Fréttatíminn - 07.01.2011, Qupperneq 14
Oftast nefnd
Páll Skúlason
heimspekingur
„Sitjandi forseti þarf fyrst og
fremst að vera óumdeildur, prúður
og siðlegur einstaklingur sem al-
menningur skammast sín ekki
fyrir.“
„Hann nýtur virðingar, er yfirveg-
aður, hófsamur og fágaður í fram-
komu, nokkuð sem hentar embætti
af þessum toga vel.“
„Ef grannt er skoðað gerði Vigdís
ekkert af viti, ljóminn af henni
á forsetastóli stafar einkum af
afglöpum Ólafs Ragnars sem fór
með þetta embætti í átt til konung-
dæmis. Sem er náttúrlega gaga.
Allir sakna Kristjáns Eldjárn. Sem
segir okkur að það væri ágætt að
fá einhvern hófsaman, til dæmis
heimspeking, í þetta og er þá um
annan að ræða en Pál Skúlason?“
„Ég er sjálf hrifnust af vel mennt-
uðum og myndarlegum gáfumönn-
um sem eru lausir við pólitíska
fötlun og þá kemur bara einn upp
í hugann og það er Páll Skúlason,
fyrrum háskólarektor.“
„Páll Skúlason. Hann er vel
þenkjandi og hefur sýnt á undan-
förnum árum að hann er glöggur
og skynsamur þjóðfélagsrýnir sem
lætur sig varða hag þjóðarinnar
og menningu og umfram allt sið-
ferðisgildi. Hann getur talað þeirri
röddu sem þjóðin er tilbúin að
hlýða á án þess að óttast að fiskur
liggi undir steini og annarleg
sjónarmið ráði ferðinni.“
„Væri til í að fá Pál Skúlason, fv.
rektor HÍ, til framboðs. Sé engan
annan í augnablikinu sem mundi
gera þjóðinni gagn með hófsemd
sinni og pælingum um samvisku
og sjálfsmynd næstu fjögur árin.“
„Ég vil leggja þetta embætti niður!
En ef það er ekki hægt þá þarf
að finna einhvern sérlega virðu-
legan í djobbið. Minn gamli kenn-
ari Páll Skúlason hefur auðvitað
verið nefndur ótal sinnum og hann
hefur gengið í endurnýjun lífdaga
undanfarið. Verið beinskeyttari og
afdráttarlausari en fyrrum, fljótari
að kjarnanum. Annars dettur mér
enginn í hug og veldur þar mestu
virðingarleysi mitt fyrir þessu
djobbi!“
Ragna Árnadóttir
fyrrverandi dómsmálaráðherra
„Líklega nafnið sem heyrist oftast
nefnt í þessu samhengi og ekki að
ástæðulausu. Vönduð fagmann-
eskja en líka drulluskemmtileg við
óformlegri kringumstæður og ég
myndi vilja sjá meira af þeirri hlið
í forsetaembættinu – karakternum
frekar en embættismanninum.
Hún fer ekki í manngreinarálit og
sýnir öllum virðingu, er jarðbund-
in og laus við snobb.“
„Ragna Árnadóttir þætti mér fyrir-
myndar kandídat. Mig langar í
forseta sem getur talað við fólk án
þess að setja sig á háan hest, getur
vakið athygli fyrir geislandi nær-
veru hérlendis sem erlendis – mun
ekki koma okkur á kortið fyrir
bjánaskap eða verða of ginnkeypt-
ur fyrir peningafólki. Einhver sem
er „down to earth“, takk!“
„Hún hefur góðan bakgrunn og
menntun í þetta starf, kemur mjög
vel fyrir og er mjög líkleg til að
skapa góða sátt hjá bæði þingi og
þjóð.”
„Ragna er klár, hugsandi og vel
menntuð. Hún hvílir örugg í sjálfri
sér, hún veit hvað hún vill. Ragna
hefur mikla reynslu og er vinsæl.
Hún er ekki hrædd við almenn-
ingsálitið. Ragna er mjög töff og
sjarmerandi kona.“
Á næsta ár lýkur fjórða kjörtímabili Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta. Fimm einstaklingar hafa gegnt embættinu frá lýðveldisstofnun, enginn
lengur en fjögur kjörtímabil. Ólafur hefur ekkert gefið upp um
hvort hann hyggist sækjast eftir endurkjöri og freista þess að
brjóta þar með blað í sögu embættisins og verða sá fyrsti sem
situr í tuttugu ár á Bessastöðum.
Fjórða kjörtímabil Ólafs hófst 1. ágúst 2008. Hann beið með
að kynna að hann sæktist eftir endurkjöri þar til í ársbyrjun
sama árs. Ef hann heldur sig við álíka tímasetningu má ekki
búast við að hann láti neitt uppi um fyrirætlanir sínar fyrr en
snemma árs 2012.
Ólafur fæddist 14. maí 1943 og verður því 69 ára vorið 2012.
Mögulega mun hann þá kjósa að láta gott heita og setjast í
helgan stein, en margir af álitsgjöfum Fréttatímans telja þó allt
eins líklegt að hann muni sitja sem fastast. „Ólafur ætlar sér
greinilega að sitja eitt kjörtímabil í viðbót. Hann sættir sig ekki
við að fara af Bessastöðum með skottið á milli lappanna með
orðið „útrásarforseti“ brennimerkt á ennið á sér,“ segir einn af
viðmælendum blaðsins. Í þeim hópi er líka að finna fólk sem
telur Ólaf ætla að sitja áfram þar sem þörf sé á styrkri stjórn á
Bessastöðum vegna ólgu í stjórnmálalífi landsins.
Það skiptir höfuðmáli um umgjörð mögulegra forsetakosn-
inga á næsta ári hvort Ólafur ætlar sér að sækjast eftir endur-
kjöri eða ekki. Sitjandi forseti hefur aldrei fengið alvörufram-
boð gegn sér, en langur tími Ólafs á Bessastöðum, og megnar
óvinsældir hans í ákveðnum kreðsum, ýta undir þann mögu-
leika ef hann ákveður að láta slag standa.
Upp úr könnun Fréttatímans stendur annars tvennt. Í fyrsta
lagi vill afgerandi hluti aðspurðra leggja forsetaembættið
niður, og í öðru lagi að tveir einstaklingar voru nefndir oftar
en aðrir, fengu jafnvel fleiri tilnefningar en sitjandi forseti, sem
eru tíðindi út af fyrir sig. Þetta voru þau Ragna Árnadóttir,
fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Páll Skúlason heimspek-
ingur.
Hver verður á Bessastöðum?
Fréttatíminn leitaði til tæplega sextíu einstaklinga sem fylgjast vel með þjóðmálunum og bað þá að nefna hvern þeir vilja sjá á
Bessastöðum þegar næsta kjörtímabil forseta Íslands gengur í garð 1. ágúst 2012.
Framhald á næstu opnu
Vilja leggja niður
embættið
„Vonandi mun stjórnlagaþingið
taka af allan vafa um valdleysi for-
setans og í kjölfarið er hægt að losa
sig við þetta embætti sem er hvort
eð er ekkert annað en léleg öpun á
evrópska kóngaliðinu.“
„Ég vil engan forseta af því að hann
er engum til gagns né gleði.“
„Við skulum vona að þjóðin beri
gæfu til að nota árið til að leggja
niður þá skrautfjöður sem forseta-
embættið er. Hafi einhver getað
afsakað tilvist þess embættis,
hefur það farið lágt. Málskots-
rétti má koma fyrir hjá Alþingi eða
þjóðinni sjálfri og hvað er þá eftir?
Sveimhuga, handslappur fyrrum
vinstri maður sem ákvað að hætta
að berjast fyrir réttlátara þjóðfélagi
og verða ígildi konungs. Vonandi
áttar þjóðin sig á því og sparar sér
þær krónur sem fara í sjálfsupp-
hafninguna.“
„Mér finnst forsetaembættið hafa
beðið hnekki undanfarin ár og
sé ekki tilgang með embættinu
lengur.“
„Ég vil ekki annan forseta. Vil að
embættið verði lagt af. Sé ekki til-
ganginn.“
Ljósmynd Hari
14 úttekt Helgin 7.-9. janúar 2011