Fréttatíminn - 04.11.2011, Síða 38
Helgin 4.-6. nóvember 2011
J ólahlaðborð Perlunnar hefur lengi skipað sérstakan sess í hugum marga landsmanna. Þar ræður vitaskuld góður og girnilegur matur mestu en um er
að ræða eitt vinsælasta jólahlaðborð landsins.
Reyndar er það svo að veitingamennirnir sem
standa að baki veitingastaðnum Perlunni eru
frumkvöðlarnir í jólahlaðborðum. „Við byrjuð-
um með jólahlaðborðið,“ segir Stefán Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri veitingastaðarins. Þetta
var fyrir þremur áratugum þegar þeir hinir
sömu og standa að Perlunni ráku Brauðbæ að
Þórsgötu 1. Stefán bendir á að jólahlaðborðs-
hefðin sé upphaflega dönsk en í upphafi fengu
þeir til liðs við sig kokka sem höfðu starfað
þar ytra til þess að ná rétta bragðinu. Nú hefur
jólahlaðborðshefðin fest sig kirfilega í sessi hér
á landi sem skemmtilegur og ómissandi þáttur í
jólahaldinu.
Jólahlaðborð veitingastaðarins er mikið vöxt-
um. Boðið er upp á 40 til 50 rétti. Stefán segir
að þar ættu allir finna eitthvað við sitt hæfi; til
að mynda purusteik og kalkún. Vandlega er
þess gætt að hlaðborðið sé fjórskipt: Forréttir,
heitur matur, kokkar skera matinn fyrir gesti og
eftirréttir. Rík áhersla er lögð á að bjóða upp á
virkilega góðan mat. „Við viljum að maturinn sé
fyrsta flokks,“ segir Stefán.
Stefán leggur áherslu á að gestir Perlunnar
hafi borðið fyrir sig allt kvöldið. Þá geti þeir
notið matarins, félagsskaparins og andrúms-
loftsins út í ystu æsar, á sínum hraða. Með
þessu móti má njóta kvöldsins sem best og hafa
það hátíðlegt um jólin, án stress og tímahraks.
Hann nefnir þó að þess sé gætt að allir gestir
veitingastaðarins mæti ekki á sama tíma svo
ekki myndist örtröð. Hann nefnir, í því sam-
bandi, að ýmsir veitingastaðir tvísetji staðinn,
það er bóka sama borðið tvisvar yfir kvöldið, og
því geta þeir gestir trauðla haft sína hentisemi.
Ekki er boðið upp á hádegishlaðborð hjá
Perlunni, en á Þorláksmessu er boðið upp á
skötuhlaðborð, sem Stefán segir að sé ávallt vel
sótt, enda sé skatan stórgóð. Um helgar leikur
píanisti á konsertflygil staðarins sem skapar
ljúfa og skemmtilega stemningu en Stefán segir
að höfuðáhersla sé lögð á matinn.
Jólahlaðborð í Bláa lóninu
Gestir með borðið allt kvöldið
Kynning
Um 50 hátíðarréttir á JólahlaðBorði Perlunnar
Fyrstir með jólahlaðborðið
J asstónlist og ferskleiki bíður gesta í jóla-hlaðborði Bláa Lónsins. Matreiðslumeist-arar Bláa Lónsins, undir stjórn Viktors Arnar Andréssonar yfirmatreiðslumeist-
ara, leggja mikinn metnað í jólahlaðborð Lava.
Viktor, sem er meðlimur í landsliði íslenskra mat-
reiðslumeistara, segir undirbúning jólahlaðborðs-
ins vera skemmtilegan. „Við vinnum alla okkar
rétti frá grunni hér í eldhúsinu og tryggir það
hámarksgæði og ferskleika. Því fylgir alltaf mikil
stemning að undirbúa hátíðarréttina.“
Jasstónlist verður í boði og er tónlistin í hönd-
um Andrésar Þórs Gunnlaugssonar gítarleikara
sem kemur fram ásamt kontrabassaleikurunum
Jóni Rafnssyni og Þórgrími Jónssyni auk söng-
kvennanna Gullu Ólafsdóttur og Ernu Hrannar
Jólahlaðborðin henta vel fyrir minni og stærri
hópa. Innifalið í jólahlaðborði er fordrykkur og
boðskort í Bláa Lónið sem gildir út apríl 2012.
Starfsmenn Bláa Lónsins aðstoða við tilboð og
bókun á sætaferðum fyrir allar stærðir af hópum.
Einstakt náttúrulegt umhverfi og arkitektúr, matur
og góð þjónusta gera jólahlaðborð í Bláa Lóninu að
einstakri upplifun.
Jasstónlist og jólahlaðborð
Kynning
JÓLABLAÐ
FRÉTTATÍMANS
Jólablað
Fréttatímans
kemur út
25. nóvember
BLAÐIÐ VERÐUR
STÚTFULLT AF
SPENNANDI
EFNI
Ef þú vilt koma að
skilaboðum þá
hikaðu ekki við að
hafa samband við:
auglýsingadeild
Fréttatímans í síma:
531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is