Fréttablaðið - 11.12.2012, Page 42
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 38
FÓTBOLTI Upp úr sauð í Manches-
ter í á sunnudag er Robin van Per-
sie tryggði Man. Utd sætan sigur
á Man. City með marki í uppbótar-
tíma.
Rio Ferdinand, varnarmaður
Man. Utd, fékk þá smápening í
andlitið svo úr blæddi. Þá óð einn
stuðningsmaður Man. City inn á
völlinn og ætlaði að vaða í Rio. Að
auki voru margir bandbrjálaðir
upp í stúku.
Lögreglan er þegar búin að kæra
níu manns. Tvo fyrir að hlaupa
inn á völlinn, einn fyrir kynþátta-
níð og hina fyrir almenn ólæti og
drykkjulæti. Svo fundust fíkniefni
á einhverjum áhorfendanna.
Hinn 21 árs gamli Matthew
Stott, garðyrkjumaður frá Knuts-
ford, er sá er ætlaði að hjóla í Rio.
Hann náði því ekki þar sem Joe
Hart, markvörður City, stöðvaði
hann. Stott sér eftir atvikinu og
hann hefur sent frá sér yfirlýsingu
þar sem hann biður Ferdinand og
aðra afsökunar á hegðun sinni.
„Ég skammast mín mikið fyrir
þessa hegðun. Ég brást sjálfum
mér, fjölskyldu minni, öðrum
stuðningsmönnum og Man. City.
Ég vil þakka Joe Hart fyrir sín
viðbrögð er ég kom inn á völlinn,“
segir í yfirlýsingu frá Stott.
Lögreglan þurfti í heildina
aðeins að handtaka þrettán manns
á leikdag sem henni finnst vel
sloppið. Þessar fáu handtökur beri
vitni um gott skipulag lögreglunn-
ar á þessum stóra viðburði.
Þau níu sem hafa verið ákærð
þurfa að mæta fyrir dómara 4.
janúar næstkomandi.
Framkvæmdastjóri samtaka
atvinnuknattspyrnumanna, Gor-
don Taylor, segir að kominn sé
tími til að skoða þann möguleika
að setja upp net á völlunum svo
hægt sé að minnka líkurnar á því
að kastað sé í leikmenn.
Taylor bendir á að til að byrja
með væri ekki vitlaust að setja
upp net fyrir aftan mörkin og við
hornfánana. Kastað var að Wayne
Rooney er hann var að taka horn í
leiknum umtalaða.
Leikvallahönnuðurinn Paul
Fletcher, sem kom meðal annars
að hönnum Wembley, segir að
þetta sé ekki svona auðvelt. Netið
þurfi að vera ansi þétt svo smápen-
ingar komist ekki í gegn. Þá er það
orðið svo þétt að áhorfendur sjá
hreinlega illa inn á völlinn.
- hbg
Níu stuðningsmenn City handteknir
Stuðningsmenn Man. City gengu af göfl unum eft ir sárt tap gegn Man. Utd.
REIÐUR Stott er hér kominn inn á völlinn til þess að láta Rio fá það óþvegið. Hart
stöðvaði hann. NORDICPHOTOS/GETTY
Góa og Fjarðarkaup
kynna með stolti
www.jolagestir.is
Síðustu
forvöð að
tryggja sé
r
miða
Miðasala á Miði.is
og í síma 540 9800
15. desember
í Höllinni HANDBOLTI Besti leikmaður N1-
deildarinnar það sem af er vetri,
Haukamaðurinn Stefán Rafn Sig-
urmannsson, spilar ekki meira
með liðinu. Hann er nefnilega á
förum til þýska stórliðsins Rhein-
Neckar Löwen sem Guðmundur
Guðmundsson, fyrrverandi lands-
liðsþjálfari, þjálfar.
Hornamaður liðsins, Uwe Gens-
heimer, er illa meiddur og spilar
líklega ekki meira á þessari leik-
tíð.
Stefán Rafn hefur tekið stórstíg-
um framförum undir stjórn Arons
Kristjánssonar hjá Haukum og
fær nú frábært tækifæri til þess
að sanna sig með þeim bestu.
„Hann fór út á laugardag. Æfði
með þeim á sunnudag og er núna
búinn að semja. Þetta gekk ótrú-
lega hratt fyrir sig,“ sagði Aron
Kristjánsson, þjálfari Hauka og
landsliðsþjálfari Íslands, en Stef-
án Rafn mun spila sinn fyrsta leik
fyrir félagið í bikarkeppninni á
morgun.
„Strákurinn er tilbúinn í þetta.
Hann er búinn að bæta sig gríð-
arlega mikið. Sérstaklega með
skotin í horninu,“ sagði Aron en
Stefán hefur meira og minna leik-
ið í stöðu skyttu síðustu tvö ár en
Aron ákvað að setja hann í hornið
í vetur.
„Það hjálpaði honum mikið og
hann hefur tekið miklum fram-
förum. Hann getur líka skotið
fyrir utan og er þar fyrir utan fínn
varnarmaður. Hann er ekki ósvip-
uð týpa og Guðjón Valur að því
leyti. Er mjög fjölhæfur. Ég taldi
að hann ætti besta möguleika á að
ná árangri sem hornamaður og því
setti ég hann þar núna.“
Þessar stórstígu framfarir leik-
mannsins hafa komið mörgum á
óvart.
„Hann er mjög duglegur og elju-
samur. Hann tekur leiðsögn vel
og hefur rétt viðhorf. Það skiptir
máli. Hann hefur þroskast mikið í
vetur, innan sem utan vallar. Nú er
hann kominn í atvinnumennskuna.
Nú þarf hann að sýna og sanna að
hann eigi heima þar.“
Stefán er annar ungi og upp-
rennandi leikmaðurinn í vetur
sem fer úr N1-deildinni til stórliðs
í Þýskalandi. FH-ingurinn Ólafur
Gústafsson samdi við Flensburg
þegar Arnór Atlason meiddist.
Þessir strákar fá nú ómetanlega
reynslu og það kætir landsliðs-
þjálfarann Aron.
„Þetta er frábært fyrir íslensk-
an handbolta. Að 22 ára gömlum
strákum sé treyst fyrir erfiðum
verkefnum. Þetta gleður landsliðs-
þjálfarann mikið. Þeir munu vaxa
með þessu enda að fara út til þess
að spila. Það skiptir miklu máli.“
henry@frettabladid.is
STEFÁN ER TILBÚINN
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, segir að hornamaðurinn efnilegi, Stefán Rafn
Sigurmannsson, sé klár í að spila með einu besta liði heims, Rhein-Neckar
Löwen. Stefán Rafn samdi við þýska félagið til loka þessarar leiktíðar.
Í LJÓNAGRYFJUNA Stefán leikur sinn fyrsta leik með ljónunum á morgun. Þá mætir liðið Magdeburg í bikarnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NFL Leikmenn Dallas Cow-
boys áttu erfiða helgi. Einn
leikmaður liðsins var
í fangelsi eftir að hafa
keyrt fullur og orðið
félaga sínum að bana
með glannaskap. Sá er
lést hét Jerry Brown og
var góðvinur Josh Brent
sem spilar með Kúrek-
unum. Brown var hluti af
æfingateymi liðsins.
Þeir fóru út að skemmta
sér og keyrði Brent
drukkinn heim með þess-
um afleiðingum. Hann var
í kjölfarið handtekinn grun-
aður um manndráp. Brent tjáði
sig lítillega er honum var
sleppt úr fangelsi í bili
eftir að hafa greitt
tryggingargjald.
„Jerry var besti
vinur minn og ég er að
reyna að komast yfir
áfallið að hafa misst
hann.“
Þeir kynntust í háskóla á
sínum tíma og urðu strax bestu
vinir. Brown skilur eftir sig
unnustu og ófætt barn. - hbg
Dauðsfall hjá Kúrekunum
JOSH BRENT Gæti átt yfir höfði sér
þungan dóm. NORDICPHOTOS/GETTY
Hann getur líka
skotið fyrir utan og er
því ekki ósvipuð týpa og
Guðjón Valur.
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari