Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 19
ER LÍKAMI ÞINN SÚR EÐA BASÍSKUR?
Tímapantanir í síma 615 4070 //gudrunhelga@talnet.is
Guðrún Helga Rúnarsdóttir
Microscopisti og næringarráðgjafi
með sérhæfingu í basísku mataræði
aðstoðar þig við að koma Ph gildi
líkamans í lag og fræðir þig um
mikilvægi basískrar næringar.
Það er grundvallaratriði fyrir heilsuna,
að halda sýrustigi líkamanns í jafnvægi
En hvað þýðir að vera súr og afhverju
er betra að vera basískur?
Ertu með hátt eða lágt Ph gildi?
›
›
›
D
es
ig
ns
tu
di
oB
/
/
FI
T
OKKAR líftryggingar hf. • Sóltúni 26 • 105 Reykjavík • Sími 540 1400 • Fax 540 1401 • www.okkar.is
Öll börn og ungmenni eiga sér drauma um framtíðina. Undan sumum þeirra er fótunum kippt
fyrirvaralaust vegna slysa eða sjúkdóma í æsku sem haft geta í för með sér ævilanga örorku. Þeir
sem ekki hafa fest sig í sessi á vinnumarkaði standa utan lífeyriskerfisins og njóta því einungis
bóta Tryggingastofnunar.
OKKAR framtíð er ný og kærkomin framtíðartrygging barna og ungmenna sem skipt getur
sköpum fyrir fjárhagslegt sjálfstæði þeirra á fullorðinsárum. Með OKKAR sparnaði, sem laus er til
útborgunar við átján ára aldur, má treysta undirstöðurnar enn frekar.
Framtíð
- framtíðartrygging barna fyrir „efin” í lífinu og fjárhag fullorðinsáranna.
„En mamma, þegar ég verð stór langar mig að verða svona lagari
sem getur lagað alls konar dót og svoleiðis. Svo langar mig að verða
blómalæknir svo að öll blómin geti lifað þó að veturinn komi.
Best væri samt að vera hjólamaður. Þá getur maður hjólað allan
daginn og haft nesti með sér og skoðað fuglana á leiðinni og
svoleiðis. Svo langar mig að vera alltaf glaður - svona eins og Óli
frændi. Ég held að hann þurfi aldrei að sofa eða borða fisk.”
„…Svo langar mig að vera alltaf glaður -
svona eins og Óli frændi.
Ég held að hann þurfi aldrei að sofa…”
Sjá nánar um Framtíð á okkar.is.
G ísli Tryggvason, fyrrum handhafi kjörbréfs sem
fulltrúi á stjórnlagaþingi, hefur
farið fram á endurupptöku á
ákvörðun Hæstaréttar um ógild-
ingu kosningar til stjórnlagaþings.
Gísli krefst þess að ákvörðuninni
verði breytt
þannig að
kosningin
verði talin
gild þrátt
fyrir form-
galla við
fram-
kvæmd
hennar,
„sem ekki
höfðu áhrif
á niðurstöðu kosningarinnar“,
eins og segir í beiðninni, eða til
vara að ákveðin verði endurtalning
atkvæða vegna þeirra annmarka
sem Hæstiréttur taldi fyrir hendi
og „bæta má úr við endurtalningu“,
eins og þar segir.
Gísli óskar eftir að meðferð
beiðnarinnar, og eftir atvikum
nýrri málsmeðferð, verði flýtt eins
og kostur er enda brýnt að niður-
staða liggi fyrir áður en stjórnlaga-
þing á að koma saman hinn 15.
febrúar næstkomandi.
Þá krafðist Gísli þess að Jón
Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttardómari, sem var einn þeirra
sex dómara sem ógiltu kosninguna
til stjórnlagaþings, viki sæti við
afgreiðslu endurupptökubeiðnar-
innar vegna vanhæfis. Vísað var
til þess að dómarinn hefði tjáð sig
efnislega um kærumálin vegna
þingsins og ákvörðun Hæstaréttar
í sjónvarpsviðtali. Jón Steinar til-
kynnti í gær að hann viki sæti.
Gísli segir að aðalmálið sé að af
stjórnlagaþingi verði sem fyrst.
Hann segir, í viðtali við Frétta-
tímann, að margir óttist að komi til
annarrar kosningar, hvort heldur
er uppkosning með sömu fram-
bjóðendum eða kosið að nýju frá
grunni, verði þar meiri hagsmuna-
pólitík en hugsjónapólitík.
jonas@frettatiminn.is
Fer fram
á endur-
upptöku á
ákvörðun
Hæstaréttar
Gísli segir marga óttast að
hagsmunapólitík muni fremur
ráða en hugsjónapólitík komi til
nýrra kosninga.
Gísli Tryggvason.