Fréttatíminn - 07.01.2011, Page 44
44 heilsa Helgin 7.-9. janúar 2011
Matur og einbeiting
Ef þú skoðar tölvupóstinn þinn eða
horfir á sjónvarpið um leið og þú borðar
er líklegt að þú borðir meira yfir daginn
en þú annars myndir gera. Þetta kemur
fram í nýrri, bandarískri rannsókn. Tveir
hópar voru skoðaðir; annars vegar fólk
sem var truflað við að borða og hins
vegar fólk sem einbeitti sér algerlega
að matnum. Hálftíma eftir máltíð mundi
fyrri hópurinn með naumindum hvað
var í matinn og fann auk þess mun fyrr
til svengdar en seinni hópurinn.
Hvenær sólarhringsins er best að mæta í ræktina?
Fitubrennsla á morgnana – vöðvauppbygg-
ing seinnipartinn
Á næstu dögum byrja sextíu mismun-andi námskeið hjá World Class. Þar á meðal eru dansnámskeið, spinning
fit-námskeið, átak kvenna í yfirvigt, ketilbjöll-
ur, herþjálfun og zumba-fitness.
„World Class býður upp á samtals 350 mis-
munandi tíma á viku þannig að allir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Gígja Þórð-
ardóttir, deildarstjóri heilsuræktar. Meðal nýj-
unga eru ketilbjöllunámskeið, TRX Spinning
og TRX Combó. „Ketilbjöllur eru lóð sem eru
í laginu eins og litlir boltar með handfangi.
Með þeim eru gerðar ýmsar æfingar, bæði
fyrir byrjendur og lengra komna. Ketilbjöll-
ur eru mikið notaðar í cross-fit og þær hafa
verið vinsælar hjá lyftingafólki en nú hefur
almenningur fengið aukinn áhuga á þeim,“
segir Gígja en fólk þarf að skrá sig sérstak-
lega á námskeiðið.
TRX Combó og TRX Spinning eru einn-
ig ný námskeið sem sækja fyrirmynd sína í
æfingar sem bandaríski herinn notar. „TRX
Combó er blanda af TRX-æfingum og hefð-
bundnari styrktaræfingum en TRX Spinning
er blanda af TRX-æfingum og spinning. Notuð
eru svokölluð TRX-bönd, sem hanga niður
úr loftinu. Fólk notar eigin líkamsþyngd við
æfingarnar og uppsker flotta, langa vöðva og
mjög sterka kvið- og bakvöðva! Þetta eykur
bæði styrk og þol,“ segir Gígja.
Í fyrsta sinn um langt skeið býður World
Class konum sem eru of þungar upp á lífsstíls-
námskeið, Lífsstíll 20+. „Við höfum verið með
átaksnámskeið kvenna en það er alltaf ein og
ein kona í yfirvigt sem þarf mikla aðstoð við
að ná kjörþyngd. Sú sem mun kenna á þessu
námskeiði þekkir þetta vel af eigin reynslu.
Hún hefur sjálf glímt við aukakílóin og náð
góðum árangri við að koma sér í form.“
Spinning sívinsælt
Spinning er alltaf vinsælt og til að koma til
móts við þann mikla áhuga er búið að útbúa
spinning-sali í World Class í Ögurhvarfi og
Spöng. Nýtt spinning fit-námskeið byrjar
10. janúar. „Þannig gefst fólki kostur á að
tryggja sér öruggt sæti á hjólinu. Farið verður
í grunninn á spinning og fólk fær lyftingapró-
gramm sem það getur gert 2-3 í viku,“ segir
Gígja og lofar skemmtilegu námskeiði. En af
hverju er spinning svona vinsælt? „Það er svo
mikill kraftur og brennsla í spinning. Fólk
svitnar almennilega og tekur vel á því og síð-
an er spiluð fjölbreytt og skemmtileg tónlist.
Svitinn er líka mikill í öðrum tímum, svo sem
HotYoga og tabata-tímum. Tabata er svokölluð
skorpuþjálfun þar sem gerðar eru æfingar í
tuttugu sekúndur og hvílt í tíu sekúndur og
það svo endurtekið átta sinnum. Þetta gefur
mjög góðan árangur en skorpuþjálfun er talin
ein sú árangursríkasta í líkamsþjálfun í dag.“
Opnir tímar þar sem kvið- og bakvöðvar
eru í aðalhlutverki hafa verið mjög vel sóttir.
„Þeir tímar eru gríðarlega árangursríkir. Þar
er verið að styrkja miðju líkamans með bolta-
og pilates-æfingum sem hafa jákvæð áhrif á
líkamsstöðu og stoðkerfið, mjókka mittið og
styrkja bakið,“ segir Gígja en þeir sem eiga
kort í World Class hafa aðgang að öllum opn-
um tímum stöðvanna. „Í tækjasölunum eru
þjálfarar með mikla menntun og fjölbreytta
reynslu til taks til að leiðbeina fólki og setja
upp æfingaáætlun, því að kostnaðarlausu.
Hjá okkur starfar líka fjöldi einkaþjálfara og
næringarfræðinga sem gefa góð ráð varðandi
mataræðið.“
Loks segir Gígja frá því að World Class sé
með námskeið í samstarfi við Styrktarfélagið
Ás, samtök fyrir þroskahamlaða. „Þau nám-
skeið eru ótrúlega skemmtileg og ganga mjög
vel. Það er svo gaman að æfa í World Class!“
-sis
„Það fer eftir því hvort maður er að
hugsa um fitubrennslu eða að byggja
upp vöðvamassa,“ segir Kristján Jóns-
son, einkaþjálfari hjá Sporthúsinu, en
hann hefur tuttugu ára reynslu í faginu.
„Árangursríkast er að gera úthaldsæf-
ingar á fastandi maga, eins fljótt og hægt
er eftir að maður vaknar. Þá er líkaminn
í besta stuðinu til að brenna fitu vegna
stöðunnar á hormónakerfi líkamans. Þá
er lág staða á insúlíninu sem er hvati til
fitubrennslu,“ segir hann og bætir við
að gott sé að láta 30-60 mínútur líða frá
því að æfingu er lokið og þar til morgun-
verðurinn er borðaður.
Sé markmiðið að byggja upp vöðva-
massa er hins vegar best að gera æf-
ingarnar á milli klukkan fjögur og sex
seinnipartinn. „Það er vegna þess að þá
eru flestir búnir að innbyrða þá orku sem
þarf til að framkvæma þessar æfingar
og minni líkur á að líkaminn noti eigin
vöðvamassa sem orkugjafa. “ -sis
Hlutfall hitaeininga
Í einu grammi af fitu eru helmingi
fleiri hitaeiningar en í einu grammi af
kolvetnum eða einu grammi af próteini.
Þess vegna þyngist maður meira af
því að borða jafnmikið magn af fitu og
kolvetnum eða próteini. Sé ætlunin að
léttast ætti að gæta þess að hlutföll
næringarefna í matnum skiptist rétt.
Prótein ættu að vera um 20%, fita í
mesta lagi um 30% og kolvetni um
50%. Þá er mikilvægt að borða minnst
30 grömm af trefjum daglega. Engar
hitaeiningar eru í vatni.
World ClaSS spennandi nýjungar
Sextíu námskeið að hefjast
Kristján Jónsson, einkaþjálfari
Gígja Þórðardóttir, deildarstjóri heilsuræktar hjá World Class. Ljósmynd/Hari