Fréttatíminn - 21.01.2011, Side 25
Fitul’til og
pr—teinr’k . . .
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Borgartúni 29 | S. 585 6500 | www.audur.is
Árið 2010 lagði Auður grunn að uppbyggingu til
framtíðar. Fyrirtækjaráðgjöf Auðar kom að
ráðgjöf, fjárhagslegri endurskipulagningu og
verðmati á þriðja tug fyrirtækja. AUÐUR I
fagfjárfestasjóður fjárfesti í rekstri og kom með
nýtt hlutafé inn í sjö fyrirtæki.
Fasteignaráðgjöf Auðar kom að endurskipu-
lagningu fasteignafélaga og gerði verðmat á yfir
100 atvinnufasteignum ásamt því að annast
rekstur og umsýslu fasteigna. Ört stækkandi
hópur viðskiptavina Auðar fékk góða ávöxtun á
séreignarsparnað og fjármuni í eignastýringu.
Auður er sjálfstæður
og óháður kostur
á fjármálamarkaði
Við trúum á fólkið í landinu og framtíðarhorfur
íslensks samfélags. Við höldum ótrauð áfram á
nýju ári með sterka eiginfjárstöðu, áhættu-
meðvitund og langtímaárangur að leiðarljósi.
VIÐ TRÚUM Á FRAMTÍÐINA
FAGFJÁRFESTASJÓÐIR | FYRIRTÆKJARÁÐGJÖF | FASTEIGNARÁÐGJÖF | SÉREIGNARSPARNAÐUR | EIGNASTÝRING
umferð og efni sem birt er í fjölmiðl-
um af netinu,“ segir hún og finnst
fjölmiðlar í veikri stöðu þar sem
neytendur nota miklu minna af upp-
lýsingum þeirra en sæki í auknum
mæli á netið.
„Fjölmiðlar geta illa varist hræ-
gömmunum sem fara stöðugt í mál
út af einhverju sem birtist,“ segir
hún og tekur sem dæmi að gagnrýni
söngkonunnar Bjarkar Guðmunds-
dóttur á Magma Energy sem birt-
ist í kanadískum fjölmiðli hafi misst
marks þegar samið var um að taka
hluta greinarinnar af upplýsinga-
vefjum vegna hótana um lögsókn.
„Í langflestum tilvikum hverfur
sagan úr öllum gagnagrunnum og
verður ófinnanleg, en í þessu tilviki
voru aðeins ákveðnir þættir teknir
út úr greininni, það er að segja hin
harða gagnrýni Bjarkar. Því leit út
sem Björk syngi bí, bí og blaka og
heildarmyndin hvarf,“ segir hún.
Eva Joly í lið með Birgittu
„Það er nauðsynlegt að fólk skilji í
hve mikilli hættu það er; að glata
því að geta tekið upplýsta ákvörðun
og verið ábyrgir borgarar. Hver vill
vera með upplýsingar sem bitið hef-
ur verið í og tekið úr?“ Þess vegna
segir Birgitta að hugmynd hennar
og þinghóps Hreyfingarinnar, ásamt
aðstandendum Wikileaks, að Immi-
stofnuninni (e. Icelandic modern
media initiative) hafi vakið svona
mikla alþjóðlega athygli upp á síð-
kastið. Markmið stofnunarinnar
verði að verja upplýsingar og tján-
ingarfrelsi. „Við byrjum í heima-
högum en við erum einnig í alþjóð-
legu samstarfi við fólk sem lætur sig
málið varða,“ segir hún. „Fyrsti þing-
maðurinn sem setur nafnið sitt á blað
með okkar er Eva Joly.“
Birgitta viðurkennir að hug-
myndin hafi ekki fengið sömu at-
hygli hér heima og ytra. „Það hefur
ekki alveg gerst ennþá og ég hef nú
svolítið kvartað yfir því,“ segir hún.
„Ég vil samt ekki hafa áhyggjur af
því heldur hvet þá sem láta sig þetta
málefni varða til að kynna sér það.
Þetta hefur skapað Íslandi meiri vel-
vild en flest annað síðustu misseri,“
segir hún og bætir við að öll blaða-,
sjónvarps- og útvarpsviðtölin hafi
gert sitt til að endurreisa mannorð
landans sem hafi borið verulegan
skaða í kringum hrunið. „Þetta er
útspil í okkar anda. Við viljum leggja
áherslu á heiðarleika en hvernig get-
um við það ef við erum ekki tilbúin
að stunda gagnsæi?“
En saknar Birgitta Wikileaks?
„Nei, í raun og veru ekki. Það var
gaman að taka þátt í því frumkvöðla-
starfi sem átti sér stað en mitt hjart-
ans mál er Immi-stofnunin; að við
Íslendingar tökum okkur afgerandi
stöðu varðandi upplýsinga- og tján-
ingarfrelsið.“
Gunnhildur Arna Gunnardóttir
gag@frettatiminn.is