Fréttatíminn - 21.01.2011, Síða 22
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Virðing
Réttlæti
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Hefur þú áhuga á að
starfa í forystu VR?
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn eftir einstaklingsframboðum í
stjórn VR. Jafnframt auglýsir kjörstjórn eftir einstaklingsframboðum á lista
uppstillinganefndar í trúnaðarráð félagsins.
Um er að ræða formann félagsins, 7 aðalmenn í stjórn, 3 varamenn í stjórn og 82
í trúnaðarráði.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn skriflegt erindi til
kjörstjórnar á skrifstofu VR.
Skrifleg meðmæli 50 félagsmanna þarf vegna framboðs til formanns, 10 vegna
framboðs til stjórnar og 5 vegna framboðs til trúnaðarráðs.
Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 3. febrúar 2011.
Frambjóðendum er bent á að kynna sér nánari upplýsingar á heimasíðu VR,
www.vr.is.
Kjörstjórn
Þeir mega eiga Twitter-upplýsingarn-
ar en mér er annt um þær á Facebook
Á hverjum
einasta degi
missum við
spón úr aski
upplýsinga-
frelsis, og það
án þess að fólk
geri sér grein
fyrir því.
H
ún hnippir í utanrík-
isráðherra og vindur
sér að umhverfisráð-
herra og nær áheyrn
þeirra með hraði.
Þetta er konan sem með stuttum
fyrirvara ákvað að bjóða sig fram til
þings fyrir síðustu kosningar. Áður,
sem umhverfisverndarsinni og tals-
maður Saving Iceland í mótmæl-
unum gegn Kárahnjúkavirkjun, tók
það hana mánuði að ná áheyrn fólks í
þessum áhrifastöðum. Nú þegar hún
gegnir þingmennsku magnast áhrif
hennar. Hún var í ástralska frétta-
miðlinum ABC í gær, fimmtudag,
eftir að hafa verið í kastljósi fjöl-
miðla um allan heim síðustu vikur
vegna kröfu bandarískra stjórnvalda
um að fá afhentan allan póst og upp-
lýsingar sem hún hefur sent um sam-
skiptasíðuna Twitter. Birgitta Jóns-
dóttir, þingmaðurinn með stingandi
bláu augun – eins og kanadískir
fjölmiðlar lýstu henni – hefur ekki
áhyggjur af því yfir hvaða upplýs-
ingar bandarísk stjórnvöld kunna
að komast í gegnum Twitter.
„Kannski er þetta fyrst og fremst
gósentíð fyrir íslenska þýðendur,“
segir hún glettin en slær fljótt á al-
varlegri strengi. „Ég hef þó ákveðn-
ar áhyggjur af því að allar mínar
upplýsingar af Facebook hafi verið
afhentar. Mér finnst það sýnu alvar-
legra því vinir mínir hafa sent mér
persónulegar upplýsingar án þess
að átta sig á því hve opinn vefurinn
er. Ég vil ekki að þær séu í höndum
bandarískra yfirvalda.“
Assange tengdur njósnum?
Birgitta segir að Alþjóða þing-
mannasambandið hafi tvívegis
fjallað um málið í þessari viku, síð-
ast í gær. „Ég sendi þeim bréf um
þýðingu málsins í þessu stóra sam-
hengi,“ segir hún og vísar til þess
að þingmenn njóti friðhelgi til þess
að þeir geti beitt sér á alþjóðavett-
vangi. „Við lögfræðingar mínir feng-
um frest til 26. janúar til að ganga
frá okkar máli. Markmiðið er að fá
bandarísk stjórnvöld til að falla frá
Birgitta hefur vakið athygli
víða um heim vegna baráttu
sinnar með Wikileaks, kröfu
bandarískra stjórnvalda um
að fá Twitter-upplýsingar
hennar og hugmynda um Ís-
land sem friðland tjáningar-
frelsis og upplýsinga. Ljós-
mynd/Hari
Birgitta Jónsdóttir hefur verið í kastljósi fjölmiðla víða um heim vegna hugmynda sinna um að Ísland verði friðland upplýsinga og tjáningar-
frelsis. Hún lýsir því hvernig lögfræðingar stórfyrirtækja um allan heim sérhæfi sig í að koma öllum neikvæðum upplýsingum úr seilingar-
fjarlægð frá almenningi og herji á veikburða fjölmiðla með hótunum um lögsóknir. Athyglina úti fékk hún þó fyrst með aðkomu sinni að
Wikileaks. Hún segir bandarísk stjórnvöld ekki stöðva lekann á vefinn þótt þeim takist að ná Julian Assange.
Framhald á næstu opnu
22 viðtal Helgin 21.-23. janúar 2011