Fréttatíminn - 11.02.2011, Síða 62
M ér finnst pínu nostalgía í þessu og svo eiga líka margir minningar tengdar Tjarnar-
bíói. Majónesið er svolítið þannig og
það er upplagt að taka eitthvað með
majónesi með sér inn í sal á bakka og
hafa hann á hnjánum með rauðvíns-
glasi og horfa eða hlusta á eitthvað
skemmtilegt,“ segir Áslaug. „Þetta er
dálítið íslensk stemning og majónesið
er að vissu leyti undirstaða matarmenn-
ingar Íslendinga. Þegar fólk vill gera
sér glaðan dag og njóta lífsins þá fær
það sér majónes, heimahrært jafnvel, og
brauðtertur.“
Áslaug notar Gunnars majónes og
blæs á alla gagnrýni á majónes og
segir hana á ýmsan hátt byggða á mis-
skilningi; majónesið sé alls ekki jafn
hættulegt og margir láti í veðri vaka og
tal um kransæðakrem sé sprottið af for-
dómum. „Ég er búin að stúdera majónes
í tengslum við að ég hef stundum unnið
fyrir Gunnars majónes við myndatökur
og annað. Þegar ég var að gera litla
majónesbók fyrir nokkrum árum,
spurði ég næringarfræðing út í majónes-
ið og þetta er nú bara einfaldlega þannig
að annað hvort þolir maður eggjarauður
og góðar olíur eða ekki. Þannig að
þetta er bara góður matur ef fólk þolir
kólesteról á annað borð. Svo er nú þetta
tal um eina eggjarauðu á viku eiginlega
hætt og orðið frekar úrelt. Það er eins
og þegar talað var um að maður ætti að
drekka tíu mjólkurglös á dag eða borða
18 brauðsneiðar eða eitthvað í þeim dúr.
Ég er ekkert að tala um að fólk eigi að
vera að borða majónes í miklu magni en
þetta er svo góður bragðbætir þannig
að þeir hugrökku fá sér majónes. Mér
finnst það svo ánægjulegt. Þeir huguðu
koma til okkar á meðan rolurnar eru
í diet-vörum einhvers staðar annars
staðar. Það er líka sagt að þeir séu ham-
ingjusamari sem borða majónes. Þeir
þora og eru ekki með móral.“
Áslaug bætir því svo við þetta að hún
hafi einhverju sinni fengið þá ábendingu
frá einkaþjálfara að fita brenni fitu og
að hún mætti alls ekki hætta að borða
smjör og majónes.
Á laugardaginn verður heilmikið fjör
í Tjarnarbíói en þá verða fótboltastelp-
urnar í FC Ógn með fatamarkað þar sem
mikið af flottum fötum og fylgihlutum
eru á boðstólum. Þá verður Áslaug með
brauðtertuhátíð á Majónesi. „Það verður
allt fullt af brauðtertum,“ segir Áslaug
sem ætlar að leggja áherslu á brauð-
terturnar um helgar en aðra daga verða
léttari brauðréttir og súpur alls ráðandi.
„Þetta er í raun barstaður og upplagt að
fá sér brauðsneið í morgunmat með smá
majónesi og súpu með smá majónes-
slettu í hádeginu.“
nýr veitingastaður Býður upp á Brauðtertur og Majónes
Hugrakkir hika ekki
við að fá sér majónes
Áslaug Snorradóttir hefur opnað veitingastað í Tjarnarbíói og er óhætt að segja að hún fari ótroðnar
slóðir og jafnvel beinlínis gegn tískustraumum. Staðurinn heitir Majónes og eins og nafnið gefur svo
greinilega til kynna er þessi feitiupplausn, sem svo víða er litin hornauga, í hávegum höfð.
Það er líka
sagt að þeir
séu ham-
ingjusamari
sem borða
majónes.
54 dægurmál Helgin 11.-13. febrúar 2011
Fréttasíða
meistara
Jakobs
Blaðamaðurinn Jakob
Bjarnar Grétarsson,
sem stundar um þessar
mundir meistaranám í
bókmenntafræðum, er
byrjaður að flytja fréttir
af Facebook á slóðinni
https://uni.hi.is/jbg14/.
Þar tíundar Jakob það
sem helst er á baugi á
samskiptavefnum á sinn
sérstaka hátt. Meðal
þess sem Jakob greinir frá á síðunni eru
áhyggjur Tobbu Marinós af holdafari
Sveins Andra Sveinssonar lögmanns
og tíðindi af því að Reynir Traustason,
ritstjóri DV, sé að sækja í sig veðrið á
Facebook og raki nú inn nýjum vinum.
Jakob heldur því einnig til haga hvað hvert
viðfangsefni á marga vini á vefnum og
þannig er Tobba með 2.958 á móti 4.879
vinum stjörnulögmannsins Sveins Andra.
Allir í Köben
Straumurinn lá til Kaupmannahafnar um
síðustu helgi þar sem fólk sýndi sig og sá
aðra en líklega hefur tískuvika í borginni
haft sitt að segja. Tobba Marinós var í
rannsóknarleiðangri fyrir sína næstu bók
ásamt kærastanum sínum, Karli Sigurðs-
syni, borgarfulltrúa og baggalúti. Þórir
Snær Sigurjónsson kvikmyndamógúll
og kærastan hans, Elsa María Jakobs-
dóttir, voru einnig í borginni sem og Atli
Rafn Sigurðarson leikari. Þá lét Kolbrún
Pálína Helga-
dóttir, ritstjóri
Nýs lífs, sig ekki
vanta frekar en
tískudrottningin
Svava Johansen,
kennd við 17.
Verð 32.750 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Withings WiFi vogin
• Fyrir allt að 8 notendur
• Skynjar hver notandinn er
• Skráir þyngd, fituhlutfall og vöðvamassa
• Þráðlaus samskipti við tölvu og smartsíma
• Fæst í hvítum lit eða svörtum
Þórarinn
Þórarinsson
toti@
frettatiminn.is
Þorleifur kann ákaflega vel við
nýliða Besta flokksins og segist
alls ekki hafa fengið fyrir hjartað
vegna vinnu sinnar með þeim í
nefndum og ráðum borgarinnar.
Borgarpólitík vinstriMaður Með stíflaða hægri kransæð
Þræddur á elleftu stundu
É g er nú reyndar á fundi núna en ég á að vera heima að taka því
rólega,“ sagði Þorleifur Gunnlaugs-
son, varaborgarfulltrúi Vinstri-
grænna, sem fór nýlega í hjarta-
þræðingu á elleftu stundu. „Ég fékk
næstum því fyrir hjartað. Það var
95% stífla í hægri kransæðinni en sú
vinstri var alveg hrein. Ég var mjög
ánægður með það. Þetta var svona
hægri viðvörun. Það var svo bara
blásið út og mér líður mjög vel en
þarf að fara að vinna í mínum mál-
um og létta mig,“ segir Þorleifur
og bætir við að ef hann fari eftir því
sem læknarnir segja honum sé ekk-
ert því til fyrirstöðu að hann verði
manna elstur.
Þorleifur er fastagestur í heita
pottinum í Vesturbæjarlauginni en
þýðir þetta þá að hann verði að fara
að masa minna og synda meira?
„Ég synti mjög mikið hérna áður
fyrr, alveg 500-600 metra á dag
í áratugi. En svo fór ég einhvern
veginn að velja það sem mér fannst
best í þessu – sem var að labba
bara í pottinn.“
Þorleifur ætlar sér að fara hægt
af stað og er að hugsa um að dvelja
í mánuð á Heilsuhælinu í Hvera-
gerði til þess að koma sér í gang
með hreyfingu. „Mér er ráðlagt
að vinna mig hægt upp í tvo þrjá
mánuði og þá á ég að vera kominn
á strik, og ég ætla ekkert að hætta
í pólitík. Mér líður satt best að
segja mun betur en mér hefur liðið
lengi. Ég finn bara einhvern veginn
fyrir því að blóðið streymir um. Ég
skildi ekkert í sjálfum mér; ég var
orðinn svo latur og þreyttur alltaf,“
segir Þorleifur sem telur sig hepp-
inn að hafa farið í hjartaþræðingu
í tæka tíð.
Mér líður
satt best
að segja
mun betur
en mér
hefur liðið
lengi.
Anna Elínborg og Áslaug á Majónesi þar sem þær verða með brauðtertuveislu á laugardaginn.
Eldfim Facebook-deila
Þótt allir séu „vinir“ á Facebook slær stundum í brýnu og þannig
laust þeim Sölva Tryggvasyni og Bergsteini Sigurðssyni hressi-
lega saman á samskiptavefnum á miðvikudag
þegar Bergsteinn sendi Sölva tóninn fyrir pistilinn
Snobbað fyrir leiðindum sem sá síðarnefndi
skrifaði á Pressuna og gagnrýndi menningarsnobb-
ara sem gerðu út á þyngsl og leiðindi. Bergsteinn
sagði að pistillinn væri „allsherjar fordómavilpa“
og Sölvi svaraði að bragði og hvatti Bergstein til að
hætta að lesa pistla sína og þá færi honum að líða
betur. Bergsteinn skaut þá fast til baka og sagðist
hreinlega ekki geta orða bundist þar sem þessi „er
eitthvað það ömurlegasta sem hefur komið frá þér,
órökstutt og forheimskandi rugl, sem gengur út á
að níða skóinn af þeim sem deila ekki smekk þínum
á Gillsenegger.“ Þá svaraði Bergsteinn beiðni Sölva um að hann
hætti að lesa skrif hans með því að biðja Sölva að hætta að skrifa.