Prentarinn - 01.03.1985, Blaðsíða 3
Einkaréttur til útvarpsrekstrar hefur verið af-
numinn. Framundan er ugglaust hörð sam-
keppni um eyru og augu íslendinga. Spurningin
stendur hins vegar um það hverjir taki þátt í
þessari samkeppni. Munu þeir einir sem eru
fulltrúar auðvaldsins og „frumskógarlögmáls-
ins“ taka þátt í henni eða mun verkafólk í sam-
einingu blanda sér í leikinn?
Fulltrúar verkafólks hafa setið á rökstólum að
undanförnu um þetta mál og eru menn sam-
mála um nauðsyn þess að verkafólk hafi þarna
aðgang. Umræðan hefur snúist um að reka
fullkomna hljóðvarpsstöð allan daginn á þeim
grundvelli að hún stæði vörð um hlutleysi í
fréttaflutningi og tryggði skoðanafrelsi.
Flér er á ferðinni fjárfrekt fyrirtæki og því
miklvægt að félagshyggjufólk takist sameigin-
lega á við þetta verkefni og hefur verkalýðs-
hreyfingin þar af leiðandi snúið sér til Samvinnu-
hreyfingarinnar, en félagsfólk hennar hefur sýnt
skilning á nauðsyn þessa máls sbr. ályktun
síðasta aðalfundar Sambandsins.
Verkafólk hefur átt undir högg að sækja á
fjölmiðlavettvangnum. Fannig hafa flest blöðin
lagst gegn hagsmunum verkafólks þegar á hef-
ur reynt, enda í eigu fjármagnsaðila sem arð-
ræna verkafólk. Ríkisútvarpið er ekki undir
sömu sök selt, en átakanlega er þó hlutleysis-
reglan þar oft í lausu lofti gegn hagsmunum
verkafólks.
Auðvitað eru nýju útvarpslögin meingölluð og
þjóna fyrst og fremst lögmálum gróðaaflanna,
enda í anda þess fólks sem myndar meirihluta,
svo óréttlátan sem raun ber vitni, á Alþingi um
þessar mundir.
í Ijósi þessara staðreynda er mikilvægt að
verkafólk vígbúist á þessum vettvangi. Megi
það takast.
- mes
prentnrínn
■ MÁLGAGN félags bókagerðarmanna
PRENTARINN - málgagn Félags bókagerðarmanna • Útgefandi FBM,
Hverfisgötu 21 • Ritstjóri: Magnús Einar Sigurðsson • Setning, filmu-
vinnsla, prentun og bókband: Prentsmiðjan ODDI hf. • Letur: Times og
Helvetica • Hönnuður blaðhauss: Þórleifur Valgarður Friðriksson.
PRENTARimm 3.5.'85
3