Fréttatíminn - 21.01.2011, Page 2
Ríkið selur rúmlega
helmingshlut í Sjóvá
Fagfjárfestasjóðurinn
SF 1 hefur keypt
52,4% hlut í trygg-
ingafélaginu Sjóvá af
Eignasafni Seðlabanka Íslands. Kaupverðið
fyrir hlutinn er rétt um 4,9 milljarðar
króna, að því er fram kemur í tilkynningu
Seðlabankans, en heildarvirði Sjóvár er
samkvæmt þessu 9,35 milljarðar króna.
Söluverðið er nokkru lægra en rætt var
um í tengslum við tilboð fjárfestahóps sem
dró sig út úr söluferli félagsins í nóvember.
Heiðar Már Guðjónsson leiddi þann hóp. -jh
Njósnatölva á Alþingi?
Grunur leikur á að tölvu hafi verið komið
fyrir í auðu herbergi í húsnæði Alþingis
við Austurstræti í því skyni að brjótast inn
í tölvur þingmanna og tölvukerfi Alþingis,
hlaða niður gögnum og senda í aðra
tölvu, að því er Morgunblaðið greindi frá
í gær. Tölvan fannst í febrúar í fyrra en
öll auðkenni höfðu verið máð af henni. Öll
gögn eyddust út af tölvunni þegar hún var
tekin úr sambandi. Lögreglan rannsakaði
málið án þess að komast að niðurstöðu
en Morgunblaðið sagði að jafnvel hefði
leikið grunur á að tölvuþrjótar á vegum
uppljóstrunarvefsíðunnar Wikileaks hefðu
komið tölvunni fyrir. Málið kom til umræðu
á Alþingi í gær og forseti Alþingis fundaði
með þingflokkum og gerði þinginu form-
lega grein fyrir málinu. -jh
Andstaða við veggjöld
Mikill meirihluti sem afstöðu tók í könnun
MMR er andvígur veggjöldum til að fjár-
magna nýframkvæmdir í samgöngu-
málum, eða 81,9%, að því er fram kemur
á heimasíðu fyrirtækisins. Lítill munur
reyndist á afstöðu fólks eftir því hvort
það býr á höfuðborgarsvæðinu eða úti á
landi.-jh
Kók og saltfiskur
Mario Rotllant, aðaleigandi Coca-Cola á
Spáni, er sagður hafa keypt Vífilfell, fram-
leiðanda Coca-Cola hérlendis, af Þorsteini
M. Jónssyni. Frá þessu var greint í fréttum
Stöðvar 2 en í viðskiptablaði Morgun-
blaðsins í gær sagði að fyrirtækið Copesco-
Sefrisa, sem er í eigu Rotllants, hefði keypt
íslenskan saltfisk til langs tíma, eða á aðra
öld. Sala Vífilfells er sögð vera hluti af
skuldauppgjöri Þorsteins við Arion banka.
Coca-Cola-veldi Rotllants teygir sig einnig
yfir Miðjarðarhafið, til Marokkó, auk þess
sem hann er vínframleiðandi. Þá kemur
hann að hótelrekstri og er m.a. stofnandi
fyrirtækis sem annast ljósmyndasýningar.
-jh
Landspítalinn var rekinn með 52 milljóna
króna tekjuafgangi á árinu 2010 en það
er rúmlega 0,1% af heildarveltu, að því er
fram kemur í bráðabirgðauppgjöri. Heild-
arvelta spítalans á árinu var 40,1 milljarð-
ur króna. Rekstrarframlag ríkissjóðs var
33,1 milljarður. Starfsmönnum fækkaði
um 200 í fyrra og dregið hefur úr launa-
kostnaði um 1,2 milljarða króna. Launa-
kostnaður var langstærsti útgjaldaliður-
inn, 25,5 milljarðar króna. Lyfjakostnaður
lækkaði um 12% á árinu og rannsóknir
voru 17% færri en árið á undan. Meðal-
legutími sjúklings styttist heldur. Björn
Zoëga er forstjóri Landspítalans. -jh
Tekjuafgangur hjá Landspítalanum
52
milljónir
TEKJuAFGANGuR
LANdSSpÍLA
á árinu 2010
Samkvæmt
bráðabirgðauppgjöri
Stefán Héðinn Stefánsson sést hér yfirgefa embætti sérstaks saksókn-
ara í fylgd lögreglumanna. Mynd/Hari
SérStakur SakSóknari rannSókn á LandSbankanum
Skoðar milljarða millifærslur til MP og Straums á degi neyðarlaga
Sérstakur saksóknari handtók í gær
fjóra aðila tengda Landsbankanum og
gerði húsleit á fimm stöðum í höfuð-
borginni í tengslum við rannsókn á mál-
efnum Landsbankans. Húsleit fór fram
í Straumi, MP banka, Landsbankan-
um, Seðlabankanum og höfuðstöðvum
Landsvaka. Þeir sem voru handteknir
eru Stefán Héðinn Stefánsson, aðstoð-
arforstjóri Saga Capital og fyrrverandi
framkvæmdastjóri eignastýringarsviðs
Landsbankans og stjórnarformaður
Landsvaka, Jón Þorsteinn Oddleifs-
son, fyrrverandi forstöðumaður fjár-
stýringar Landsbankans og Þórir Örn
Ingólfsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri áhættustýringar bankans. Ekki
var komið í ljós hver fjórði maðurinn var
þegar Fréttatíminn fór í prentun í gær.
Í tilkynningu sem sérstakur saksókn-
ari sendi frá sér í gær kemur fram að
til rannsóknar séu millifærslur til MP
banka og Straums fjárfestingarbanka af
reikningi Landsbankans í Seðlabanka
Íslands og kaup Landsbankans á verð-
bréfum af sjóðum Landsvaka eftir lok-
un sjóðanna. Umrædd tilvik eru talin
hafa átt sér stað 6. október 2008, dag-
inn sem neyðarlögin voru sett á Alþingi
og sama dag og Landsbankinn var tek-
inn yfir af Fjármálaeftirlitinu. Að því er
Fréttatíminn kemst næst er um að ræða
endurhverf viðskipti þar sem Lands-
bankinn takmarkaði tap MP banka og
Straums með því að greiða milljarða til
bankanna tveggja daginn sem hann féll.
Í tilkynningu sérstaks saksóknara
kemur fram að um sé að ræða meint
brot, samkvæmt auðgunarbrotakafla
hegningarlaga, í tengslum við ráðstaf-
anir á fjármunum bankans, nánar til-
tekið skilasvik. Um sé að ræða verulega
fjárhagslega hagsmuni og tengist rann-
sóknin fjölda manns.
oskar@frettatiminn.is
a llsherjarnefnd Alþingis gerði „stór-kostleg mistök“ þegar hún keyrði í gegnum þingið að Jóel Færseth, litli
drengurinn sem staðgöngumóðir fæddi á
Indlandi, fengi ríkisborgararétt og það voru
„herfileg mistök af Alþingi að samþykkja
það,“ segir Vigdís Hauksdóttir, fulltrúi Fram-
sóknarflokksins í nefndinni. Hún var ekki
meðal flutningsmanna frumvarps nefndar-
innar um að veita Jóel og 42 öðrum íslenskan
ríkisborgararétt hinn 17. desember og segir
þetta í fyrsta sinn sem allsherjarnefnd sé
ekki einhuga í afstöðu sinni til þess hverjir
fái hér ríkisborgararétt.
„Ég segi þetta með hag barnsins í huga,“
segir hún og bendir á að barnið hafi ind-
verskan ríkisborgararétt staðgöngumóður-
innar sem auk þess sé gift, sem þýði að
indversku hjónin fari með forsjá drengsins.
„Fulltrúar dómsmálaráðuneytisins komu
[á fund nefndarinnar] og vöruðu við þessu
og ég hélt uppi einarðri andstöðu og sagði
þetta flækja málin, en stundum er ekki
hlustað. [...] Það var því meðvituð ákvörðun
formanns allsherjarnefndar og ákveðinna
aðila að barnið fengi íslenskan ríkisborgara-
rétt, sama hvaða afleiðingar það hefði fyrir
foreldrana,“ segir hún og bætir við að Atli
Gíslason, þingmaður VG, hafi verið henni
sammála. „En hann var fjarverandi þegar
málið var afgreitt.“ Þá hafi Ögmundur Jónas-
son innanríkisráðherra gengið úr sal við af-
greiðsluna.
Í dóm á Indlandi
Vigdís segir að færa leiðin hefði verið að ís-
lensku hjónin, Helga Sveinsdóttir og Einar
Færseth, hefðu komið ásamt drengnum og
indversku hjónunum hingað til lands og
gengið frá ættleiðingunni hér. Þá hefði Jóel
einnig fengið íslenskan ríkisborgararétt
þegar staðfest væri að Einar væri líffræðileg-
ur faðir hans. Samkvæmt heimildum Frétta-
tímans höfðu stjórnvöld í fyrstu aðeins undir
höndum fæðingarvottorð útgefið á Indlandi
um að íslensku hjónin væru foreldrar barns-
ins, en síðar hafi komið í ljós að indverska
konan fæddi Jóel.
Samkvæmt upplýsingum úr innanríkis-
ráðuneytinu er nú beðið svars indverskra
yfirvalda við fyrirspurn frá því milli jóla og
nýárs um það hvort Jóel hafi einnig indversk-
an ríkisborgararétt. Einnig var spurt hvort
indversk stjórnvöld mótmæli því að íslensku
hjónin fari með forsjá barnsins; geri þau það
ekki, geti Jóel komið heim. Ráðuneytið geti
hins vegar ekki afhent vegabréf Jóels nema
með vissu um að hjónin fari með forsjána.
Vigdís segir að þar sem svo mikil tregða sé
í málinu, þrátt fyrir alla hjálp innan- og utan-
ríkisráðuneytisins, sjái hún nú enga aðra
leið en að hinir íslensku foreldrar Jóels fari í
forsjármál við þá indversku fyrir dómstólum
ytra.
Atli Gíslason sagðist ekki geta tjáð sig
um mál Jóels þar sem hann væri að stíga um
borð í flugvél á á leið heim frá Brussel. Ekki
náðist í Róbert Marshall, formann allsherj-
arnefndar, eða Dögg Pálsdóttur, lögmann
hjónanna.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
aLþingi ForeLdrar JóeLS gætu þurFt að Fara í ForSJármáL á indLandi
Mál Jóels „stórkostleg mistök“
allsherjarnefndar og Alþingis
Vigdís Hauksdóttir, framsóknarmaðurinn í allsherjarnefnd, segir Alþingi hafa gert herfileg mistök
þegar það veitti Jóel Færseth ríkisborgararétt fyrir jólin. Vegna réttarins sé hann nú fastur á Ind-
landi. Fulltrúar allsherjarnefndar hafi hunsað ráðleggingar sérfræðinga innanríkisráðuneytisins.
Vigdís Hauksdóttir,
framsóknarmaður í
allsherjarnefnd.
Hér má sjá mynd af Jóel af Facebook-síðu hans. Íslenskir foreldrar hans bíða þess að geta komið með hann heim. hann hefur
ríkisborgararéttinn en ekki staðfestingu indverskra yfirvalda á því að íslensku foreldrarnir fari með forsjá hans.
Ég segi
þetta
með hag
barnsins
í huga
2 fréttir Helgin 21.-23. janúar 2011