Fréttatíminn - 21.01.2011, Síða 16
Actavis-félagakeðja Björgólfs
Thors tapaði langmestu
B
jörgólfur Thor Björgólfsson bjó til flókið
eignanet líkt og margir aðrir útrásarvík-
ingar. Félaganet hans í kringum kaupin
á Actavis árið 2007 slá þó líklega flest
met. Á toppnum trónir Actavis hf. Það er
í eigu Actavis Group PTC ehf., sem er í eigu Actavis
Group hf., sem er í eigu Actavis eignarhaldsfélags
ehf., sem er í Novator Pharma Holding 5, sem hét
áður Actavis Pharma Holding 5, sem er í eigu Nova-
tor Pharma Holding 4, sem hét áður Actavis Pharma
Holding 4, sem er í Novator Pharma Holding 3, sem
hét áður Actavis Pharma Holding 3, sem er í eigu
Novator Pharma Holding 2, sem hét áður Actavis
Pharma Holding 2, sem er í eigu Novator Pharma
Holding 1, sem hét áður Actavis Pharma Holding 1,
sem er í eigu Novator Pharma S.á.rl. í Lúxemborg,
sem er í eigu Tortólafélagsins Novator Pharma
Holdings Limited, sem er aftur í eigu Björgólfs Thors
Björgólfssonar. Ef litið er á listann yfir þau fimmtíu
félög sem töpuðu mest á árinu 2009 og Creditinfo
tók saman að beiðni Fréttatímans, má sjá að sex af
ofangreindum félögum raða sér í sjö efstu sætin. Inn
á milli skýst ALMC ehf., áður fjárfestingarbankinn
Straumur-Burðarás, sem var tekinn yfir af Fjármála-
eftirlitinu í mars 2009 og gekkst undir nauðasamn-
inga á síðasta ári. Stærstu hluthafar Straums, áður
en bankinn var tekinn yfir, voru Björgólfur Thor
Björgólfsson og Björgólfur Guðmundsson. Ef mið er
tekið af ársreikningi Actavis Group hf., sem er sjálfur
lyfjarisinn, skýrist tapið af gríðarlegri niðurfærslu á
viðskiptavild vegna fjárhagslegrar endurskipulagn-
ingar fyrirtækisins. Þetta tap hefur síðan flust niður í
öll hin félögin. Tap Straums skýrist að stærstum hluta
af afskriftum lána viðskiptavina bankans.
Svart hjá Sjóvá
Eins og sjá má á listanum hér á síðunni skilaði SJ
eignarhaldsfélag, sem áður hét Sjóvá, 18,3 millj-
arða króna tapi á árinu 2009. Þar vegur þungt tap
dótturfélaganna SJ 1, sem tapaði 10,4 milljörðum, SJ
Properties Ghent FinanceCo og SJ Properties Ghent
BuyCo ehf. sem töpuðu fimm milljörðum hvort um
sig. Ríkið setti inn tólf milljarða í félagið til að bjarga
því frá gjaldþroti eftir meðferð Karls Wernerssonar
og félaga hans hjá Milestone. Það var í söluferli sem
fékk snöggan endi þegar hópur fjárfesta, undir for-
ystu Heiðars Más Guðjónssonar, var dæmdur óhæfur
til að eiga félagið þrátt fyrir að vera með langhæsta
tilboðið.
Ævintýri í Englandi
Á þessum lista er einnig félagið Northern Lights
Leasing, sem átti breska flugfélagið XL. Það var
keypt af Eimskipum árið 2006 en fór í gjaldþrot síðla
árs 2008. Móðurfélag Northern Lights Leasing AAI
Holding ehf. tapaði 9,7 milljörðum og Northern
Lights Leasing 6,5 milljörðum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
MESTA TAPIÐ (í milljörðum króna)
Félag Eigendur
Tengdir
útrásarvíkingar
Tap
Actavis Pharma Holding 4 Actavis Pharma Holding 3 BTB -294,2
Actavis Group hf. Actavis eignarhaldsfélag ehf. BTB -231,7
Actavis eignarhaldsfélag ehf. Actavis Pharma Holding 5 BTB -228,8
Actavis Pharma Holding 5 Actavis Pharma Holding 4 BTB -228,7
Actavis Pharma Holding 2 Actavis Pharma Holding 1 BTB -193,3
ALMC hf. (Straumur) Kröfuhafar BTB -180,2
Actavis Pharma Holding 3 Actavis Pharma Holding 2 BTB -167,1
Atorka Group Kröfuhafar (íslenskir bankar) ÞV -23,5
SJ Eignarhaldsfélag ehf. (Sjóvá) Íslenska ríkið KW -18,4
Geysir Green Energy Kröfuhafar (íslenskir bankar) ÞV -17,6
1998 ehf. Arion banki JÁJ -14,9
Renewable Energy Resources Volcano Holding BV (Atorka) ÞV -12,6
Gift Fjárfestingafélag Eignarhaldsfélagið Samvinnutr. -11,3
Icelandair Group hf. Kröfuhafar (íslenskir bankar) KW -10,7
SJ 1 ehf Sjóvá KW -10,4
Skipti hf. Exista (kröfuhafar) LG/ÁG -10,2
Drög ehf. Arion banki (átti ÍAV) -10,1
Reitir fasteignafélag Kröfuhafar (íslenskir bankar) JÁJ -9,8
Síminn ehf. Skipti hf. LG/ÁG -9,8
AAI Holding ehf . Nokkrir einstaklingar BG/MÞ -9,7
Hver 01 Holding ehf. Geysir Green Energy ehf. ÞV -8,7
Þyrping ehf. Arion banki JÁJ -7,5
Wendron ehf. Líklega skel fyrir erlent félag -7,4
Straumborg ehf Norvik ehf. JHG -6,9
Laugarakur ehf. Miðengi ehf. (Íslandsbanki) -6,9
Northern Lights Leasing ehf. AAI Holding ehf. BG/MÞ -6,5
Eignarhaldsfélagið IG ehf. Brim/Gunnvör -6,5
GLB Holding ehf Glitnir banki JÁJ -5,9
Alcoa á Íslandi ehf. Alcoa Luxembourg S.à.rl. -5,7
Eyrir Invest ehf. Nokkrir einstaklingar -5,6
Frontier Travel ehf. Straumur/Burðarás BTB -5,6
Stytta ehf. Blackstar Ltd/Stoðir JÁJ -5,5
Hagar hf. 1998 ehf. JÁJ -5,3
SJ Properties Ghent FinanceCo Sjóvá KW -5,1
SJ Properties Ghent BuyCo ehf. Sjóvá KW -5,0
Lýsing hf. Exista (kröfuhafar) LG/ÁG -4,9
Materia Invest ehf. ÞMJ/MÁ/KS ÞMJ/MÁ -4,6
Ármannsfell ehf. Drög ehf. -4,5
101 Skuggahverfi ehf. Þyrping ehf. JÁJ -4,5
Reitir II ehf. Kröfuhafar (íslensku bankarnir) JÁJ -4,5
Hilda hf. Nokkur félög (hlutur í Saga Capital) -4,1
A1988 hf. (Eimskip) Kröfuhafar BG/MÞ -4,0
Hansa ehf. Bell Global/Monte Cristo/BG BG -3,9
Avant ehf. Askar Capital KW -3,9
SJ Properties MacauOneCentral Sjóvá KW -3,6
Salt Financials Róbert Wessman RW -3,4
Hverfjall ehf Þórarinn Ragnars./Gunnar Hj. -3,4
Íslensk erfðagreining ehf. Decode genetics Inc -3,3
Félagsbústaðir hf. Reykjavíkurborg -3,2
BTB = Björgólfur Thor Björgólfsson | ÞV = Þorsteinn Vilhelmsson | KW = Karl Wernersson |
JÁJ = Jón Ásgeir Jóhannesson | LG/ÁG = Lýður Guðmundsson/Ágúst Guðmundsson |
BG/MÞ = Björgólfur Guðmundsson/Magnús Þorsteinsson | JHG = Jón Helgi Guðmundsson |
ÞMJ/MÁ = Þorsteinn M. Jónsson/Magnús Ármann | BG = Björgólfur Guðmundsson |
RW = Róbert Wessman
Félög í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem tengjast með einum eða öðrum hætti
Actavis, eru Íslandsmeistarar í tapi árið 2009. Eitt þeirra, Acatvis Pharma Holding 4,
tapaði 294,2 milljörðum.
16 úttekt Helgin 21.-23. janúar 2011