Fréttatíminn - 11.02.2011, Page 49
heilsa 41
Chello fæst í flestum apótekum, Fjarðarkaupum og í Heilsuhúsinu
prentun.is
Chello hjálpaði mér
út úr svitakófi og
svefnerfiðleikum
Kolbrún Ósk er 43 ára þriggja barna móðir. „Sumarið 2009 fór ég að
finna fyrir miklu svitakófi og svefnerfiðleikum. Þegar ég hafði ekki haft
blæðingar í tvo mánuði ákvað ég að fara til læknis, sem sendi mig í
blóðprufu til að athuga hvort ég væri komin á breytingaraldur. Ekki datt
mér í hug að það væri mögulegt þar sem ég er rétt rúmlega fertug. Sú
var þó niðurstaðan og kynnti þá læknirinn fyrir mér hormónagjöf. Ég var
frekar treg til þess en farin að sofa mjög illa og leið ekki vel andlega eða
líkamlega. Læknirinn taldi mig á að prufa hormón þar sem einkennin
voru farin að skerða lífsgæði mín“.
Hormónarnir hentuðu mér ekki
„Um tveimur árum áður eða 2007 tók ég þátt í rannsókn á vegum Erfðar-
greiningar v/ beinþynningar og var mér tjáð að beinþynning væri á
byrjunarstigi í mjöðm. Þegar ég hafði svo tekið hormón sem viðhéldu
blæðingum í eitt ár, fór að bera á óreglulegum blæðingum og leitaði ég
þá til heimilislæknis sem ráðlagði mér að fara til kvensjúkdómalæknis.
Eftir rannsóknir var niðurstaðan að mikil þykknun hafði orðið á slímhimnu
í leginu og varð ég því að hætta á hormónum“.
Prófaði nokkur náttúruleg fæðubótaefni
„Mjög fljótlega byrjuðu svitakófin aftur ásamt því að ég fann fyrir almennri
vanlíðan og svefnerfiðleikum. Ég prófaði tvenn náttúruleg fæðu-
bótaefni en þau virkuðu ekki sem skyldi“.
Chello virkaði á rúmri viku!
„Svo sá ég auglýsingu í apóteki og umfjöllun um Chello náttúrulega
fæðubótaefnið á facebook og ákvað að ekki sakaði að reyna. Þegar ég
fór að kaupa efnið var mér bent á að taka Chello í bláum umbúðum
m/viðbættu D - vítamíni ásamt því að taka omega- 3. Ég las á umbúð-
unum að taka ætti tvær töflur í tvær til fjórar vikur til að byrja með sem
ég og gerði. Ekki var liðin nema rúm vika þegar ég fór að finna mikinn
mun, ég finn ekki lengur fyrir svitakófi og sef vel. Ég mæli sko hiklaust
með Chello þetta efni hefur reynst mér meiriháttar vel og hvet ég allar
konur að prófa þessa náttúrulegu leið sem finna fyrir breytingaskeið-
kvillum“ segir Kolbrún að lokum.
Kolbrún Ósk Albertsdóttir
Innflutningsaðili: Gengur vel ehf
Mikilvægt er að annast sig vel allt lífið og þá
sérstaklega þegar kemur að þeim tímamót-
um þegar breytingar verða á hormónakerfi
kvenna. Gott er að huga að hreyfingu og
hollu mataræði. Afar nauðsynlegt er að neyta
nægilegs kalks með D-vítamíni fyrir beinin.
Chello Classic - Fyrir allar konur.
Gott við mildum einkennum af svita-og
hitakófi . Inniheldur ekki soja heldur mikið af
plöntuþykkni úr kínversku plöntunni dong
quai sem hefur verið notuð í mörg ár gegn
hita-og svitakófi. Inniheldur einnig rauðsmára,
vallhumal, kamillu og mjólkurþystil.
Chello Forte - Yfir fimmtugt
Gott við miklu svita-og hitakófi . Inniheldur
ríkulegan skammt af plöntu kjörnum og soja
þykkni sem hefur sýnt sig að virka vel á svita-
og hitakóf. Chello Forte inniheldur einnig
rauðsmára og salviu sem hefur verið notað í
mörg ár af konum á breytingarskeiðinu
með frábærum árangri.
Chello Forte+D vítamín - Undir fimmtugu
Gott við miklu svita-og hitakófi . Inniheldur
sömu efni og rauða Chello en er með
viðbættu D vítamíni sem styrkir beinin sem
er mikilvægt fyrir konur sem byrja snemma á
breytingarskeiðinu.
Náttúruleg lausn á
breytingarskeiðinu
N ý japönsk rannsókn á öldrun kvenna skilaði mjög nákvæmum niðurstöðum. Þar kemur í ljós að
konur eldast mun fyrr en karlpeningurinn
og hefst ferlið fyrir alvöru 33 dögum eftir 35
ára afmælið, eða 35,09 ára. Daglegt stress
eykst á þessum tímapunkti og það hefur í
kjölfarið varanleg áhrif á ástand húðarinnar.
Rannsóknin var sett mjög nákvæmlega
fram og voru þátttakendur gríðarlega
margir. Vísindamennirnir sem stóðu fyrir
rannsókninni telja að hægt sé að fyrirbyggja
líkamlega öldrun á tvo vegu: Annars vegar
með viðurkenndum húðvörum og hins vegar
með því að fara aldrei út úr húsi.
Öldrun kvenna hefst
á aldrinum 35,09
Sjúkdómar í kjöl-
far svefnleysis
Fátt er hvimleiðara en að liggja tím-
unum saman í rúminu, stara út í loftið
og bíða draumalandsins. Andvökur eru
hluti tilverunnar hjá mörgum en þær
geta haft alvarleg og eyðileggjandi
áhrif á líkamann. Það er ekki aðeins að
sá svefnlausi þjáist af þreytu og ergelsi
heldur eykst hættan á að viðkomandi
fái hjartaáfall eða aðra hjartasjúk-
dóma. Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn sem náði til meira en 470 þúsund
manna frá átta löndum og stóð yfir í
meira en aldarfjórðung. Rannsóknin
var unnin af sérfræðingum breska
Warwick-háskólans. The Guardian
greinir frá og vitnar til rannsóknarinnar
sem birt var í European Heart Journal.
Of stuttur svefn, eða það að ná aðeins
óreglulegum svefni sem varir í stutta
stund í senn, leiðir til þess að líkaminn
framleiðir hormóna og efni sem geta
aukið hættu á hjartasjúkdómum,
veldur auknu kólesteróli í blóði, of
háum blóðþrýstingi og eykur líkur á
hjartaáfalli.
„Sá sem sefur óreglulega og minna
en sex klukkustundir á nóttu er í
48% meiri hættu en aðrir á að þróa
með sér hjartasjúkdóm eða deyja af
slíkum sjúkdómi og 15% meiri hættu
en aðrir að fá eða deyja af hjartaáfalli.
Tilhneigingin til þess að vaka lengi og
vakna mjög snemma er tifandi tíma-
sprengja gagnvart heilsunni. Því verður
að bregðast við til þess að draga úr
áhættunni af þessum lífshættulegu
sjúkdómum,“ segir Francesco
Cappucio, einn þeirra prófessora sem
stóðu á bak við rannsóknina, í viðtali
við The Guardian.
Of langur svefn líka skað-
legur
Það getur verið erfitt fyrir marga að ná
7-8 tíma svefni í önnum hvunndagsins
þegar í senn þarf að sinna vinnu,
fjölskyldu, nægilegri hreyfingu, inn-
kaupum, hreingerningu og ýmsu öðru.
Sérfræðingarnir taka hins vegar fram
að menn eigi heldur ekki að sofa of
mikið. Meira en níu tíma svefn á sólar-
hring getur líka leitt til sjúkdóma, t.d.
hjartasjúkdóma. Það er því mælt með
sex til átta tíma svefnlengd á sólar-
hring.
„Með því að sofa um það bil sjö tíma á
sólarhring verndum við heilsu okkar
til frambúðar og drögum úr áhættunni
á krónískum sjúkdómum. Rannsókn
okkar sýnir mikla samsvörun. Náðu
þeim svefni sem þú hefur þörf fyrir,
haltu með því góðri heilsu og lifðu
lengur,“ segir Francesco Cappucio. -jh
Til að halda góðri heilsu þarf að sofa
7-8 tíma hverja nótt.