Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.01.2011, Blaðsíða 57

Fréttatíminn - 21.01.2011, Blaðsíða 57
dægurmál 57Helgin 21.-23. janúar 2011 -er svarið Tvö jákvæð störf í boði Já er einstakt fyrirtæki á Íslandi. Já þjónustar bæði einstaklinga og fyrirtæki. Já veitir upplýsingar í þjónustunúmerunum 118, 1818 og 1811, félagið gefur út Símaskrána og rekur vefinn Já.is. Að undanförnu hefur Já lagt mikla áherslu á tækniþróunarverkefni og leitar nú að tveimur nýjum starfsmönnum sem búa yfir: frumkvæði og framsýni, krafti, samskiptalipurð og hæfni til að vinna í hópi, heilindum, vinnusemi, skipulagshæfileikum og öguðum vinnubrögðum. Umsóknir og nánari upplýsingar Allar nánari upplýsingar um störfin veitir Hlöðver Þór Árnason í netfanginu hlodver@ja.is eða í síma 820 0004. Umsóknir berist fyrir 5. febrúar nk. í netfangið umsokn@ja.is 118 ja.is Símaskráin StArfSlýSing og Ábyrgð Að viðhalda og þróa helstu kerfi Já: • Já.is og tengdir vefir • Já í símann • Innri kerfi Já forritari hjá Já þarf að vera sjálfstæður og fljótur að tileinka sér nýja tækni. Að auki er nauðsynlegt að hafa góða þjónustulund. Forritari MenntUn og Þekking Við leitum að starfsmanni með háskólamenntun, t.d. tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði. góð þekking á forritun er mikilvæg og tungumálakunnátta er kostur. Þekking á python, django, java, javascript, css og html er æskileg. Þekking á grafískri vinnslu mikill kostur. StArfSlýSing og Ábyrgð Að viðhalda innri kerfum og þjónusta starfsmenn Já: • Active directory • Exchange • Viðhald og uppfærslur á vélbúnaði og umsjón tækjaskrár Hingað til hefur Já úthýst þessari þjónustu þannig að viðkomandi þarf að vera mjög sjálfstæður og skipulagður. einnig er mikilvægt að hafa góða þjónustulund og vera tilbúinn að ferðast á milli þjónustuvera ef verkefni krefjast þess. Tæknimaður MenntUn og Þekking Við leitum að starfsmanni með háskólamenntun, t.d. kerfisfræði. góð þekking á Microsoft umhverfi er nauðsynleg. Vilji til að takast á við krefjandi verkefni, þekking á vélbúnaði og reynsla af uppsetningu og rekstri þeirra. E N N E M M / S ÍA / N M 4 5 0 4 2 og Hrefna vildu auka hlut stráka í sýningunni og þáttunum. Í hlutverki Zúmma er Einar Karl Jónsson, hæfi- leikaríkur 12 ára gutti. „Hann er algjör prakkari og eldklár breikari og söngvari og mun örugglega hrífa krakka sem koma að sjá sýninguna.“ Leikritið um Skoppu og Skrítlu gekk fyrir fullu húsi í Borgarleik- húsinu í yfir 50 sýningar í fyrravetur og komust færri að en vildu áður en þær tóku sér hlé. Endurkoma þeirra mun því örugglega gleðja marga. Prakkarinn Einar Karl Jónsson á eftir að hrífa krakka í hlut- verki Zúmma álfastráks. Berfætt með hei magerðan bolta Páll Stefánsson ljósmyndari gaf í fyrra út bókina Áfram Afríka um grasrótarfótbolta í álfunni. Á Afríkudögunum verða til sýnis 25 myndir í yfirstærð, sem eru afrakstur heim- sókna Páls til Afríku. Myndirnar voru sýndar í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í fyrra en verða nú seldar til styrktar verkefnum Afríku. Þögult uppboð verður á myndunum 28. janúar nk. í húsakynnum Barnaheilla við Suðurlandsbraut 24. Tvær af myndum Páls verða til sýnis í Há- skólanum í Reykjavík, þar á meðal þessi hér að ofan. „Þeir voru að spila bolta á aðalgötu Ouida, í Benin, stukku undan bílnum, og þegar þeir sáu mig stíga út stilltu þeir sér upp í liðsmynd. Hvað þeir hétu, það er erfiðara, en allir vildu þeir vera Fílabeinsstrend- ingurinn Drogba. Hann er hetja þessara drengja. Landslið Benin er kallað Les Écureuils (Íkornarnir) og eru á svipuðum stað á heimslista FIFA og við Íslendingar,“ segir Páll. Ljósmyndagjörningur Páls Lj ós m yn d/ H ar i  viðburðir SöluhæStu StarfSmenn enjo um allan heim á ÍSlandi Ísland kemur erlendum sölumönnum á óvart Um 130 söluhæstu starfsmenn Enjo um allan heim fagna góðum árangri þessa dagana. Það gera þeir hér á landi og fóru Gullna hringinn í fyrradag. Ferðin var farin á trukkum og hittu ferðalangarnir íslenska kraftajötna á Geysi, leystu þar þrautir og enduðu í hlöðu á Suðurlandi í klakaútskurðarkeppni, þar sem þrjátíu manna karlakór Selfoss tók fyrir þá lagið. „Það hefur komið mér skemmtilega á óvart að sjá hvað hægt er að gera á Íslandi yfir vetrartímann. Hvað við erum framarlega og flott. Margir gestanna, sem koma alls staðar að, eru á leiðinni aftur til Íslands,“ segir Ósk Knútsdóttir, eigandi Enjo á Íslandi sem framleiðir umhverfisvænar hreingerningarvörur. Ósk segir íslenska sölufólkið ekkert hafa verið skúffað yfir því að fá ekki að fara út í heim í þetta sinn. „Nei, í svona árferði er svo mikilvægt að allir hjálpist að við að fá fólk hingað til landsins,“ segir hún og bætir við að Ísland hafi orðið fyrir valinu vegna þess að austur- rískur eigandi höfuðstöðvanna hafi í kjölfar hrunsins fest evruna í 110 krónum og opnað bankareikning hér sem hún hafi svo lagt inn á. „Það gerði það að verkum að hér átti hann peninga sem hann vildi nota fyrir besta sölufólkið á heimsvísu.“ Aníta Ólafsdóttir hjá viðburðafyrirtækinu Practical, sem heldur utan um hópinn, segir að honum hafi verið skipt upp í gær og gátu gestirnir valið um hestaferð, reisu á fjórhjólum eða sund í Bláa lóninu. „Í kvöld, föstudagskvöld, verður svo uppskeruhátíðin sjálf í Hafnarhúsinu og tilkynnt hvert haldið verður að ári, en í fyrra voru þau í Sjanghaí í Kína.“ Sölumenn í klaka- útskurðarkeppni á Suðurlandi. Lj ós m yn d/ Ó la fu r Þ ór is so n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.