Fréttablaðið - 11.12.2012, Blaðsíða 39
ÞRIÐJUDAGUR 11. desember 2012 | MENNING | 35
Cate Blanchett breyttist í hálf-
gerðan eltihrelli þegar hún frétti
af gerð Hobbita-þríleiksins. Leik-
konan fer með hlutverk álfkon-
unnar Galadriel í The Lord of the
Rings og í Hobbitanum.
„Ég bjóst ekki við meiru eftir
að Lord of the Rings lauk. Ég hélt
að því ferðalagi væri lokið en
mín þátttaka í þeim þríleik var
alltof stutt,“ sagði Blanchett við
Flick and Bits. „Þegar ég heyrði
að þau ætluðu að gera Hobbitann
gerðist ég eltihrellir. Ég hringdi
í umboðsmanninn minn nánast á
hverjum einasta degi og spurði
hvort eitthvað væri að frétta og
hvort Galadriel yrði í myndun-
um.“
Varð eltihrellir
vegna Hobbita
GALADRIEL Cate Blanchett í hlutverki
Galadriel í Hobbitanum.
Jimmy Page, fyrrum gítarleik-
ari Led Zeppelin, ætlar í sólótón-
leikaferð á næsta ári. Hann ætl-
aði að fara á þessu ári en varð að
fresta því eftir að mynddiskurinn
Celebration Day með endurkomu-
tónleikum Zeppelin árið 2007 var
gefinn út.
Hann sagði Led Zeppelin aldrei
hafa ætlað í tónleikaferð án
söngvarans Roberts Plant því það
hefði „breytt karakter“ sveitar-
innar. „Ég, Jason og John Paul
Jones vildum byrja að spila ný lög
og sjá hvernig allt saman gengi.
Það voru vangaveltur hjá fólki
um einhverja söngvara en ég
vildi frekar sjá hvað við gætum
gert sjálfir. En við fengum aldrei
tækifæri til þess,“ sagði hann við
Guitar World.
Jimmy Page í
tónleikaferð
JIMMY PAGE Rokkarinn er á leiðinni í
tónleikaferð.
Leikkonan margumtalaða Krist-
en Stewart hefur nú staðfest orð-
róm þess efnis að hún fari með
annað aðalhlutverkið í grínmynd-
inni Focus. Það er enginn annar
en Ben Affleck sem leikur á móti
henni í myndinni sem er skrifuð
og leikstýrt af Glenn Ficarra og
John Requa, þeim sömu og gerðu
Crazy, Stupid, Love. Kristen á sér
feril í því að taka vinnuna með
sér heim, eða að minnsta kosti
samstarfsmenn sína. Það verður
því spennandi að sjá hvort sjö ára
hjónaband Afflecks og Jennifer
Garner lifi af samstarfið.
Stewfl eck
mynd í bígerð
NÝR MÓTLEIKARI Stewart leikur á
móti Ben Affleck í myndinni Focus.
NORDICPHOTOS/GETTY
Í flestu sem viðkemur jólahaldinu er best að halda í hefðirnar
og þar er MS rjóminn hvergi undanskilinn. MS rjóminn er þessi
gamli góði sem er samt alltaf ferskur. Hann myndi endast á
milli jóla og nýárs – ef hann væri ekki svona góður.
allra landsmanna
Gítarleikari Aerosmith, Joe Perry,
er að eigin sögn hæstánægður með
nýjustu plötu sveitarinnar, Music
From Another Dimension, en hún er
þeirra fimmtánda hljóðversplata og
sú fyrsta sem þeir senda frá sér í átta
ár.
Platan fór beint í fimmta sæti
bandaríska Billboard-listans og verð-
ur það að teljast prýðilegur árangur
fyrir þessa gömlu glysrokkara, sem
nú eru allir komnir á sjötugsaldurinn.
Perry er ekki viss um að hljóm-
sveitin eigi fleiri plötur uppi í erm-
inni og gefur í skyn að hann verði
fullkomlega sáttur ef nýja platan
reynist svanasöngur sveitarinnar.
Það er þó ekki að heyra á honum
að tónleikaþreyta sé komin í mann-
skapinn. „Það er engin ástæða til að
ætla að Aerosmith geti ekki spilað
á tónleikum svo lengi sem meðlim-
irnir geta enn gengið,“ segir Perry,
en hljómsveitin hefur lengi haft það
orð á sér að vera afar spræk á sviði.
„Þó við getum ekki tekið heljarstökk
og sveiflað okkur í köðlum getum við
enn þá bæði spilað og sungið.“ - hva
Sáttur ef sú nýja verður svanasöngurinn
Gítarleikarinn Joe Perry er sáttur við nýju Aerosmith-plötuna en hefur efasemdir um framhaldið.
KEMPUR Aerosmith hefur löngum verið talin spræk sveit á sviði.
NORDICPHOTOS/AFP