Prentarinn - 01.03.1985, Blaðsíða 7

Prentarinn - 01.03.1985, Blaðsíða 7
Grein sú sem hér birtist er úrdráttur úr erindi sem Ole Brinch flutti á vegum Félags bókagerðarmanna og Félags íslenska prentiðnaðarins 11. júní s. I. Greinin er í þýðingu Jóns Snorra Ásgeirssonar. flestum póst- og símstöðvum og útgefend- ur bóka og blaða verða sér úti um þau því að þeir hafa þörf á að ná með þessum hætti til viðskiptavinanna. Hagnýting boðveitna er enn á tilrauna- stigi í Danmörku, en það þýðir að almenn- ingur hefur ekki enn átt þess kost að nota sér þær svo að nokkru nemi. Ennþá eru ekki nema um 400 notendur boðveitna í Danmörku. En ekki færri en 140 fyrirtæki selja upplýsingar til þeirra, þar á meðal ýmsir útgefendur, en ekkert fyrirtæki sem starfar í hefðbundnum grafískum iðnaði. Hvaða þjónustu buðu svo póstur og sími Dönum á árinu 1983? Bráðum verður lok- ið við að leggja nýtt dreifingakerfi, þannig að flestir kaupstaðir í Danmörku eru nú tengdir með stafrænu (digital) kerfi. Farið er að nota ljósþræði (optical fibres) á Sjá- landi og á einstaka stöðum á Jótlandi. Þannig má segja að Danir séu í öðaönn að búa sig undir að hagnýta hina fjölbreyttu möguleika sem bjóðast á sviði rafeinda- tækninnar. Telex-kerfið var endurbætt á árinu 1983. Nú fást fjarritarar með skjá og öllum bún- aði fyrir 80.000 d. kr. (rúml. 300.000 ísl. kr. nú, júnílok ’85) sem hægt er að tengja við tölvur sem meðal annars má nota við ritvinnslu. Þarna er með öðrum orðum um háþróaða rafeinda-póstþjónustu að ræða. Þeir sem vinna í grafísku greinunum ræða nú mikið um textaflutning frá skrifstofu- vélum beint í gegnum ljóssetjara. Enn- fremur um það hvort við höfum efni á því o. s. frv. Því miður hafa menn ekki getað komið sér saman um stefnuna í þessum málum. Rafeinda-upplýsingabyltingin æðir yfir löndin og þótt tækniframfarir séu allveru- legar í grafísku greinunum öllum veitist okkur erfitt að fylgjast með. Skoðið eftir- farandi yfirlit og reynið að sjá hvar rúm er fyrir prentað efni í því. Hvernig stöndum við að vígi í tæknilegum efnum? Tækniþróun áttunda áratugarins hefur að miklu leyti verið fólgin í því að tölvur hafa verið notaðar til að auka sjálfvirkni í ein- stökum þáttum framleiðsluferlisins. En tölvutæknin breytti þeim eiginlega ekki að 1850 1920 1950 1970 1980 ritsími ritsími ritsími ritsími ritsími talsími talsfmi talsími talsími útvarp útvarp/stereó útvarp/stereó útvarp/stereó telex telex telex Ijósmynda- Ijósmynda- Ijósmynda- fjarskipti fjarskipti fjarskipti sjónvarp sjónvarp sjónvarp/litur loftskeyti loftskeyti loftskeyti gagna- gagna- sendingar sendingar (datakomm) (datakomm) breiðbands- breiðbands- fjarskipti fjarskipti beggja átta beggja átta radíó radíó ráðstefnusími ráðstefnusími teletex (super- telex) boðveitur (videotex) strengjasjón- varp (kapalsjónvarp) fjarritun milli skrifstofa (kontor-tele- type) ráðstefnusjón- varp sending á skjölum gegn- um síma, sv/hv (telecopy- og árið 1990 að öllum líkindum: ing, telefax) ritsími boðveitur (videótex) talsimi strengjasjónvarp (kapalsjónvarp) ' útvarp/stereó) fjarritun milli skrifstofa telex ráðstefnusjónvarp Ijósmyndafjar- skipti sjónvarp/litur/stereo gagnasendingar gegnum sfma, loftskeyti sv/hv (telecopying, telefax) gagnasendingar gagnasendingar gegnum síma, (datakomm) í lit breiðbandsfjarskipti tölvupósthólf beggja átta radíó textasendingar um strengjasjónv.kerfi ráðstefnusími sítengd heimilistölva teletex (supertelex) Ijósmyndasendingar PRENTARINN 3.5. 85 7

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.