Fréttatíminn - 11.02.2011, Síða 34
6 hljómgrunnur Helgin 11.-13. febrúar 2011
Hallgrímspassía - Tónlist
Sigurðar Sævarssonar við
Passíusálma Hallgríms Pét-
urssonar
Flytjendur: Schola Cant-
torum, Caput, Jóhann Smári
Sævarsson, Hörður Áskels-
son. Útgefandi: Aspir.
Afar sterkt og innilegt tón-
verk Sigurðar Sævarssonar
nýtur sín mjög vel í frábær-
um flutningi Schola Cantor-
um og Caput. Fáguð, djúp og
hrífandi plata
Sería II - Tónlist Skúla
Sverrissonar fyrir strengja-
hljóðfæri, blásara, slagverk,
hljómborð og fleira.
Flytjendur: Skúli Sverrisson,
Davíð Þór Jónsson, Ama-
deo Paceo, Eyvind Kang,
Anthony Burr, Kristín Anna,
Ólöf Arnalds, Hildur Guðna-
dóttir, Óskar Guðjónsson.
Útgefandi Sería Music.
Skúli Sverrisson heldur
áfram að vinna með svipaða
eiginleika í fyrri Seríuplötu
sinni. Hér er samspilið og
samvinnan í fyrirrúmi þar
sem Skúli og frábærir sam-
starfsmenn hans mynda
fínofinn og á köflum ramm-
göldróttan tónvef. Mjög
áhrifaríkt verk.
Flute Music - Tónlist eftir
Toshio Hosokawa.
Flytjendur: Kolbeinn Bjarna-
son, Caput, Snorri Sigfús
Birgisson. Útgefandi: Naxos
Kolbeinn Bjarnason sýnir
enn og aftur hvílíkur afreks-
maður hann er á sviði tón-
listarinnar. Hér ræðst hann
í flutning á öllum flautuverk-
um japanska tónskáldsins
Toshio Hosokawa en verkin,
sem stundum virðast látlaus
og einföld, krefjast yfir-
burða færni og næmi flytj-
enda. Afar merkileg útgáfa í
alla staði.
Hljómplata ársins
Jazz
Horn - Jóel Pálsson
Flytjendur: Jóel Pálsson, Ari
Bragi Kárason, Eyþór Gunn-
arsson, Davíð Þór Jónsson,
Einar Scheving. Útgefandi:
Flugur. Frumlegar og marg-
slungnar tónsmíðar. Þrótt-
mikil sveit afbragðsgóðra
hljóðfæraleikara sem vinna
vel saman og skapa einkar
blæbrigðaríkt og heildstætt
verk.
Reginfirra - Reginfirra
Flytjendur: Ingimar Ander-
sen, Kristján Tryggvi Mart-
insson, Magnús Trygvason
Elíassen, Daníel Friðrik
Böðvarsson. Útgefandi:
Firra. Tónlist sem iðar af
fjöri og tilraunagleði. Ungir
og bráðefnilegir tónlistar-
menn sem gefa mikil fyrir-
heit.
The Dream - Sunna Gunn-
laugs
Flytjendur: Sunna Gunn-
laugs,Loren Stillman, Eivind
Opsvik, Scott McLemore.
Útgefandi: Sunny Sky Re-
cords. Lagræn og seiðandi
djasstónlist með áleitinni
sveiflu og krydduð með
nokkrum stuttum frjálsum
spunaköflum.
Hljómplata ársins
Rokk/Popp
A long time listening -
Agent Fresco
Útgefandi: RecordRecords
Frábær plata frá bestu rokk-
sveit landsins nú um stundir.
Það hefur verið unun að
fylgjast með Agent Fresco
vaxa og dafna síðan strák-
arnir unnu Músíktilraunir
með glans fyrir tveimur og
hálfu ári. Tilraunir leitandi
tónlistarskólastráka eru í
dag orðnar að fullburða,
framsæknu rokki og prýðir
það þennan frábæra frum-
burð hennar.
Go - Jónsi
Útgefandi: Frakkur/Smekk-
leysa
Jónsi notar öll trikkin sem
hann hefur lært á Sigur Rós-
ar ferlinum og bætir við glitr-
andi perlum úr fjársjóðskist-
unni sinni. Útkoman er slík
gersemi að það er leitun að
annarri eins plötu. Reynsla
og öryggi fara saman við
ótrúlega næma söngtúlkun,
stórfína spilamennsku og
fágaða vinnslu.
Allt er eitthvað - Jónas
Sigurðsson
Útgefandi: Cod Music
Jónas fylgir Þar sem mal-
bikið svífur mun ég dansa
farsællega eftir. Líkt og á
fyrri plötu er allt þægilega á
skakk og skjön, lögin, krydd-
uð með brassi, óhljóðum og í
einu tilfelli Sinclair Spectr-
um-tölvu fara í óvæntar áttir,
statt og stöðugt og maður
situr með sperrt eyrun frá
upphafi til enda.
Innundir skinni - Ólöf
Arnalds
Útgefandi: One Little Indi-
an/Smekkleysa
Ólöf grípur átján mílna skóna
og tekur risaskref fram á við
eftir að hafa sannað sig svo
um munar með plötunni Við
og við. Seiðandi melódíurnar
stíga línudans á mörkum
dulúðar, angurværðar og
einlægni. Hún nýtur félags-
skaparins við afburða sam-
verkafólk sem magnar áhrif
tónsmíða hennar.
Lúxus upplifun - Ég
Útgefandi: Jörðin
Að segja að Róbert Örn
Hjálmtýsson hafi einstaka
sýn á það hvernig setja eigi
saman popplag nær engan
veginn utan um þær ótrú-
legu leiðir sem hann fer inn í
þriggja mínútna poppformið.
Og það ótrúlegasta við þetta
allt saman er að það virkar.
Búum til börn - Moses
Hightower
Útgefandi: Staka
Tónlistin á frumsmíð Moses
Hightower er óvenjuleg
blanda af sígildri sálartónlist
og íslensku poppi með fyrir-
taks textum. Útkoman er
ofursvöl og full af tilþrifum
og tilfinningu.
Last train home - Kalli
Útgefandi: Smekkleysa
Kalli hefur mjög gott tak á
aðgengilegu, nútíma kántríi,
og sýnir það svo um munar
á þessari skotheldu skífu.
Lagasmíðarnar flottar og
söngurinn afbragð
Kimbabwe - Retro Stefson
Útgefandi: Kimi Records
Retro Stefson er einstök í
íslenskri poppflóru. Eins og
á fyrri plötunni er tónlistin
á Kimbabwe hress blanda
af poppi og heimstónlist, en
nú er sveitin búin að þétta
útsetningarnar og auka fjöl-
breytnina enn frekar.
H verjar eru plötur ársins 2010 að mati fag-nefnda Íslensku tónlistarverðlaunanna? Hver hlýtur vinsældaverðlaunin? Er þetta spenn-
andi og áhugavert? Forsmekkurinn að þessu er af-
hjúpun tilnefninga Íslensku tónlistarverðlaunanna. Sú
stund er tilefni til skoðanaskipta og leiðin til að kryfja
og fara í gegnum íslenskt tónlistarlíf á liðnum miss-
erum. Nú er tíminn til að gera upp hug sinn. Hvaða
plötur, hvaða tónlist skiptir þig máli? Hvaða gildi
hefur hún áunnið sér í þínu lífi? Er tónlistin órjúfan-
legur hluti af tilveru þinni? Flest okkar hafa örugglega
áhuga á að kynnast nýjum straumum í menningunni.
Höfum það í huga þegar við ljáum tónlist komandi árs
eyra. Í öllu falli er í dag tilefni til að fagna og tími til að
njóta.
Þrátt fyrir að fréttir berist stöðugt þess efnis að fleiri
og fleiri hali niður tónlist ólöglega, þá er ekki hægt
að segja annað en að íslenskt tónlistarlíf skilji eftir
sig frábært ár. Tónlistarlíf innblásið af skapandi hug-
myndum, krafti og áhuga. Í kjarnanum upplifum við
nýsköpun, ólíkir straumar mætast, gamlar perlur
öðlast nýtt líf.
Frábært ár að baki
Við tölum um ný atvinnutækifæri skapandi greina
atvinnulífsins. Við hugleiðum á þessari stundu niður-
stöður úttektar varðandi hlut skapandi greina í lands-
framleiðsu, þar með talið tónlistarinnar og upplifum
svo ekki verður um villst að þetta er einn af grunnat-
vinnuvegum þjóðarinnar. Hér skiptir sköpum að sam-
félagið virði og standi saman vörð um þau verðmæti
sem hugverk eru. Þróun á sölu tónlistar í þeim sam-
félögum sem við gjarnan berum okkur saman við hef-
ur í auknum mæli færst yfir í stafrænt umhverfi. Ljóst
er að tíminn er naumur og markaðsstærðin veik á
alþjóðavísu. Varðveisla sjálfstæðis samfara fjölbreytni
í menningu er engu að síður mikilvægt fyrir okkar
samfélag. Þess vegna köllum við í tónlistariðnað-
inum meðal annars eftir jafnræði í virðisaukaskatti á
stafrænni sölu og á sölu geislaplatna og LP platna. Við
köllum eftir samstarfi tónlistariðnaðarins og annarra
sambærilegra rétthafa, almennings, símafyrirtækja
og stjórnvalda, um leiðir til að lögleg neysla höfundar-
réttarefnis verði kynnt og aðgengi eflt á Íslandi.
Tónlistarhúsið Harpa er tímamót í íslensku tónlistar-
lífi og okkur ber að virða það starf og þá drauma sem
fjöldi fólks í tónlistarlífinu og áhugamenn hafa borið
með sér að tónlistarhús rísi.
Samtal milli tónlistarlegrar hugsunar og sviðsetn-
ingar er tilefni fjölbreytilegra hugleiðinga. Það mun
vissulega eiga sér stað í tónlistarhúsinu Hörpu og ég
trúí þvi að sú samræða verði á jákvæðum og skapandi
nótum. Á sama hátt mun samspil náttúru og menn-
ingar verða útgangspunktur sambúðar ferða- og ráð-
stefnugeirans í Tónlistarhúsinu. Náttúra og íslensk
menning eiga alltaf samleið.
Ég tel að við séum flest sammála um það að þegar
stórkostleg hugmynd eða hugsjón verður fullsköpuð
að veruleika sé það fagnaðarefni. Augnablikið sem er
svo fallegt og spennandi kemur aldrei aftur. Allt það
sem okkur finnst rangt varðandi tónlistarsköpunina
eða starfið í listheimi okkar heyrir fortíðinni til. Það
sem er rétt er okkar framtíð. Ef við kjósum svo þá er
hún björt.
Ásmundur Jónsson
formaður Samtóns