Fréttablaðið - 11.12.2012, Síða 36
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 32
„Þetta er svona sýning sem geng-
ur í kynslóðir. Ég fór sjálfur og sá
þá í Laugardalshöll 1980 og ég er
viss um að allir sem fóru ungir að
sjá þá eiga eftir að flykkjast með
börnin sín á sýninguna núna,“
segir Björgvin Rúnarsson, hand-
boltaþjálfari og umboðsmaður
Harlem Globetrotters í Skandi-
navíu og Eystrasaltslöndunum.
Harlem Globetrotters koma hing-
að til lands í maí og halda sýn-
ingu í Kaplakrika.
Harlem Globetrotters eru vel
þekktir um allan en þeir setja
upp fjölskyldusýningar þar sem
alls kyns listir eru framkvæmdar
með körfubolta á körfuboltavelli.
„Ég held að þeir verði bara vin-
sælli með hverju árinu. Það er að
minnsta kosti enn alltaf uppselt á
sýningar þrátt fyrir að þeir séu
orðnir 86 ára gamlir – það er að
segja fyrirtækið, ekki leikmenn-
irnir,“ segir Björgvin, en á hverju
ári eru haldin úrtökupróf þar sem
lið þess árs er valið, svo endur-
nýjunin er stöðug. „Hér áður fyrr
voru menn bara pikkaðir út en
nú þurfa allir að fara í gegnum
úrtökupróf. Fyrirtækið er orðið
svo stórt og nú eru alltaf tvö lið
í gangi. Eitt fer um Bandaríkin
og annað sem fer um restina af
heiminum,“ bætir hann við.
Globetrotters hafa komið fjór-
um sinnum áður til Íslands, síð-
ast árið 2002. „Þá vorum við með
sex sýningar um landið en núna
náum við bara einni. Solla stirða
og Íþróttaálfurinn koma og hita
upp fyrir þá svo þetta verður
algjör fjölskyldusýning,“ segir
Björgvin. - trs
VINSÆLASTA
FJÖLSKYLDUSÝNING
HEIMS Á ÍSLANDI
Harlem Globetrotters verða með sýningu í Kaplakrika
í maí. Uppselt er á sýningar félagsins um allan heim.
Fögnuðu opnun
nýrrar verslunar
Barnafataverslunin As We Grow opnaði nýja verslun að Geirsgötu á
sunnudag og bauð af því tilefni fólki að fagna með sér og gæða sér á
léttum veitingum. Margt var um manninn við höfnina eins og sjá má.
ÁBÚÐARFULLIR Sigurjón Ragnarsson, Hlöðver Vilhelmsson og Jón Garðar Guðmundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BROS Sigríður Sigurjónsdóttir og Agnes
Hlöðversdóttir.
DJÚSAÐ Steinunn Vala Sigfúsdóttir, Helene Magnússon og
Guðrún Mist Sigfúsdóttir.
JÓLIN NÁLGAST Sigrún Edda Gunnars-
dóttir og Hrafnhildur Ásgeirsdóttir.
BLESSUÐ BÖRNIN Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir, María Theodóra
Ólafsdóttir og Gréta Hlöðversdóttir með þá Ísak Eldar og Óðin Örn.
LISTAMENN Lið Harlem Globetrotters
setur upp fjölskyldusýningar um allan
heim sem byggjast á körfuboltaíþróttinni
og skemmtanagildið er í brennidepli.
NORDICPHOTOS/AFP
„Ég er búinn að vera að búa til
jólaplötu í tvö ár og ákvað að senda
lög í þessa keppni. Hún kemur út
fyrir þarnæstu jól,“ segir tónlist-
armaðurinn Sverrir Stormsker,
sem hefur verið að vinna að plöt-
unni í um tvö ár.
Sverrir á tvö lög af sex sem taka
þátt í Jólalagakeppni Rásar 2 í ár.
Úrslitin verða kunngjörð þriðju-
daginn 18. desember og fer kosn-
ing fram á Rúv.is. Alls bárust tæp-
lega fimmtíu lög í keppnina, sem
er nú haldin í tíunda sinn.
Lög hans í keppninni eru Tvö
fögur ljós, sem er flutt af Sig-
ríði Guðnadóttur, og Nútímajól
sem hann syngur með Öldu Björk
Ólafsdóttur. Um fyrrnefnda lagið
segir Sverrir: „Þetta lag mitt
fjallar um tvær fallegar stjörnur á
himninum sem minna mig á aðrar
tvær fallegar stjörnur sem eru í
höfðinu á dömu og kallast augu.
Flestir eru með tvö svoleiðis.“
Hið síðarnefnda fjallar um hvað
tímarnir hafa breyst og þar snýr
Sverrir hinum hefðbundnu kynja-
hlutverkum við. „Í gamla daga
söng Haukur Morthens í laginu
Hátíð í bæ: „Hann fékk bók en
hún fékk nál og tvinna.“ Þetta
þótti ekkert stórkostlegt vanda-
mál í denn en í dag þá er þetta
hræðilegur glæpur,“ segir Sverr-
ir. „Í textanum fær stelpan i-Pad
og strákurinn fær nál og tvinna og
er látinn sauma alveg í gríð og erg.
Hún fær loftbor og keðjusög og blá
jakkaföt í jólagjöf og strákbjáninn
fær barbí og blúnduballettdress
og bleika dragt þannig að allir eru
alveg ofboðslega sáttir og ham-
ingjusamir. Nema kannski strák-
aulinn, en það skiptir ekki máli.“
Bæði lögin verða á nýju jólaplöt-
unni. „Þessi jólaplata verður voða
hugguleg. Ég er búinn að fá Siggu
Guðna, Öldu Ólafs, Ladda og fleiri
góða drengi og stúlkur með mér í
lið.“
Sverrir hefur áður samið eitt
jólalag sem kom út 1987. Það heit-
ir Söngur veiðimannsins í flutn-
ingi Stefáns Hilmarssonar. „Þessi
hugljúfi sálmur var stranglega
bannaður á útvarpsrásunum
af einhverjum stórfurðulegum
ástæðum sem enginn skilur í dag.
Ég var þarna að yrkja dýrlegan
óð til sjálfs Jesú Krists og sá gæi
þykir nú ekki mjög slæmur pappír.
Ein línan var undir smá áhrifum
frá Bítlunum þar sem við Stebbi
sungum hástöfum: „We love you
Je-Je-sú.“ Mjög huggulegt allt
saman og rómó. En þetta fór víst
eitthvað öfugt ofan í kokið á fólki
og það þótti alveg hreint gráupp-
lagt að banna sálminn,“ segir
Sverrir.
freyr@frettabladid.is
Undirbýr huggulega jólaplötu
Sverrir Stormsker á tvö lög af sex sem taka þátt í Jólalagakeppni Rásar 2.
Lið Harlem Globetrotters kemur til landsins 4.
maí og skellir sér þá í heimsókn á Barnaspítala
Hringsins. Að sögn Björgvins hafa þeir gert
það í öllum ferðum sínum hingað til og báðu
um að því yrði komið í kring. „Þetta eru
auðvitað bara gleðigjafar og vilja bara dreifa
gleði meðal allra,“ segir hann. „Svo er ekkert ólíklegt
að þeir skoði sig um í miðbæ Reykjavíkur á laugardags-
kvöldinu,“ bætir hann við, svo sjái fólk hóp óvenjulega
hávaxinna karlmanna labba niður Laugaveginn að
kvöldi 4. maí er aldrei að vita nema hægt sé að biðja
þá um að leika listir sínar.
Í ÚRSLITUM Sverrir Stormsker á tvö lög af sex sem keppa í úrslitum jólalagakeppni
Rásar 2. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Heimsækir Barnaspítala Hringsins