Fréttatíminn - 07.01.2011, Qupperneq 20
Kennsla hefst
10. janúar
M eð dúndurdóma fyrir þriðju plötu sína, The Jar, þeysist Þórunn Eg-ilsdóttir, 35 ára, á milli Berlínar og
Lúxemborgar þar sem hún er búsett. Útvarps-
þátturinn hennar á föstudagskvöldum á lúxem-
borgsku stöðinni DNR er kominn í pásu því hún
er í snemmbúnu fæðingarorlofi – eins og tíðk-
ast í Lúxemborg – og undirbýr fæðingu dóttur
sinnar í febrúar.
Lög og texta plötunnar vann hún með eigin-
manni sínum, Thomasi Schoos, sem hún giftist
í júlí í fyrrasumar í Skotlandi – svo að enginn
vina þeirra og ættingja gætu kvartað yfir ójafn-
ræði og allir þyrftu að ferðast. Giftingin fór
Þórunn
fær kraft
og inn-
blástur
á Íslandi
Rifust á Maldív-eyjum
og giftust í Skotlandi.
Söngkonan Þórunn
Egilsdóttir, þátta-
stjórnandi í útvarpi
og sjónvarpi og blaða-
maður í Lúxemborg,
hefur gefið út þriðju
plötuna sína með
eiginmanninum og fá
þau góða dóma ytra.
Þau bíða eftir erfingj-
anum á milli þess
sem þau skipuleggja
tónleika.
fram þrátt fyrir hörkurifrildi á sólar-
ströndum Maldív-eyja í aðdraganda
hennar. Þar sömdu þau hluta laganna
á plötuna og reyndu hvort um sig af
fremsta megni að fá sitt fram.
„Við erum bæði svo ákveðin og í
reyndinni svo lík. Hann er Dani og ég
Íslendingur. Hann er blaðamaður og
ég líka. Hann er tónlistarmaður og ég
tónlistarkona. Bæði erum við fædd í
Lúxemborg og höfum sama smekk á
tónlist þótt við komum úr mismunandi
áttum í tónlistinni,“ segir Þórunn og
staðfestir ekki annað en að þau eigi
jafnmikið í plötunni. „Það er hins
vegar svo fyndið hvað maður verður
stundum dónalegur við maka sinn en
er alltaf kurteis við annað fólk. Á þess-
um tíma hefðum við helst viljað kasta
píanóinu og gítarnum hvort í annað,“
segir hún og hlær. „Við rífumst ekk-
ert í dag.“
Í þýska sjónvarpinu
Plötuna sömdu þau þó einnig að hluta
til hér á landi. „Thomas elskar Ísland
því landið er troðfullt af listamönnum
og við fáum innblástur á hverju götu-
horni,“ segir Þórunn. „Og bæði elskum
við villta náttúru landsins og að við Ís-
lendingar erum ekki eins og Skandi-
navar, heldur svo óhefluð í gúmmí-
stígvélunum ef við viljum. Þá er svo
ótrúlega mikið af færum listamönnum
hér, til dæmis Hjaltalín og Sigur Rós.“
Þau hjónin blanda saman popp- og
kvikmyndatónlist með aðstoð breska
framleiðandans Ian Livingstone, sem
hefur unnið tónlist fyrir breska ríkis-
sjónvarpið BBC og nýju Harry Potter-
myndina. Fyrri plötur Þórunnar voru
poppaðar. „Ég var orðin þreytt á því.
Það er ekki línan sem ég vildi fylgja,“
segir hún. Þau hjónin gáfu sjálf út
plötuna og hún hefur verið til sölu
á iTunes. Þau stefna hins vegar á að
dreifa henni um Ísland, Frakkland og
Þýskaland.
Hljómsveit þeirra hjóna státar af
tíu tónlistarmönnum. „Við vorum svo
heppin að Bank de Luxembourg keypti
hluta upplagsins svo við gátum greitt
tónlistarmönnunum okkar laun,“ segir
hún. „Já, það er rétt, við höfum fengið
góða dóma og fína athygli. Á sunnu-
daginn verðum við til dæmis filmuð
af þýskri sjónvarpsstöð á tónleikum
okkar, þeirri sömu og tók upp útgáfu-
tónleikana.“
Þáttastjórnandi í áratug
Þórunn hefur haft mörg járn í eld-
inum síðustu ár. Auk útvarpsþáttarins
og tónlistarferilsins hefur hún stýrt
lífsstílstengdum sjónvarpsþætti og
sést reglulega á skjánum í Lúxemborg
síðustu tíu ár. Hér áður fyrr stjórnaði
hún þætti um Hollywood-stjörnur og líf
þeirra á RTL-sjónvarpsstöðinni í Lúx-
emborg í átta ár. Auk þessa hefur hún
skrifað greinar í blöð þar ytra. Hún
hefur ekki gefið sjónvarpsferilinn upp
á bátinn og vonast til að landa hlutverki
þáttastjórnanda á þýskri sjónvarpsstöð
sem hún hefur verið í prufum fyrir.
„Ég get ekki sagt meira um það því
ég veit ekkert hvernig þetta endar.
Núna er fókusinn hins vegar á fæðingu
dóttur okkar. Við ætlum því að reyna
að taka lífinu eins rólega og við getum,
en veita viðtöl. Við höfum samt bók-
að okkur á tónleika í Brussel þremur
vikum eftir áætlaðan fæðingardag. Ég
vona að það takist vel til.“
Þórunn bjó á unglings
árunuM
á Íslandi
Kúltúrsjokk í
kennslustundum
Þórunn Egilsdóttir hefur mestalla
sína tíð búið í Lúxemborg
en bjó þó á unglingsárunum
með móður sinni og tveimur
systkinum á Íslandi. Hún gekk í
10. bekk í Árbæjarskóla og fór í
kjölfarið í Versló og Söngskólann
í Reykjavík.
„Mér líkaði mjög vel en viðurkenni
að þetta var rosalegt kúltúrsjokk,
því í Lúxemborg er skólinn svo
ótrúlega strangur. Við börnin
fengum prik á puttana værum við
ekki til fyrirmyndar. Kennararnir
höfðu valdið í höndum sér.
Hins vegar upplifði ég hér að
krakkarnir voru í uppreisn gegn
kennurunum. Það truflaði mig og
ég velti því fyrir mér hvað væri
sannleikurinn, hvað rétt og hvað
rangt, hver væri reglan og hvert
væri lífið. Þessi reynsla hafði
þau áhrif á mig að ég bjó mér til
minn eigin sannleika, mínar eigin
reglur.“
Um Þórunni
Fædd 3. 3. 1975 í Lúxemborg
Gekk í Versló
Gaf fyrst út The Moment
inbetween 2006
Kom laginu Complicated á
toppinn í Lúxemborg og í
spilun í Þýskalandi
Gaf út Superfishreality 2008
Þriðja platan, The Jar, kom út
fyrir jól
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
20 viðtal Helgin 7.-9. janúar 2011