Fréttatíminn - 11.02.2011, Síða 54
46 bíó Helgin 11.-13. febrúar 2011
Þ essi eftirsóttustu verðlaun kvikmyndabransans í Banda-ríkjunum hafa alltaf verið
umdeild og þeir sem hljóta ekki náð
fyrir augum Akademíunnar geta
alltaf huggað sig með því að Peter
O’Toole, Alfred Hitchcock, Fe-
derico Fellini, Richard Burton,
Akira Kurosawa og Albert Fin-
ney hafa aldrei fengið verðlaun og
bið Martins Scorsese og Stevens
Spielberg eftir verðlaunum virtist
á tímabili ætla að verða endalaus á
meðan alls konar minni spámenn
fóru heim með styttur.
Óskarsverðlaunin snúast einfald-
lega um miklu meira en hæfileika
leikara og leikstjóra og gæði kvik-
mynda. Inn í þetta blandast alls kon-
ar pólitík og hefðir þannig að það
er síður en svo á vísan að róa fyrir
þá bestu. Breska kvikmyndatíma-
ritið Empire hefur tínt til ýmis atriði
sem ættu að gefa vísbendingu um
af hverju tilnefndar myndir ættu að
vinna, og svo aftur á móti af hverju
þær munu ekki vinna. Af þeim tíu
tilnefndu myndum sem sýndar hafa
verið á Íslandi þykja þessar sigur-
stranglegastar:
Black Swan vinnur vegna þess að
hér er á ferðinni sterk, dramatísk
saga frá virtum leikstjóra. Frammi-
staða leikara er frábær, með Natal-
ie Portman fremsta í flokki. Black
Swan vinnur ekki vegna þess að
þrátt fyrir mjög góða dóma eru þeir
sem eru á móti henni virkilega á
móti henni og þeir hafa látið vel í sér
heyra. Þótt myndin sé tilnefnd fyrir
klippingu og leikstjórn vantar hana
tilnefningu fyrir besta handritið en
besta myndin tekur yfirleitt allan
pakkann í þessum meginflokkum.
The Fighter vinnur vegna þess að
viðfangsefni hennar er nógu hefð-
bundið og útfært þannig að það ætti
að hugnast eldri kjósendum en með
nægan brodd til þess að höfða til
þeirra sem yngri eru. Hún er með
þrjár tilnefningar fyrir besta leik í
aukahlutverkum og einnig með hinar
mikilvægu tilnefningar fyrir handrit,
klippingu og leikstjórn. Og Óskarinn
elskar hnefaleikamyndir, samanber
Million Dollar Baby og Rocky. Það
boðar hins vegar ekki gott að Mark
Wahlberg er ekki tilnefndur sem
besti leikari í aðalhlutverki og boxið
er ekki alltaf trygging eins og sést
best á því að Raging Bull vann ekki.
Inception vinnur vegna þess að
Óskarinn er veikur fyrir myndum
sem mala gull í miðasölunni. Leik-
stjórinn er einn sá hæfileikaríkasti
í bransanum og myndin öll er unn-
inn af þeirri fagmennsku sem á að
einkenna „bestu myndina“. Myndin
vinnur samt varla þar sem hún er
hvorki með tilnefningu fyrir bestu
leikstjórn né klippingu. Það veit ekki
á gott.
The King´s Speech er sannkölluð
„óskarsverðlaunamynd“. Hún er
gáfuleg, sannkölluð búningamynd
frá liðnum tíma, viðfangsefnið er
konunglegt, leikararnir frábærir og
allt er þetta vel pússað og áferðarfal-
legt. Hún er með flestar tilnefningar
og Akademían er gjörn á að hrúga öll-
um helstu verðlaunum á sömu mynd-
ina. Hún vinnur ekki vegna þess að
hún er ekki heppilegur kostur ef
Akademían vill ná til ungs fólks, og
mikið hefur verið ritað og rætt um að
Georg VI hafi verið hallur undir nas-
isma. Svo er Óskar mátulega hrifinn
af því þegar Bretar gera sig gildandi
á hátíðinni.
Social Network vinnur vegna þess
að hún kallast á við samtímann og
fjallar um fyrirbæri sem bókstaflega
allir þekkja. Myndin er vel leikin,
leikstjórinn er einn sá virtasti í fag-
inu og hún græddi yfir 100 milljón-
ir dollara í Bandaríkjunum, en það
er eiginlega lágmarksupphæð fyrir
„bestu myndina“. Hún tapar hins
vegar vegna þess að hún er ekki
nógu hefðbundin og Akademían er
kannski ekki alveg með þetta inter-
net á hreinu. Hún er aðeins með eina
leikaratilnefningu á móti þremur hjá
King´s Speech og þar sem leikarar
eru í meirihluta í Akademíunni má
ætla að þeir séu ekkert of hrifnir af
myndinni.
True Grit vinnur vegna þess að all-
ir elska The Dude (Jeff Bridges í Big
Lebowski) og allir elska Coen-bræð-
ur og Akadamían elskar vestra ennþá
(Dances with Wolves, Unforgiven og
No Country for Old Men sem Coen-
bræður gerðu. Þarf frekari vitnanna
við?) Hún fór yfir 100 milljón dollara
markið í Bandaríkjunum. Hún vinnur
ekki vegna þess að hana vantar til-
nefningu fyrir klippingu þannig að
til þess að vinna verður hún að rjúfa
þriggja áratuga hefð. Það er stutt
síðan bræðurnir sópuðu að sér verð-
launum fyrir No Country for Old Men
þannig að Akademían vill örugglega
dreifa gleðinni.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
óskarsverðlaunin er besta myndin best?
bíódómur true grit
frumsýndar
Og Óskarinn fer til ...
Óskarsverðlaunin verða afhent í lok þessa mánaðar við skrautlega athöfn eins og lög í Hollywood gera ráð
fyrir. Flokkur þeirra mynda sem etja kappi um verðlaun fyrir bestu myndina er sérstaklega sterkur þetta
árið, sem sést ágætlega á vandræðalegu stjörnuregninu sem dunið hefur á tilnefndum myndum í gagnrýni
á þessari síðu undanfarið. Þegar svo margar magnaðar myndir keppa er næsta víst að lítil sátt mun ríkja
um vinningshafann en það er svo sem ekkert nýtt þegar Óskarinn er annars vegar.
e kki þarf að hafa mörg orð um snilld þeirra bræðra Ethans og Joels Coen enda slíkir
meistarar að á löngum ferli hafa þeir varla stigið
feilspor fyrir utan The Ladykillers og Intolerable
Cruelty. Þeir bræður voru í miklum ham árið
2007 þegar þeir sendu frá sér hinn frábæra sam-
tímavestra No Country for Old Men og með True
Grit hafa þeir loksins gert alvöruvestra sem er
svo skotheldur að líklega verður maður bara að
taka sénsinn og fullyrða að True Grit sé besta
mynd þeirra til þessa þótt af nógu sé að taka
þegar sá stimpill er kominn á loft.
Vestrajaxlinn John Wayne landaði Óskars-
verðlaunum fyrir túlkun sína á hinum rudda-
lega laganna verði, Rooster Cogburn, í True Grit
árið 1969. Mynd þeirra Coen-bræðra er fráleitt
endurgerð þeirrar myndar. Bræðurnir litu fram
hjá gömlu myndinni, fóru beint í frumtextann og
skrifuðu handrit sitt upp úr skáldsögu Charles
Portis.
Þar segir frá hinni 14 ára gömlu Mattie Ross
sem er heldur betur með bein í nefinu og kjaft-
inn fyrir neðan það. Þegar skíthællinn Tom Cha-
ney drepur föður hennar og stingur síðan af,
lætur sú stutta ekki hugfallast heldur undirbýr
hefndarleiðangur. Sér til halds og trausts ræður
hún fyllibyttuna og rustann Rooster Cogburn
sem er annálaður fyrir að taka ribbalda föstum
tökum, skjóta fyrst og spyrja svo.
Hailee Steinfeld, 15 ára gömul leikkona, sýn-
ir ótrúleg tilþrif í hlutverki stúlkunnar og Matt
Damon er óvenju skemmtilegur sem lögreglu-
maður frá Texas sem slæst í för með hinu sér-
kennilega tvíeyki. Josh Brolin, sem vann síðast
með Coen-bræðrum í No Country for Old Men,
er óárennilegur og ógnandi í hlutverki morð-
ingjans og hinn alltof sjaldséði Barry Pepper
er ógeðslegur, ógnandi og firnasterkur í litlu
hlutverki útlaga sem tekur Chaney undir sinn
verndarvæng. En yfir öllu þessu ágæta fólki og
myndinni eins og hún leggur sig gnæfir Jeff
Bridges í hlutverki hins eineyga Cogburns. Mað-
urinn er bara hreint út sagt stórkostlegur í hlut-
verkinu og kemur þessari grjóthörðu fyllibyttu
og bardagamanni, sem þó á til mannlega taug
undir hrjúfu yfirborðinu, til skila með bravúr.
Joel og Ethan segja þessa sögu á sinn sér-
staka hátt og af slíkri tilfinningu að myndin
ristir djúpt, auk þess sem hún er löðrandi í höf-
undareinkennum þeirra sem gera hana að veislu
fyrir augu og eyru. Þórarinn Þórarinsson
Töff mynd um alvöru harðjaxl
Akademían er gjörn á að hrúga öllum
helstu verðlaunum á sömu myndina.
Kraftur látleysisins
Breski leikstjórinn Mike Leigh hefur einstakt lag á að gera mannlegar og lát-
lausar bíómyndir sem rista djúpt og snerta við fólki þótt þær líði stundum áfram
eins og ekkert sé að gerast. Þetta er einmitt tilfellið í hans nýjustu mynd, Another
Year, sem Græna ljósið frumsýnir í Bíó
Paradís á föstudaginn, en þar koma
öndvegis leikarar súrsætri sögu til
skila með mikilli hægð. Leigh hóf feril
sinn sem leikskáld og sviðsleikstjóri
en fyrsta kvikmynd hans byggðist á
eigin verki, Bleak Moments, árið 1971
sem vakti mikla athygli. Hann tók sér
síðan langt hlé frá bíómyndum og
lét ekki til skarar skríða fyrr en árið
1988 með High Hopes. Síðustu myndir
hans eru Vera Drake, Topsy-Turvy,
Naked og hin áhrifaríka Secrets&Lies
sem var sýnd á Íslandi fyrir nokkrum árum við góðar undirtektir. Í Another Year
segir Leigh frá rosknum hjónum sem eru sátt við líf sitt en fólk í kringum þau
leitar endalaust til þeirra með vandamál sín. Kvikmyndatímaritið Empire gefur
myndinni fimm stjörnur og lofar hana í hástert. Ruth Sheen og Jim Broadbent
leika gömlu hjónin en Broadbent er leikari þeirrar náttúru að ekkert virðist
honum ofviða og hann er jafnvígur á grín, hádramatík og allt þar á milli.
Steinfeld, Damon og Brolin eru stórgóð í hlut-
verkum sínum en standa öll í stórum skugga Jeffs
Bridges.
Gömlu hjónin eru sátt við sitt en sömu sögu
er ekki að segja af fólkinu í kringum þau.
Allar myndirnar sem berjast um Óskarsverðlaunin sem besta myndin hafa ýmislegt með sér og á móti en að öllu samanlögðu er
staða konungsins stamandi býsna góð.
Lýtalæknir og tískupíur í
vanda og Jógi í góðum gír
From Prada to Nada er gamanmynd sem byggð
er lauslega á Sense and Sensibility, margrómaðri
skáldsögu Jane Austen. Sögusviðið er fært til
Bandaríkja samtímans og segir frá tveimur systr-
um, tískudrósum miklum, sem þurfa að endur-
skoða líf sitt eftir að faðir þeirra fellur frá og skilur
ekkert eftir sig. Yogi Bear er þrívíddarmynd um
hinn glaðlynda og góðkunna björn sem flestir sem
komnir eru til vits og ára muna eftir. Jógi og félagi
hans Bóbó eru við sama heygarðshornið og gera
skógarverðinum í Jellystone-þjóðgarðinum lífið
leitt. Í gamanmyndinni Just go with it leikur Adam
Sandler lýtalækni sem fellur fyrir sér yngri og
glæsilegri konu en til þess
að breiða yfir klaufalega
lygi flækist hann enn frekar
í eigin blekkingavef þegar
hann fær aðstoðarkonu
sína (Jennifer Aniston) til
að þykjast vera fyrrverandi
eiginkona hans.
SKRÁÐU ÞIG NÚNA
á worldclass.is og í síma 55 30000
Opið allan sólarhringinn
í World Class Kringlunni
B
es
tu
n
B
irt
in
g
ah
ús