Fréttatíminn - 07.01.2011, Side 58
58 dægurmál Helgin 7.-9. janúar 2011
Plötuhorn Dr. Gunna
theater Island
Sóley
Sóley Stefánsdóttir er
23 ára. Hún stundar
tónsmíðanám og er hljóm-
borðsleikari í indie-band-
inu Seabear. Hún er á allt
öðrum slóðum á þessari
fyrstu sex-laga plötu
sinni, draumkennd og
dulúðug. Dútlandi píanó-
leikur einkennir músíkina
en önnur hljóðfæri og
aukahljóð, auk bjartrar
raddar Sóleyjar, fylla upp í
værukæran hljóðheiminn.
Platan dregur upp gamla
dökkbrúna stemningu
og kemur ímyndunarafli
hlustandans á flug. Hún
lofar mjög góðu fyrir plötu
í fullri lengd sem Sóley
hefur boðað að komi á
árinu.
amma
Svavar Knútur
Flestir skilja við hvað er
átt með „cover-plötu“,
en „tökuplata“ – hvað þá
„kráku-plata“ – er ekki
alveg að gera sig. Svavar
Knútur leggur til orðin
„voð“ og „voðaverk“, sem
er sniðugt en veldur aug-
ljósum ruglingi. Þetta er
hans voðaverk fyrir ömmur
sínar. Svavar er mjög fínn
söngvari, eins og hann
hefur áður sýnt, bæði sóló
og með Hrauni. Hann er
þægilegur og fer létt með
að sýna einlægni og sterka
nánd. Hér syngur hann
gömul íslensk lög með ein-
földu undirspili, oftast bara
einum kassagítar. Þetta er
einföld lítil hugmynd sem
gengur upp á angurværri
og nettri plötu.
alpanon
Hjaltalín og Sinfóníuhlj. Íslands
Terminal, besta íslenska
platan árið 2009, sýndi að
Hjaltalín er ein af albestu
starfandi hljómsveitum
landsins, leitandi band sem
brýtur upp poppformið.
Síðasta sumar hélt sveitin
tónleika með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og eru
þeim gerð skil á þessari
tvöföldu lúxusútgáfu (CD
og DVD). Lög af tveimur
hljóðversplötum eru hér
í nýjum útsetningum, auk
þriggja nýrra. Tónlist-
inni, sem var ærið hlaðin
og margflókin fyrir, er
velt upp úr sinfónískum
gúmmilaðihjúp og stundum
finnst manni ofhleðslan
tilgangslítil. Þetta var þó
tilkomumikið „læf“, eins og
sést á mynddiskinum.
MIDI.IS MIÐASALA 527 2102
HELGARBLAÐ
70%
Höfuðborgarbúa
lesa Fréttatímann
Samkvæmt könnun á vikudekkun 18.-28. nóvember
meðal 16 ára og eldri úr Viðhorfahópi Capacent.
F yrst og fremst er það ótrúlega mikill heiður að fá að vinna með þessum hópi,“ segir Melkorka sem hlaut
náð fyrir augum hins kröfuharða dans-
höfundar Wim Vandekeybus sem stjórnar
Ultima Vez í Brussel. „Flokkurinn hefur
starfað í rúm tuttugu ár og er einn fremsti
flokkurinn í samtímadansi í Evrópu í dag
og Brussel er hálfgerð Mekka samtíma-
dansins í Evrópu um þessar mundir. Þetta
er því frábært tækifæri fyrir mig þar sem
fjöldi fólks sækir um á hverju ári og hann
tekur mjög fáa inn,“ segir Melkorka.
Leiðir Melkorku og Wim Vandekeybus
lágu saman þegar hún fór í inntökupróf
fyrir kvikmynd sem hann var þá að undir-
búa. „Ég komst inn og lék í myndinni
sem byggði samt meira á leik en dansi.
Myndin er tveir og hálfur klukkutími og
er hluti af sviðsverki sem er á ferðalagi
og verður sýnt í öllum helstu borgarleik-
húsum í Evrópu.“ Til þess að fá hlutverkið
í myndinni þreytti Melkorka inntökupróf
hjá Vandekeybus. „Ætli þetta hafi ekki
verið eitthvað á milli 700 og 800 manns
sem þreyttu prófið og hann valdi örfáa.
Ég held að það hafi bara verið ég og einn
annar sem komumst í gegn.“
Þegar kvikmyndin var að baki fór
Vandekeybus að huga að sínu næsta
sviðsverki, Radical Wrong, og Melkorka
verður einn fárra dansara í þeirri sýn-
ingu. „Það eru bara sjö manns í sýning-
unni. Tvær stelpur, ég og ein önnur, og
fimm strákar en það er frekar óvenjulegt
að strákarnir séu svona margir,“ segir
Melkorka um sýninguna sem höfundur-
inn hugsar ekki síst fyrir unglinga.
Melkorka útskrifaðist af klassískri
braut Listdansskóla Íslands árið 2006 og
hefur verið við nám undanfarin fjögur ár í
Amsterdam og Brussel. Hún er meðlimur
í Íslensku hreyfiþróunarsamsteypunni
sem hefur starfað frá 2005 og sýnir þessa
dagana verkið Kandíland í Kassanum í
Þjóðleikhúsinu. „Það er svolítið mér að
kenna að hlé verður á sýningum á verkinu
núna vegna þess að ég er að fara út. Við
þurftum að þjappa sýningaplaninu saman
og sýnum síðustu sýninguna í bili á
laugardaginn,“ segir Melkorka sem segist
með ráðningunni hjá belgíska flokknum
fara frá því að vera fátækur námsmaður í
að verða fátækur listamaður.
melkorka maGnúsDóttIr Fékk eFtIrsótt starF hjá ultIma Vez
Ætli þetta hafi
ekki verið eitt-
hvað á milli
700 og 800
manns sem
þreyttu prófið
og hann valdi
örfáa.
Fátækur námsmaður verð-
ur fátækur listamaður
Dansarinn og danshöfundurinn Melkorka Sigríður Magnúsdóttir heldur af landi brott á sunnudag
og hefur störf með belgíska dansflokknum Ultima Vez á mánudaginn. Með þessu tekur hún stórt
skref fyrir dansara þar sem miklu færri komast að í Ultima Vez en vilja.
Melkorka er ráðin til ársins 2012 hjá Ultima Vez en ætlar að koma heim inn á milli í hléum og taka þátt í verkefnum hér. „Það er
alltaf gaman að geta flutt hingað vitneskju og þekkingu sem maður aflar sér úti í heimi.“ Ljósmynd Hari.