Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.01.2011, Page 60

Fréttatíminn - 07.01.2011, Page 60
60 dægurmál Helgin 7.-9. janúar 2011 loksins komin aftur Áður en ég dey er áhrifamikil og heillandi saga sem hefur notið fádæma vinsælda víða um heim. „Snilldarbók um lífið og dauðann … Þessi bók er afar sterk, vel skrifuð og ógleymanleg, bara frábær.“ GH / V ik a n „Ef þig langar í virkilega góða sögu þá lestu þessa bók, hún lætur engan ósnortinn.“ kÓS / E y mu n dS Son kilja www.forlagid.is G uðný Helgadóttir lætur aldurinn ekki stöðva sig, enda í fantagóðu formi. Hún er sjötíu og tveggja ára og kennir fólki á öllum aldri Tai Chi. „Ég er búin að kenna Tai Chi í meira en tíu ár; fyrst í Kramhúsinu og núna á morgnana í Hæðargarði þar sem ég kenni einnig leikfimi. Hæðargarður er félagsþjónustumiðstöð fyrir Háaleitishverfi og er opin öllum aldurs- hópum. Þar hef ég kennt leikfimi í 13 ár og nota Tai Chi-æfingar í bland, með skemmtilegum og góðum árangri,” segir Guðný. Til eru mörg Tai Chi-kerfi. Það sem Guðný notar er kennt við við Chen-fjölskylduna og kall- ast Chen Style. „Ég legg aðaláherslu á að kenna rétta líkamsbeitingu og að jarðtengja, eða með öðrum orðum að læra að „standa almennilega í lappirnar“. Síðan kemur allt hitt, sem er til dæmis samhæfing, jafnvægi, sem og að styrkja stoðkerfið og orkuflæðið. Tai Chi er að mínu mati frábær líkamsrækt og ekki skemmir fyrir að það er líka huglæg leikfimi. Maður sameinar hug og líkama í eitt flæði, ef svo má segja. Í Tai Chi er verið að leita eftir jafnvægi á milli jin og jang,” segir Guðný. Allar hreyfingar eru gerðar í slökun og með mikilli mýkt. „En á sama tíma er verið að nota styrk og orku. Þegar Guðný er spurð hvort hún sé ekki í betra formi en margir mun yngri brosir hún og segir: „Ég er betur á mig komin en ef ég væri ekki í Tai Chi. Þetta heldur mér við efnið.“ -sis V ið kokkarnir, sem erum að koma inn með þeim Óla og Andra, höf-um lengi aðhyllst þessa nýnor- rænu matargerð, segir kokkurinn Ólafur Ágústsson. „Við erum báðir búnir að vera á Vox og þar er höfð í heiðri þessi sama stefna sem gengur í raun út á það að nýta það hráefni sem okkur býðst hér heima. Að vera ekki að leita langt yfir skammt. Og þá erum við að tala um alla leið og við notum eingöngu krydd úr íslenskri náttúru og frá Skandinavíu. Við notum til dæmis ekkert vín í matargerðina sjálfa og helst engan pipar. Ekki nema bara rétt á kjötið.“ Upphafsmaður þessarar matreiðslu- hefðar, ef svo má segja, er René Redzepi, eigandi veitingastaðarins Noma í Kaup- mannahöfn. „Noma var valinn besti veit- ingastaður í heimi á síðasta ári og það sem við ætlum okkur að gera hér er smá skírskotun í það sem hefur verið gert þar en við gerum þetta algerlega eftir eigin höfði.“ Ólafur segir þessa eldamennsku ekki síst höfða sterkt til erlendra ferðamanna. „Þetta er kannski nokkurn veginn ná- kvæmlega það sem útlendingurinn vill og er að leita að. Ég er í það minnsta þeirr- ar trúar að það sé enginn tilgangur með því að koma til Íslands og borða svo bara alltaf asískan mat. Fólk hlýtur að koma til Íslands til þess að smakka það sem við erum að gera og það sem við eigum.“ Ólafur og Jóhannes fengu félaga sinn úr íslenska kokkalandsliðinu, Stein Óskar Sigurðsson, í lið með sér þannig að óhætt er að tala um að eitthvað verði um meist- aratakta í eldhúsi Sjávarkjallarans. Félagar kokkanna á Sjávarkjallaranum, Óli og Andri, hafa rekið Vegamót í tæp sex ár og ákváðu að slá til með kokkunum sem vildu opna sinn eigin stað til þess að geta haft algerlega frjálsar hendur í eld- húsinu. „Við gerum miklar breytingar á mat- seðlinum,“ segir Óli Már Ólason á Vega- mótum. „Við breytum staðnum líka aðeins þannig að það má segja að hann sé að fá smá andlitslyftingu.“  sjáVarkjallarinn nýjar áherslur með nýjum mönnum Guðný helGadóttir kennir tai Chi Þessi stefna gengur í raun út á það að nýta það hrá- efni sem okkur býðst hér heima. Landsliðskokkar í Kjallarann Meistarakokkarnir Ólafur Ágústsson og Jóhannes Steinn Jóhannesson hafa eignast veitinga- staðinn Sjávarkjallarann í félagi við þá Óla Má Ólason og Andra Björnsson, eigendur Vegamóta. Nýir eigendur Sjávarkjallarans hafa tekið matseðilinn í gegn og leggja áherslu á nýnorræna matargerð. Styrkur og slökun Guðný Helgadóttir Ég legg aðaláherslu á að kenna rétta líkamsbeitingu og að jarðtengja, eða með öðrum orðum að læra að „standa almenni- lega í lappirnar“. Lady GaGa tanaði yfir sig s öngdívan Lady GaGa er þekkt fyrir að binda ekki bagga sína sömu hnútum og samferða- menn hennar þegar kemur að stíl og klæðnaði. Hún hefur öðlast frægð fyrir djarfan klæðnað og sérstak- an stíl. Það tók þó sennilega út yfir allan þjófabálk á miðvikudaginn þegar hún tróð upp í The Oak Room í New York. Eitthvað hefur stúlkukindin farið óvarlega með brúnkubrúsann því hún mætti á svæðið hvít í andliti en appelsínugul á líkamann. Þótt hún kalli ekki allt ömmu sína efuðust þeir sem til þekkja um að hún hefði ætlað sér að líta svona út. Útlitið var síðan toppað með leðurdressi (ef leðurdress skyldi kalla) því það rétt náði að hylja það allra heilagasta. Lady GaGa alveg gaga.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.