Fréttatíminn - 21.01.2011, Blaðsíða 59
leikdómur Afinn
Verkið sjálft
er rislítið og
langt í frá
frumlegt en
það rennur
býsna ljúft.
Krúttleg sýning
Á Litla sviði Borgarleik-hússins leikur Afinn lausum hala. Þar er
sýndur uppistandseinleik-
ur Bjarna
Hauks
Þórssonar
með S ig -
urð Sigur-
jónsson í
hlutverki. Í
sameiningu
kryfja þeir afahlutverkið líkt
og þeir gerðu með föðurhlut-
verkið í Pabbanum um árið –
nema nú víxla þeir hlutverk-
unum og Bjarni Haukur er
leikstjóri.
Afinn er fyrirtaks skemmt-
un fyrir afa og annað fólk sem
komið hefur nálægt uppeldis-
störfum í víðasta skilningi
þess orðs – það mátti glöggt
heyra á viðbrögðum salarins
á frumsýningunni. Umfjöll-
unarefnið er æði skondið; fjöl-
skyldu- og samlíf af ýmsu tagi,
það að eldast og þroskast og
takast á hendur nýtt hlutverk.
Sigurður Sigurjónsson miðlar
efninu af reynslu og á afar vina-
legan hátt með látlausan húm-
or að vopni. Það grenjuðu fáir
úr hlátri en allir skelltu upp úr
á einhverjum tímapunkti eða
í það minnsta kímdu ítrekað.
Verkið sjálft er rislítið og
langt í frá frumlegt en það
rennur býsna ljúft. Leitast er
við að auðga frásögnina með
ýmsum tólum leikhússins
(tónlist, hljóði, leikmynd og
ljósum) og er það faglega leyst
og fallega.
Verk sem þetta býður vel
upp á það að þróast og „leikast“
til og ég sé vel fyrir mér að það
megi taka ýmsa hluti lengra
– eins og til dæmis samskipti
við salinn. Í heildina litið býsna
krúttleg sýning og þægileg; í
lengra lagi þó en ávísun á nota-
lega kvöldstund.
Kristrún Heiða Hauksdóttir
Afinn
Höfundur og leikstjóri:
Bjarni Haukur Þórsson
Borgarleikhúsið Sigurður Sigurjónsson miðlar
efninu af reynslu og á afar
vinalegan hátt með látlausan
húmor að vopni.
Laugardagur 22. janúar
Kristjana Stefánsdóttir
nemaforum/Slippsalur kl. 21
Söngkonan Kristjana Stefánsdóttir flytur
tregafulla dagskrá í Slippsalnum. Á dag-
skránni verður blús, fönk og soul í bland
við soldið af frumsömdu líka. Hljómsveitina
skipa þeir Agnar Már Magnússon á píanó og
hammond, Ómar Guðjónsson á gítar, Róbert
Þórhalls á bassa og Halldór G. Hauksson á
trommur.
Aðgangur 1.500 krónur
Svavar Knútur
Café rósenberg kl. 22
Svavar Knútur trúbador heldur sína fyrstu
tónleika á árinu á Café Rósenberg. Tónleik-
arnir hefjast kl. 22. stundvíslega og standa til
rétt rúmlega miðnættis. Svavar mun leika lög
af Ömmu og fleiri útkomnum og óútkomnum
plötum sínum og annarra. Svavari til liðsinnis
verður hinn ungi trúbador Daníel Jón Jónsson
sem mun leika nokkur af sínum lögum í „upp-
hitunarskyni“. Það er um að gera að mæta á
þessa stórskemmtilegu kvöldstund.
Aðgangur 1.500 kr. en kr. 1.000 fyrir náms-
menn, eldri borgara og aðra sem telja sig
með rökvísi og góðri dómgreind falla innan
einhvers konar afsláttarramma.
Sunnudagur 23. janúar
Jazz í Langholti
Langholtskirkja kl. 20
Jazz með Eivøru Pálsdóttur, Einari Vali Schev-
ing, Kjartani Valdemarssyni, Sigurði Flosasyni
og Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni. Á þessum
tónleikum gefst tækifæri til að heyra nýja
hlið á hinni einu sönnu Eivøru er hún mætir
landsliði jazzleikara okkar. Fjölbreytt dagskrá
eldri og yngri jazz-standarda. Einnig verða
frumflutt ný verk, sérstaklega samin fyrir tón-
leikana, eftir þau Eivöru, Einar Val, Kjartan og
Sigurð. Miðasala er á midi.is.
Á hljómgrunnur.is er að finna að-
gengilegt yfirlit yfir tónlistarviðburði
sem eru fram undan. Rokk, djass,
popp, klassík og allt þar á milli.
dægurmál 59Helgin 21.-23. janúar 2011
Fæst í öllum helstu matvöruverslunum.
Hveitikím
23 nauðsynleg
vítamín og steinefni
28% prótein