænn og
án aukefna.
HeIlsuhúsið
LAUGAVEGI, LÁGMÚLA, KRINGLUNNI, SMÁRATORGI, SELFOSSI OG AKUREYRI
heilsuhusid.is I Facebook: Heilsuhúsið I Sími 530 3800
Uppsetning Vesturports og Borg-
arleikhússins á Faust verður
sýnd sex sinnum á BAM-hátíð-
inni í New York og er fyrsta
sýningin á morgun en sú síð-
asta þann 16. desember. BAM er
stærsta og þekktasta leiklistar-
hátíð Bandaríkjanna og er haldin
árlega í New York.
Hópur listamanna og tækni-
fólks frá Vesturporti og Borgar-
leikhúsinu hélt utan á laugardag
og vinnur nú hörðum höndum
að uppsetningu sýningarinnar
í BAM-leikhúsinu í Brooklyn.
Þetta er í þriðja sinn sem Vestur-
porti er boðið á hátíðina en Woy-
zeck var sýnt þar í október 2008
og Hamskiptin í desember 2010.
Faust var jólasýning Borgar-
leikhússins 2009, hlaut einróma
lof íslenskra gagnrýnenda og var
tilnefnd til átta Grímuverðlauna,
meðal annars sem sýning ársins
og áhorfendasýning ársins. Hún
gekk fyrir fullu húsi fram á vor
og var tekin upp að nýju leikár-
ið 2010-2011. Verkið hefur verið
sýnt víða um heim við góðar und-
irtektir áhorfenda og gagnrýn-
enda. Haustið 2010 var það sýnt
í hinu virta Young Vic leikhúsi
sem hápunktur í 40 ára afmælis-
dagskrá leikhússins. Uppselt
var á allar sýningar verksins en
íslenski hópurinn lék sjö sýning-
ar á viku. Í kjölfarið fylgdu sýn-
ingar í Þýskalandi, Rússlandi og
Kóreu.
Faust sýnd á BAM-hátíðinni í New York
Leiksýningin Faust er ein þeirra sýninga sem áhorfendum býðst að sjá á BAM-hátíðinni í New York á næstu
dögum. Faust er samstarfsverkefni Vesturports og Borgarleikhússins og hefur verið sýnd víða.
Á HÁTÍÐ Í NEW YORK
Þorsteinn Gunnarsson
í hlutverki sínu í Faust.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER
2012
Uppákomur
12.34 Fjölbreytt menningardagskrá
er í boði á Jóladagatali Norræna
hússins. Uppákomur hvers dags eru
gestum huldar þar til gluggi dagatalsins
verður opnaður í upphafi atburðarins.
Listamaðurinn Hugleikur Dagsson gerði
dagatalið í ár.
Tónlist
19.30 Strengjasveitin Spiccato flytur
L’Estro Armonico eftir Antonio Vivaldi í
Listasafni Sigurjóns.
21.00 Jack Magnet Quintet með JFM,
Jóel Páls, Einari Scheving, Gumma P og
Róberti Þórhallssyni halda tónleika á
Café Rosenberg. Miðaverð er kr. 1.500.
21.00 Nóra spilar nokkur vel valin
lög af nýrri plötu sinni, Himinbrim, á
Hemma og Valda. Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestrar
12.05 Vigfús Geirdal flytur fyrirlestur
um Vigfús Grænlandsfara og þátttöku
hans í leiðangri J. P. Kochs um þvert
Grænland árið 1912-1913. Einnig
verður fjallað um aðrar Grænlands-
ferðir hans og lífshlaup. Fyrirlesturinn
er ókeypis.
12.05 Vigfús Geirdal flytur fyrirlestur
um Vigfús Grænlandsfara í tengslum
við ljósmyndasýningu á Þjóðminjasafni
Íslands.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.
Þriðjudagsdjassinn á KEX Hos-
teli heldur áfram og í kvöld
kemur fram tveggja gítara
kvartett Andrésar Þórs Gunn-
laugssonar. Auk Andrésar skipa
hljómsveitina þeir Hilmar Jens-
son á gítar, Þorgrímur Jónsson
á kontrabassa og Þorvaldur Þór
Þorvaldsson á trommur.
Tónleikarnir hefjast klukk-
an 20.30 og standa í um tvær
klukkustundir með hléi.
Andrés á KEXI
DJASS Andrés Þór Gunnlaugsson og
hljómsveit leika á KEX í kvöld.