Fréttablaðið - 11.12.2012, Side 46
11. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 42
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
„Ég er algjör sjónvarpssjúklingur og
elska góða sjónvarpsþætti. Bestu
íslensku þættirnir finnst mér vera
Pressan og Vaktirnar. Því miður er
ekki nógu mikið af íslensku efni
svo ég horfi á slatta af erlendum
þáttum líka. Þá finnst mér The
Newsroom rosa flottir og Modern
Family finnst mér líka frábærir.“
Lilja Nótt Þórarinsdóttir leikkona.
„Þetta eru allt einhvers konar ást-
arsöngvar, hvort sem ástin fer vel
eða illa,“ segir saxófónleikarinn
Óskar Guðjónsson.
Hann hefur gefið út plötuna
Vocé Passou Aqui ásamt brasilíska
söngvaranum og gítarleikaranum
Ife Tolentino. Þeir félagar kynnt-
ust fyrir tólf árum í London þegar
Óskar var búsettur þar í borg.
„Ég elti konuna mína sem var á
leiðinni þangað í nám og það eina
sem ég var með á stefnuskránni
var að hitta alvöru brasilískan
bossanóva-spilara. Það bentu mér
allir í áttina til Ife,“ segir Óskar.
„Það mynduðust strax rosalega
sterk vináttutengsl okkar á milli.“
Ife hefur komið til Íslands á
hverju ári undanfarin tíu ár. Hann
spilaði til dæmis í brúðkaupi Ósk-
ars sumarið 2002 og horfði dag-
inn eftir með honum á úrslitaleik
heimsmeistarakeppninnar í fót-
bolta sem Brasilíumenn unnu. Ife
hefur einmitt vakið athygli þar-
lendra knattspyrnumanna því eitt
sinn þegar hann var bassaleikari
með þekktum brasilískum söngv-
ara bað fyrrum landsliðsmaðurinn
Sócrates hann um að árita fyrir
sig plötuna þeirra. „Þetta er ansi
magnað fyrir okkur sem könn-
umst við Sócrates og Zico,“ segir
Óskar.
Nýja platan er sú fyrsta sem
Óskar og Ife gera saman. „Þetta
er gífurlega krefjandi músík að
spila. Þetta er einhvers konar
sambabolti. Hún er léttleikandi á
yfirborðinu en það er alveg hell-
ingur í gangi.“
Útgáfutónleikar Óskars og Ife
verða í Iðnó í kvöld og hefjast þeir
klukkan 21. - fb
Þetta er einhvers konar sambabolti
Brasilíumaðurinn Ife Tolentino, samstarfsmaður Óskars Guðjónssonar, gaf Sócrates eiginhandaráritun.
„Þetta verða handboltajól,“ segir
sjónvarpsmaðurinn Þorsteinn J.
Vilhjálmsson.
Hann er nýkominn heim frá
Þýskalandi þar sem hann tók
handboltaviðtöl fyrir þáttinn
Ísland á HM 2013 sem verður
sýndur á Stöð 2 Sport á jóladag
og á Stöð 2 á milli jóla og nýárs.
Í Berlín talaði hann við Dag Sig-
urðsson, þjálfara Füchse Berlín,
og spænska landsliðsmanninn
Iker Romero sem leikur með lið-
inu. Í Kiel talaði Þorsteinn við
þjálfarann Alfreð Gíslason og
landsliðsmennina Guðjón Val Sig-
urðsson og Aron Pálmarsson.
„Ég var að taka stöðuna fyrir
þetta mót í janúar. Það er nýtt
mót, nýr þjálfari og helsti leik-
maðurinn [Ólafur Stefánsson] er
hættur. Við bætum svo við viðtali
sem Guðjón Guðmundsson átti
við Aron Kristjánsson landsliðs-
þjálfara,“ segir Þorsteinn, sem
segir Íslendingana hóflega bjart-
sýna fyrir heimsmeistaramótið.
„Eins og Dagur sagði þá getum
við verið í efstu fimm eða efstu
átta sætunum og hvort tveggja er
fínt. Þarna verður öðruvísi fyrir-
komulag. Það er venjuleg riðla-
keppni þar sem efstu fjögur liðin
fara upp en síðan eru þetta hrein-
ir úrslitaleikir. Ekki milliriðlar
eins og var. Þetta verður miklu
skemmtilegra.“
HM í handbolta byrjar ellefta
janúar og þar verður Þorsteinn,
eins og oft áður, í settinu hér
heima ásamt Geir Sveinssyni og
Guðjóni Guðmundssyni. - fb
Handboltajól hjá Þorsteini J.
Þorsteinn J. undirbýr þáttinn Ísland á HM 2013 sem verður sýndur um jólin.
GÆFURÍKT SAMSTARF Óskar Guðjóns-
son og Ife Tolentino hafa gefið út sína
fyrstu plötu saman. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á LESTARSTÖÐ Þorsteinn J. á lestar-
stöðinni í Friedrichstrasse í Berlín.
MYND/KARI LILLIENDAHL
Leópold Kristjánsson arkitekt og
Steinunn Arnardóttir hljóðverk-
fræðingur hanna saman skemmti-
lega púða undir nafninu Mark-
rún. Fyrirmynd púðanna er fjallið
Herðubreið sem listmálarinn Stór-
val gerði oft að myndefni sínu.
„Upphaflega átti þetta að vera
jólagjöf til ættingja og vina en svo
spurðist þetta út og nú er þetta
eins og tímafrekt hobbí,“ útskýr-
ir Leópold og Steinunn bætir við:
„Enn sem komið er saumum við
alla púðana sjálf. Hugmyndin var
alltaf að hafa þetta heimagert og
ekki verksmiðjuframleitt.“
Í haust setti parið, sem búsett er
í Berlín, nokkrar myndir af púð-
unum á netið og létu viðbrögðin
ekki á sér standa. „Við seljum púð-
ana í gegnum heimasíðuna okkar
og þeir hafa farið ansi víða. Fólkið
sem kaupir þá hefur líka verið
duglegt að senda okkur myndir og
nú eigum við myndir af Herðu-
breið í Mexíkó, Kanada og víðar.
Það er alveg ótrúlega gaman að
fá að fylgjast svona með ferðum
fjallsins,“ segir Steinunn og hlær.
Ár er síðan fyrstu púðarnir litu
dagsins ljós en parið hefur eytt
töluverðum tíma í að þróa og bæta
sniðið. Fjöllin fást nú í þremur
mismunandi stærðum og nokkr-
um litum. Þegar blaðamaður spyr
um verkferlið segir Leópold þau
ganga jafnt í öll verk sem inna
þarf af hendi.
„Við reynum að hafa þetta
svolítið pródúktíft núna. Ég
er helst í sníðavinnunni og
Steinunn sér um að sauma.
En annars er ekkert eitt
verk eyrnamerkt öðru
hvoru okkar. Við skipt-
umst á að gera allt.“
Parið sinnir öðrum
verkefnum á daginn
og því fer púðafram-
leiðslan helst fram
á kvöldin. „Við
vinnum vel
saman og þetta er fínasta hobbí nú
þegar það er orðið kalt og dimmt
hér í Berlín,“ segir Steinunn.
Púðarnir fást á vefsíðu Mark-
rúnar, www.markrun.com, í
Postulínsvirkinu í Reykjavík og í
versluninni Hazel í Berlín.
sara@frettabladid.is
Herðubreið í útrás
Steinunn Arnardóttir og Leópold Kristjánsson hanna saman púða sem eru
innblásnir af listaverkum Stórvals. Framleiðslan er orðin tímafrekt áhugamál.
SKEMMTILEGT HOBBÍ
Steinunn Arnardóttir og
Leópold Kristjánsson
hanna saman fallega
púða undir nafninu
Markrún. Púðarnir, sem
eru innblásnir af mál-
verkum Stórvals, hafa
farið víða um heim.
?
eða á www.somi.is
Frí heimsending*
Pantaðu í síma
Hamborgarahryggur
og kartöflusalat
Dönsk lifrakæfa,
sveppir og beikon
Jólasíldar-
salat
Hver veislubakki er
hæfilegur fyrir 4 eða 5.
*Frí heimsending gildir
aðeins ef pantaðir eru
4 eða fleiri bakkar.
Klassískt um jólin!
NÝR VEISLUBAKKI
PRÓFAÐUEITTHVAÐ
NÝTT!
30 bitar
12 snittur
Steikt Peking önd með
Peking sósu, gúrkum,
blaðlauk og salatblöndu
í mjúkri tortilla köku.
www.saft.is
RÆDDU UM ÞÁ
ÁHÆTTU SEM FYLGIR
ÞVÍ AÐ HITTA NETVIN