Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.01.2011, Page 10

Fréttatíminn - 07.01.2011, Page 10
Rannsóknaþjónusta NÁMSKEIÐ Í GERÐ LEONARDO UMSÓKNA UM MANNASKIPTA- OG SAMSTARFSVERKEFNI Verður haldið þriðjudaginn 11. janúar kl. 13 – 15 í Tæknigarði, Dunhaga 5 Veittir eru styrkir til mannaskipta- og samstarfsverkefna í starfsmenntun. Næstu umsóknarfrestir Leonardo verkefna eru: Mannaskiptaverkefni 4. febrúar 2011 Samstarfsverkefni 21. febrúar 2011 Dæmi um verkefni: að senda starfsmann, nemanda eða leiðbeinanda erlendis í starfsþjálfun eða endurmenntun að nemendur í starfsnámi taki hluta starfsþjálfunar í öðru Evrópulandi samstarfsverkefni við aðrar evrópskar sambærilegar stofnanir um þróun í starfsmenntun samstarf um þróun nýrra kennsluhátta eða aðferða við mat í starfsmenntun Námskeiðið er ókeypis og öllum opið. Skráning fer fram í síma 525 4900 eða með tölvupósti á lme@hi.is Hægt er að óska eftir aðgengi að námskeiðinu í gegnum fjarfundabúnað símenntunarstöðva á landsbyggðinni. Nánari upplýsingar um áætlunina og forgangsatriði næsta umsóknarfrests er að finna á www.leonardo.is og heimasíðu Menntaáætlunar ESB www.lme.is LANDSKRIFSTOFA MENNTAÁÆTLUNAR ESB | www.lme.is Leonardo: Dunhaga 5 | 107 Reykjavík | Sími: 525 4900 STYRKIR TIL STARFSMENNTUNAR Í EVRÓPU LEONARDO STARFSMENNTUN V ið erum ekki með neina frekju heldur einfaldlega að reyna að finna út úr því hvernig við fáum það sem okkur ber samkvæmt lögum,“ segir Lúð- vík Arnarson, varaformaður knatt- spyrnudeildar FH, spurður um til- raunir félagsins til að fá hluta af sölunni á Gylfa Þór Sigurðssyni frá Reading til Hoffenheim í sept- ember. „Það eru allir sammála um að við eigum rétt á greiðslu en það virðist hins vegar vera óljóst hversu há sú greiðsla er,“ segir Lúðvík. Gylfi Þór var fyrstu ár knatt- spyrnuferilsins hjá FH en gekk til FH leitar nú leiða til að fá sinn hluta af kaupverðinu á landsliðsmanninum Gylfa Þór Sigurðssyni sem seldur var til Hoffenheim frá Reading fyrir rúman milljarð í september. Málið gæti endað hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu. FH-ingar vilja sinn hlut í milljarðssölu á Gylfa  Fótbolti UppeldisbætUr Gríðarlega mikilvægt Það er engum blöðum um það að fletta hversu mikilvægt það er fyrir FH-inga að fá hagstæða niðurstöðu í þessu máli með söluverðið á Gylfa. Ef félagið á rétt á 30% af hlut Breiðabliks þá eru það 27 milljónir. Slík upphæð vegur þungt í rekstri knattspyrnu- deildarinnar. liðs við Breiðablik í febrúar 2003, þá þrettán ára. Hann hélt síðan til Englands haustið 2005 til Reading þaðan sem hann var seldur til þýska liðsins Hoffenheim. Í reglum KSÍ kemur skýrt fram að uppeldis- bætur skuli vera greiddar frá 12 til 21 árs aldurs. Það má því ljóst vera að FH á rétt á upp- eldisbótum en að sögn Lúð- v í k s e r ekki held- ur skýr t hvaða félag FH á að rukka. „Eig- um v ið að rukka Breiðablik eða Reading? Við vitum það ekk i ,“ seg ir hann. Greint hefur verið frá því í fjöl- miðlum að Breiða- blik haf i fengið níutíu milljónir í sinn hlut fyrir sölu Reading á Gylfa til Hoffenheim. Lúð- vík segir að ekki sé á hreinu hvort hlut- ur FH-inga sé 30% af þeirri upphæð eða eitthvað minna. „Eins og málin líta nú út vitum við ekki hver fer með lögsögu í þessu máli. Er það Knattspyrnusam- band Íslands, enska knattspyrnusam- bandið eða Alþjóða knattspyrnusamband- ið? Við vitum það ekki en það er alveg ljóst að það er mjög dýrt að fara með svona mál inn á borð Alþjóða knattspyrnusambandsins,“ segir Lúðvík og bætir við að málið sé í farvegi og það muni skýrast á næstu tveimur eða þremur vikum. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Aldrei gengið betur hjá Bónus Nýliðinn desembermánuður var einn sá besti í sögu Bónuss. Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir í samtali við Frétta- tímann að mánuðurinn sé einn sá besti frá upphafi og komi ekki á óvart því Bónus hafi verið að styrkja sig á undanförnum misserum. „Við finnum fyrir því að þegar fólk hefur minna á milli handanna þá sækir það þangað sem verðið er lægst. Og það hefur getað treyst því að verðið er lægst í Bónus,“ segir Finnur. -óhþ Heimaþjónusta við nýfædd börn fyrstu vikuna í lífi þeirra verður, eins og verið hefur, í höndum ljós- mæðra næsta hálfa árið. Sjúkra- tryggingar Íslands framlengdu samninginn við þær en heilbrigð- isráðuneytið hefur í athugun að færa þjónustuna af forræði þeirra til heilsugæslustöðva. „Þetta er eins góður díll og ríkið getur fengið,“ segir Guðlaug Ein- arsdóttir, formaður Félags ljós- mæðra. „Við allt að því grátbáðum ráðuneytið að kasta ekki til höndunum við ákvarðanir um þessa þjón- ustu því að þetta er hrein og klár öryggisþjónusta. Að breyta henni í flýti er stórhættulegt.“ Ráðuneytið gerir ekki ráð fyrir sparnaði við breytingarnar heldur vill með þeim ná ákveðinni samfellu í starfið, samkvæmt fyrri fréttum Fréttatímans. - gag Ljósmæður kíkja á krílin heima í bili Lítill hnoðri skoðaður heima á fyrstu dögum lífs síns. Ljósmynd/Hari  seðlabankinn stUðlað að aUknUm stöðUgleika Dregið úr gjaldeyrismisvægi fjármálastofnana Frá falli viðskiptabankanna í október 2008 hefur misvægi milli erlendra eigna og skulda í efnahagsreikningum ýmissa innlendra fjármálafyrirtækja verið langt umfram æskileg mörk, segir í tilkynn- ingu Seðlabanka Íslands. „Þetta mis- vægi eykur áhættu í rekstri fjármála- fyrirtækja og kallar á eiginfjárbindingu. Líkt og seðlabankastjóri greindi frá í ræðu sinni á ársfundi Seðlabanka Ís- lands í mars sl. hefur bankinn leitað leiða til að draga úr ofangreindum vanda með það að markmiði að koma fjármála- kerfinu í betra jafnvægi á nýjan leik og stuðla þannig að fjármálastöðugleika,” segir enn fremur. Seðlabankinn bauð fjármálafyrir- tækjum til viðræðna um samninga með það að markmiði að gjaldeyrismisvægi vegna hreinnar eignar í erlendum gjald- miðlum sem skila tekjum í erlendri mynt verði ekki meira en sem nemur 15 prósentum af eiginfé þeirra, segir og í tilkynningu bankans. „Undir lok ársins átti Seðlabankinn gjaldeyrisvið- skipti vegna þessa. Annars vegar keypti bankinn gjaldeyri sem nam um 24,6 milljörðum króna (jafnvirði 160 millj- óna evra). Hins vegar samdi hann um framvirk viðskipti sem námu um 47,9 milljörðum króna (jafnvirði 312 milljóna evra). Í heild munu þessi viðskipti auka gjaldeyrisforða Seðlabankans á samn- ingstímanum um 72,5 milljarða króna (jafnvirði 472 milljóna evra). Ofangreindar aðgerðir stuðla að aukn- um stöðugleika fjármálakerfisins, auka gjaldeyrisforða Seðlabankans og þann hluta hans sem ekki er fenginn að láni erlendis frá. Að meðtöldum reglulegum vikulegum kaupum á gjaldeyri sem hóf- ust undir lok ágúst keypti Seðlabanki Íslands gjaldeyri á millibankamarkaði á árinu sem nam um 30 milljörðum króna en þar telst ekki með sá gjaldeyrir sem fjármálafyrirtæki munu afhenda Seðla- bankanum með framvirkum viðskiptum á komandi árum,“ segir Seðlabankinn. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is Már Guðmundsson seðlabankastjóri. 10 fréttir Helgin 7.-9. janúar 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.