Fréttatíminn - 07.01.2011, Blaðsíða 52
52 bíó Helgin 7.-9. janúar 2011
G rímuklæddi glæpamanna-hrellirinn The Green Hornet ríður á vaðið í janúar. Kapp-
inn kom fyrst fram í útvarpsþáttum
í kringum 1930 og hefur því verið
lengi að. Sköpunarsaga hetjunnar er
ansi kunnugleg en á bak við grím-
una leynist glaumgosinn Brit Reid.
Hann er erfingi fjölmiðlaveldis sem
hefur lítinn áhuga á að feta í fót-
spor föður síns en þegar sá gamli
er myrtur setur hann upp grímu og
fer að berja á glæpamönnum. Seth
Rogen leikur hetjuna, dyggilega
studdur fínu fólki eins og Cameron
Diaz og Christoph Waltz (Inglorio-
us Basterds) sem leikur erkióvininn.
Michel Gondry (Eternal Sunshine
of the Spotless Mind) leikstýrir.
Lætin byrja síðan fyrir alvöru í
vor þegar þrumuguðinn Þór mæt-
ir með Mjölni á lofti. Þór er í hópi
Avenger-gengis Marvel ásamt Iron
Man, Captain America og fleirum
og gæti því látið meira að sér kveða
í bíó á næstu árum. Sá mikli Shake-
speare-aðdáandi Kenneth Bra-
nagh leikstýrir myndinni, sem
skartar Natalie Portman og Ant-
hony Hopkins í hlutverki Óðins,
en Þór keppir við Loka um hylli al-
föðurins.
Marvel heldur svo áfram með X-
Men: First Class, forleik að X-Men,
þar sem sagt er frá samstarfi Charl-
es Xavier og Magneto og hvernig
fylgjendur þeirra klofna í tvær and-
stæðar fylkingar. James McAvoy
leikur prófessor Xavier og Michael
Fassbender (Inglorious Basterds)
leikur Magneto. Þar sem hér er farið
langt aftur í tíma frá þeim X-Men-
myndum sem þegar eru komnar er
enginn Wolverine á ferðinni en fjörið
ætti þó ekki að skorta.
Ryan Reynolds skýtur upp koll-
inum í sumar í hlutverki tilrauna-
flugmanns sem þiggur magnaðan
hring að gjöf frá deyjandi geimveru
og verður þar með Green Lantern
og meðlimur í alheimsgeimlögreglu
með hringinn góða að vopni. Hinn
frábæri skúrkaleikari Mark Strong
(Robin Hood, Kick-Ass, Sherlock
Holmes) leikur höfuðóvininn og sá
trausti leikstjóri Martin Campbell
(Edge of Darkness, Casino Royale,
The Mask of Zorro) heldur utan um
allt saman.
Captain America er önnur Mar-
vel-hetja sem lætur að sér kveða í
sumar í Captain America: The First
Avenger. Captain America er frá-
brugðin öðrum Marvel-myndum að
því leyti að hún á sér stað í seinni
heimsstyrjöldinni. Þar segir frá
Steve Rogers sem er massaður upp
í ofurhermann í þeim tilgangi að
berja á nasistum og það gerir hann
með stæl í búningi í fánalitunum,
vopnaður ansi hreint flottum skildi
sem er eitt helsta einkennismerki
hetjunnar. Hópur góðra manna læt-
ur til sín taka í myndinni og nægir
þar að nefna Tommy Lee Jones
og Stanley Tucci, auk þess sem
Samuel L. Jackson kemur við
sögu sem Nick Fury en hann birtist
síðast í sama hlutverki í Iron Man.
Þá leikur Hugo Weaving aðaland-
stæðing Kafteinsins, sjálfan Red
Skull.
Jon Favreau hefur gert það gott
með tveimur myndum um Iron
Man og heldur sig við myndasög-
urnar þótt ofurhetjur séu fjarri
góðu gamni í Cowboys & Aliens. Þar
takast laganna verðir, kúrekar og
indíánar á við innrásarlið utan úr
geimnum sem ræðst til atlögu árið
1873. Harðjaxlarnir Daniel Craig
og Harrison Ford í helstu hlut-
verkum.
Ekki er á neina ofangreinda
kempu hallað þótt veðjað sé á að
blaðamaðurinn ráðagóði og ævin-
týragjarni, Tinni, steli senunni þeg-
ar myndasögubíó er annars vegar á
þessu ári. Steven Spielberg leik-
stýrir fyrstu myndinni af þremur
sem byggjast á ævintýrum Tinna
og óhætt er að segja að Spielberg
velji sér fína bók til að kvikmynda
en hann ríður á vaðið með Leyndar-
dómum einhyrningsins sem býður
upp á hressilega fjársjóðsleit á hafi
úti. Peter Jackson (The Lord of
the Rings) framleiðir myndina sem
verður í þrívídd. Jamie Bell leik-
ur Tinna en Andy Serkis, sem lék
Gollum í The Lord of the Rings, fer
með hlutverk hins ómissandi félaga
Tinna, Kolbeins kafteins. Tinni býr
yfir þeim galdri að geta sameinað
kynslóðir og eitthvað mikið þarf að
fara úrskeiðis hjá Spielberg ef hér
verður ekki á ferðinni fjölskyldu-
mynd sumarsins.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
bíóárið 2011 Stíft Sótt í myndaSöGurnar
Alls konar ofurhetjur og Tinni
bíódómur Klovn-the movie
Þór með hamarinn góða þarf að þola vélar hins lævísa Loka þegar þeir keppa um athygli Óðins.
Ofurhetjur sem rekja rætur sínar til myndasagna hafa verið frekar til fjörsins í bíó undanfarin ár
og nægir í því sambandi að nefna Spiderman, Batman, The Hulk og Iron Man. Ekkert lát verður á
ásókn þeirra á hvíta tjaldið árið 2011 þar sem meðal annarra nokkrar Marvel-hetjur láta sjá sig,
að ógleymdum stjörnublaðamanninum Tinna.
Þ eir sem hafa kynnst dönsku bjánunum Frank og Casper í sjónvarpsþáttunum Klovn vita
nákvæmlega að hverju þeir ganga í
bíómyndinni um þá félaga. Þetta er
bara stærri skammtur, grófari og þar
af leiðandi á köflum fyndnari. Myndin
er þó nokkuð veikari en bestu Klovn-
þættirnir en inn á milli taka þeir fé-
lagar algerlega óborganlega spretti
þar sem maður tárast bókstaflega af
hlátri.
Frank og Jesper eru eitthvað svo
dásamlega ósmekklegir, fallega sjúkir
og svo skemmtilega á skjön við borg-
aralega rétthugsun og í myndinni
leggja þeir í krossferð á kanó niður
Guden-ána á Austur-Jótlandi gegn
öllu því sem getur talist gott og heil-
brigt. Casper ætlar sér að gera þetta
að allsherjar kynsvallsferð með við-
komu á besta hóruhúsi í heimi, auk
þess sem til stendur að reykja feita
jónu og fleira skemmtilegt. Frank
setur hins vegar stórt og leiðinlegt
strik í reikninginn þegar hann hálf-
partinn rænir 13 ára frænda Miu og
kippir honum með í þeim tilgangi að
sýna og sanna að hann sé verðugur
faðir ófædds barns þeirra.
Uppákomurnar sem fylgja í kjölfar-
ið eru hver annarri vandræðalegri og
þeir sem þjást yfir heimsku og klaufa-
skap Franks í mannlegum samskipt-
um í einum Klovn-þætti þurfa held-
ur betur að bíta á jaxlinn til þess að
komast í gegnum myndina án þess að
fá í magann, standa upp og reyta hár
sitt. Þessi mynd er bootcamp-æfing í
meðvirkni með öllum þeim hrolli og
angist sem slíku fylgir.
En hún er líka óbærilega fyndin
þegar best lætur og líklega þarf að
leita allt aftur til Borat til að finna
viðlíka hláturgrátköst og Frank og
Casper framkalla þegar þeir ganga
lengst. Þeir félagar nýta sér það út í
ystu æsar að vera lausir undan þeim
hömlum sem sjónvarpið setur þeim
óhjákvæmilega og leyfa sér að vera
svo sjúkir að þegar maður gengur út
úr bíóinu er manni enn hlátur í huga
þótt manni finnist maður líka vera
svolítið óhreinn fyrir að hafa hlegið
að vitleysunni. Þórarinn Þórarinsson
Skemmtilega sjúklega sjúkt
Frank tekst eina ferðina enn að gera allt vitlaust.
Naglinn goðsagnakenndi Clint
Eastwood er síður en svo af baki dott-
inn þótt hann sé orðinn áttræður. Árið
2008 sendi hann frá sér tvær myndir;
Gran Torino, sem hefði getað verið
ágætis svanasöngur, og The Changeling.
Árið 2009 gerði hann Invictus með þeim Matt
Damon og Morgan Freeman í aðalhlutverkum og
nú er hann mættur aftur með Damon í Hereafter.
Hér segir Eastwood sögur þriggja einstaklinga
sem fléttast saman vegna ólíkra tengsla þeirra við
handanheima. Damon leikur ósköp venjulegan ná-
unga sem reynir að lifa með þeirri náðargáfu sinni
eða bölvun að geta haft samband við framliðna.
Inn í líf hans rata svo frönsk sjónvarpsfréttakona,
Eastwood og líf
eftir dauðann
Fallegt fólk á flótta
Það hlaut að koma að því að fallegasta
fólk í heimi, Angelina Jolie og Johnny
Depp, deildu saman hvíta tjaldinu og nú er
komið að því í The Tourist. Angelina leikur
unnustu eftirlýsts flóttamanns og velur
grunlausan bandarískan ferðamann, sem
Depp leikur, sem tálbeitu til að blekkja
þá sem eru á eftir kærastanum. Angelina
hengir sig á Depp í lest á leið til Vínar með
það fyrir augum að láta líta út sem þar sé
á ferð heitmaður hennar með nýtt andlit.
Depp er því fyrirvaralaust bæði orðinn
skotmark morðingja og hundeltur af
yfirvöldum. Aðrir miðlar: Imdb 6,0/10,
Rotten Tomatoes 21%, Metacritic 37/100.
Grínað með Gúlliver
Grínboltinn Jack Black bregður sér í
hlutverk Gúllivers í Gulliver’s Travels, nú-
tímalegri gamanútfærslu á hinni sígildu
sögu Jonathans Swift um manninn sem
varð risi þegar hann villtist til Puta-
lands þar sem innfæddir eru á stærð við
litlafingur venjulegrar manneskju. Hér
segir af ferðum Lemuels Gulliver sem
fær tækifæri til að skrifa ferðahandbók
og er sendur til Bermúda. Skútan hans
lendir í fárviðri og hann kemst því ekki á
leiðarenda heldur skolar honum á land
á eyjunni Liliput þar sem hann er upp á
náð og miskunn örsmárra eyjarskeggja
kominn. Aðrir miðlar: Imdb 4,5/10,
Rotten Tomatoes 22%.
sem endurmetur líf sitt eftir að
hún lifir af náttúruhamfarir, og
ungur breskur drengur, sem
missir tvíburabróður sinn í bíl-
slysi, en tengslin milli þeirra eru
svo sterk að dauðinn virðist ekki
geta rofið þau að fullu.
Aðrir miðlar: Imdb 7,5/10,
Rotten Tomatoes 48% ,
Metacritic 56/100.
Matt Damon leikur George Lonegan
sem er í sambandi við látið fólk.
Hinn kjaftfori og drykkfelldi Kolbeinn
kafteinn lætur sig ekki vanta þegar
Steven Spielberg sendir Tinna í leit að
fjársjóði Rögnvaldar rauða í sumar.
Hefur barnið þitt brennandi áhuga á
hestum? En vantar hestinn?
Hestur í fóstur er reiðklúbbur fyrir
börn sem hittist einu sinni í viku með
leiðbeinendum. Mikil áhersla er lögð á
að börnin læri hvað felst í því að eiga
hest og að hverju þurfi að huga í
umhirðu hesta.
Byrjendanámskeið hefst laugardaginn
8 jan!
Reiðklúbbar Íshesta í vetur
Við erum að byrja aftur með hinn
geysivinsæla reiðklúbb Íshesta sem
verður á sunnudögum frá kl. 11-14:00.
Leiðbeinandi verður Svandís Dóra
Einarsdóttir leikkona, sem er vinsæll
fararstjóri í sumarferðum Íshesta.
Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem
vilja njóta hestamennskunnar en hafa
ekki tíma til að eiga hesta sjálfir.
Nánari upplýsingar;
Íshestar-Sörlaskeið 26-220 Hafnarfjörður
S: 555-7000. info@ishestar.is - www.ishestar.is
Reiðklúbbur
fullorðinna