Fréttatíminn - 07.01.2011, Qupperneq 16
Ólafur Ragnar Grímsson
forseti
„Hann hefur áunnið sér traust
sem hann hafði áður glatað. Góður
árangur það.“
„Sterkur maður sem hefur sýnt að
hann er traustsins verður.“
„Hann verður hvort eð er á for-
setalaunum það sem hann á eftir
ólifað. Nýtum hann því endilega
sem lengst.“
„Það liggur fyrir að á svo viðsjár-
verðum tímum slakra stjórnmála-
manna verður að vera maður á
Bessastöðum sem getur virkað
sem öryggisrofi fyrir þjóðina.“
„Annars verður hann ekki til
friðs.“
„Ólaf Ragnar Grímsson. Það er
allt í rúst í pólitíkinni, bæði hjá
stjórnarflokkunum og stjórnarand-
stöðu. Við verðum þess vegna að
treysta forsetanum til að hafa vit
fyrir stjórnmálastéttinni. Það gerir
ekki nýr maður/kona í embætti
forseta.“
Næst viNælust
Dorrit Moussaieff
forsetafrú
„Demantadúllan á Bessastöðum
er miklu meira sameiningartákn
þjóðarinnar en maðurinn hennar.
Ræðurnar hennar yrðu örugg-
lega ekki sami gasklefinn og hjá
hennar ástkæra.“
„Ég tel mjög nauðsynlegt að finna
forseta sem fylgir engum prótó-
kollum. Fáir eru flinkari í því en
einmitt Dorrit; vandinn er bara
hvað hún er ritskoðuð af starfs-
mönnum forsetaembættisins. Þeir
ná yfirleitt að hylma yfir öll snið-
ugu uppátækin hennar.“
„Því hún hefur verið í ágætis þjálf-
un undanfarin ár og kann þetta. Þá
virðist hún vera hlý og góð og nær
vel til almennings með einlægri
framkomu sinni. Ég held að þjóðin
þurfi á slíkum forseta að halda
næstu árin.“
Gerður Kristný Guðjónsdóttir
rithöfundur
„Flott saga ef höfundur Ballsins
á Bessastöðum endaði þar. Hún
myndi alla vega slá upp balli – svo
mikið er víst!“
„Ef ég mætti velja uppáhalds,
uppáhalds? Gerður Kristný er
svarið. Konan er klár, skemmtileg
og hefur unnið ötullega að því að
bæta ímynd Bessastaða með bók-
unum sínum um prinsessuna og
forsetann sem þráir að vera ýtu-
stjóri. Hún átti auðvitað við ofurefli
að etja í þessum ímyndarmálum,
en ef hún fær sjálf að setjast í stól
forseta eru möguleikarnir ótak-
markaðir. Lifi Gerður Kristný og
fósturjörð vor!“
„Gerður Kristný. Væri ekki snilld
að fá aftur inn á Bessastaði flotta
konu úr menningarlífinu? Og hver
segir að forsetinn þurfi að vera
aldursforseti? Hún hefur hjartað
á réttum stað, kann vel á þjóðar-
sálina og gæti veitt mömmulegar
umvandanir og gagnrýni í bland
við kraft og innblástur.“
Þórarinn Eldjárn
rihöfundur
„Óumdeildur maður sem gæti gert
embættið aftur að sameiningar-
tákni, hógvær og líttillátur og mun
taka embættið fram yfir sjálfan
sig. Fáir hafa betra vald á íslenskri
tungu og ekki myndi skaða að for-
seti landsins væri húmoristi.“
„Þórarinn Eldjárn væri fínn forseti.
Hefur sterka genetíska tengingu
og svo held ég að góður fyrripart-
ur sé nú vel til þess fallinn að leysa
flóknar milliríkjadeilur!“
„Erfitt val. Þeir menn og kon-
ur sem ég treysti almennt vel til
verka í stjórnmálum, vil ég helst að
finni sér öflugri farveg fyrir sína
hæfileika en þetta embætti. Helst
einhvern listamann, þó engan sem
er klikkaður. Ég segi Þórarinn
Eldjárn.“
EiNNig NEfNd
Kristín Ingólfsdóttir
rektor Háskóla Íslands
„Hún á flekklausan feril, er ópóli-
tísk og býr yfir þokka sem sæmir
forseta Íslands.”
„Ég tel að mestar líkur séu á að
finna sigursælan mótframbjóð-
anda gegn Ólafi Ragnari í mennta-
og menningarlífi. Ég er í engum
vafa um hvern ég myndi styðja:
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, hefur staðið sig vel á
mjög erfiðum tímum í starfi sínu.
Hún er menningarleg en kemur
ekki úr röðum hinna talandi stétta,
heldur vísindagrein. Kristín hefur
líka reynslu af stjórnunarstarfi og
pólitík því háskólapólitík er stund-
um jafnvel illvígari en pólitíkin í
leikhúsinu við Austurvöll. Hún er
laus við að hafa tekið þátt í flokka-
pólitík og kemur tandurhrein út úr
útrásinni – öfugt við Ólaf Ragnar
sem lét skrifa heila bók um sig og
ástir útrásarvíkinga.“
Egill Helgason
sjónvarpsmaður
„Egill Helgason er rétti maður-
inn. Hann er þjóðlegur mennta-
maður eins og Kristján Eldjárn,
kann frönsku eins og Vigdís og
er heimsborgari eins og Ólafur
Ragnar. Að auki hefur hann ríka
réttlætiskennd og hefur gegnt
lykilhlutverki í uppgjöri síðustu
ára. Síðast en ekki síst hefur hann
kímnigáfu.“
„Alþýðleg eftirhrunshetja en samt
með kúltúrinn á hreinu. Talar
allar heimsins tungur og hefur
alþjóðleg sambönd, á góðan gest-
gjafa í konu sinni og son sem lítur
út eins og prins. Eini gallinn við
Egil á Bessastaði er útgangurinn
á honum. Karl Berndsen þyrfti að
fylgja með í framboðspakkanum.“
Jón Gnarr
borgarstjóri
„Forsetaembættið hefur fáar skyld-
ur sem skipta raunverulegu máli
og myndi henta Jóni miklu betur
en borgarstjórastóllinn. Ólafur
Ragnar Grímsson er búinn að sýna
að embættið snýst að mestu um að
vera performer og það eru fáir jafn
færir á því sviði og hinn margverð-
launaði Jón Gnarr.“
„Jón Gnarr hefur staðið sig svo vel
sem borgarstjóri að hann mætti al-
veg spreyta sig á forsetaembættinu
líka. Mér fyndist mjög hressandi
að senda hann í „dragi“ til að hitta
Englandsdrottningu eða sjá hann
veita fálkaorðurnar í Star Wars-
búningi.“
Þorsteinn Pálsson
fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins
„Diplómatískur miðju/hægri-
maður með ágæta pólitíska innsýn
og gæti mögulega leitt Evrópu-
umræður þjóðarinnar upp á hærra
plan.“
Björk Guðmundsdóttir
söngkona
„Af því að hún hefur bein í nefinu,
stendur með Íslandi, er alþjóðleg
og kemur óvenjulega fyrir sig
orði.“
Aðrir:
Anthony Karl Gregory
athafnamaður
„Er frekar líkur Barak Obama
og svo væri gaman að fá loks-
ins hörundsdökkan mann á
Bessastaði. Yrði hann líka ekki
sá fyrsti í Evrópu? Borðleggj-
andi að mínu viti.”
Guðrún Pétursdóttir
formaður stjórnlaganefndar
„Klassakerling með alþýðlegu
tötsi. Heillandi, hrífandi, skarp-
greind og frekar óumdeild.
Vigdís 2.0.”
Sigríður Þorgeirsdóttir
heimspekingur
„Glæsileg, mælsk og menn-
ingarleg með hjartað á réttum
stað. Jafn vel heima á hálend-
inu og í hámenningu megin-
landsins.”
Bergþór Pálsson
söngvari
„Hann kemur vel fyrir, er vel
máli farinn á nokkrum tungu-
málum, siðprúður og jákvæð-
ur.“
Margrét Frímannsdóttir
fangelsisstjóri
„Flott kona. Frábær fangelsis-
stjóri. Íslendingar eiga auðvelt
með vinstrisinnuð sameining-
artákn.“
Kristinn Sigmundsson
óperusöngvari
„Ég vil sjá Kristin Sigmunds-
son á forsetastóli. Hann er
virtur listamaður víða um lönd,
gagnmenntaður á sviði lista og
vísinda, talar fjölda tungumála,
er djúpþenkjandi og réttsýnn
en umfram allt er ekki hægt
að hugsa sé hógværari og auð-
mjúkari mann.“
16 úttekt Helgin 7.-9. janúar 2011