Fréttatíminn - 07.01.2011, Qupperneq 46
46 heilsa Helgin 7.-9. janúar 2011
Meiri hreyfing
gæti fyrirbyggt
þunglyndi
Fjöldi rannsókna sýnir að hreyfing
hefur jákvæð áhrif á þunglyndi. Nú
er komið í ljós að regluleg hreyfing
gæti haft fyrirbyggjandi áhrif á
þunglyndi. Þetta eru niðurstöður
viðamikillar rannsóknar á vegum
dönsku lýðheilsustofnunarinnar
þar sem fylgst var með heilsufari
18 þúsund Dana í 26 ár. Það er
1,8 sinnum líklegra að konur sem
hreyfa sig minna en tvo tíma
vikulega fái þunglyndi en konur
sem hreyfa sig fimm tíma eða
meira á viku. Fyrir karla er þessi
stuðull 1,4.
Body Control Pilates
Styrkur, liðleiki og hreyfing
l inda Pétursdóttir er önnum kafin þessa dag-ana, enda janúar einn annasamasti mánuður ársins í Baðhúsinu, þar sem hún er eigandi.
Linda gaf sér þó tíma til að svara nokkrum spurn-
ingum Fréttatímans.
Hvað er það helsta sem er í boði hjá Baðhúsinu?
„Fjölbreyttir og skemmtilegir tímar í stundaskrá
eru uppistaðan í starfsemi Baðhússins.“
Hvaða námskeið eru ný og hvernig eru þau?
„Nýjasta námskeiðið er flamenco, sem kennt
verður á sex vikna námskeiði, og stelpujóga fyrir
6-8 ára stelpur. Konur sem eru í KK-áskriftar-
klúbbnum okkar borga ekkert aukalega fyrir nám-
skeið því þau fylgja með áskriftinni. Svo eru opnir
tímar í afró, magadansi og hot jóga, sem er það
vinsælasta í dag.
Hvaða námskeið hafa verið vinsælust, fyrir utan
hot jóga?
„Heilsuátaksnámskeið eru gríðarlega vinsæl en
það eru sex vikna átaksnámskeið þar sem konur fá
meira aðhald og fræðslu. Þau er frábær leið til að fá
aðstoð við að koma sér af stað í átt að betri heilsu,
svona í upphafi árs. Heilsuátaksnámskeiðin eru vin-
sæl árið um kring. Þrátt fyrir að konur æfi nú jafnar
yfir árið vilja þær koma inn á námkeið öðru hvoru
eða i einkaþjálfun. Námskeiðin hafa samt breyst í
gegnum tíðina. Við erum stöðugt að bæta við okkur
þekkingu og nýjungum sem við nýtum í starfinu og
miðlum til kvennanna.“
Er mismunandi eftir aldri hvernig konur æfa?
„Já, það er algengara að konur róist og fari meira
inn á við eftir því sem þær eldast. Jafnframt er
algengara að þær vilji lægri og þægilegri tónlist.
Þetta á sér þó undantekningar eins og svo margt
annað.“
Hvað er skemmtilegast við að æfa í Baðhúsinu?
„Það er tvímælalaust stemningin við það að vera
á konustöð. Það skapar notalega og hlýja stemn-
ingu. Upplifunin hér er eins og þetta sé klúbburinn
þinn. Að koma í Baðhúsið, og sjá sömu andlitin ár
eftir ár, ásamt því að ný andlit bætast auðvitað í
hópinn.“
Hvaða tímar eru í uppáhaldi hjá þér sjálfri?
„Ég er þessa dagana í einkaþjálfun hjá einum
þjálfaranna hérna. Tíminn minn er sambland af
pilates, jóga, styrktaræfingum og teygjum. Þetta er
það form sem hentar mér persónulega best.“
Hægt er að kynna sér stundaskrána betur á
heimasíðunni, www.badhusid.is -sis
Ef fólk vill minnka ummál sitt, hvort er
brennsla eða vöðvauppbygging mikil-
vægari?
„Það fer eftir vöðvauppbyggingu
fólks. Þeir sem eru með stóra vöðva ættu
að gera þol- og brennsluæfingar til að
minnka ummálið. Þeir sem eru með lítinn
vöðvamassa ættu helst að byggja hann
upp fyrir framtíðarbrennslu vegna þess
að stærri vöðvar brenna fleiri hitaein-
ingum en litlir vöðvar,“ segir Valur Hentze
Úlfarsson íþróttafræðingur.
Hvað er best að gera til að koma sér úr
sófanum og í líkamsrækt?
„Fá leiðsögn, fá einhvern til að pína
sig áfram. Ég ráðlegg þeim sem eru að
stíga sín fyrstu skref í ræktinni að byrja
hjá einkaþjálfara í einn til þrjá mánuði.
Eitt besta ráðið er einfaldlega að mæta í
ræktina og koma því inn í daglega rútínu
en það er um leið það erfiðasta sem fólk
gerir. Ef það tekst ekki gefst fólk fljótt
upp. Gott er að æfa með öðrum. Það
pressar á mann að mæta en getur líka
dregið úr mætingu ef annar er latur að
koma sér af stað.“ -sis
H erþjálfun er eitt vinsælasta námskeiðið hjá Heilsuaka-demíunni í Egilshöll. Egill
Örn Egilsson þjálfari segir herþjálf-
unina góða alhliða líkamsrækt sem
henti þeim sem vilji komast fljótt
í gott form. „Í herþjálfun er tekið
hressilega á því og enginn fer svik-
inn út úr tíma. Við erum með eina
herþjálfunarsal landsins. Hann er
innréttaður eins og raunverulegur
herþjálfunarvöllur með þrauta-
brautum, hindrunum og netum
sem eru notuð við æfingarnar. Fólk
notar líka mikið eigin líkamsþyngd
við æfingar, eins og t.d. armbeygjur,
og margar æfingar byggjast á sam-
vinnu. Þess vegna hefur herþjálf-
unin verið eftirsótt fyrir hópefli,“
segir Egill.
Mikil áhersla er lögð á sjálfsaga
og að fólk geri æfingarnar rétt.
„Eftir um sex vikna þjálfun ætti
fólk að sjá árangur, það farið að
léttast og komið í betra form,“ segir
hann. Æfingarnar eru sniðnar að
þörfum hvers og eins og henta því
bæði þeim sem eru í góðri þjálfun
og þeim sem eru að stíga sín fyrstu
skref í líkamsrækt.
Egill segir hersalinn skapa réttu
stemninguna og að félagsskapur-
inn hafi ekki minna að segja en
æfingarnar sjálfar. „Æfingarnar
eru mjög fjölbreyttar og herþjálfun
hentar tvímælalaust fólki á öllum
aldri. Við bjóðum líka upp á mat-
arprógramm fyrir þá sem vilja.“ -sis
Minna ummál – brennsla
eða vöðvauppbygging?
H elga Lind Björgvinsdóttir ætl-ar að kenna fólki Body Control Pilates hjá Hreyfingu á næst-
unni. Þetta er nýtt námskeið sem ekki
hefur verið kennt hérlendis fyrr. „Body
Control Pilates er sambland af styrktar-
og teygjuæfingum. Æfingarnar styrkja
alla vöðva líkamans svo að þeir verða
langir og fallegir. Einnig styrkja þær
kvið, mjóbak og rassvöðva og bæta lík-
amsstöðu. Maður réttir úr sér og lærir
að hreyfa sig rétt,“ segir Helga Lind
sem lærði Body Control Pilates í Lond-
on. „Þetta er líka snilld fyrir íþróttafólk
sem vill bæta frammistöðu og getu og
getur fyrirbyggt meiðsl. Í raun er Body
Control Pilates alhliða íþróttakerfi sem
tengir líkama og sál, losar um stress og
eykur almenna vellíðan. Markmiðið er
að undirbúa fólk fyrir klassískt pilates.“
Hvers vegna ákvaðstu að læra Body
Control Pilates?
„Ég er búin að lifa og hrærast í íþrótt-
um frá unga aldri. Ég vissi að mig lang-
aði til að vinna í íþróttageiranum. Ég
datt niður á þetta þegar ég bjó í Eng-
landi og fann strax að þetta var alveg
málið. Þetta var nýr vinkill á líkams-
rækt sem ég hafði ekki kynnst áður
og það skemmtilega er að það er alltaf
hægt að bæta við sig og byggja ofan á
þetta.“ -sis
Baðhúsið er með fjölbreytta stundaskrá
Hot jóga vinsælast
herþjálfun er alltaf vinsæl
Fljótt í form
Linda Pétursdóttir eigandi Baðhússins.
Valur
Hentze
Úlfarsson
íþrótta-
fræðingur.
Helga Lind Björgvinsdóttir