Prentarinn - 01.03.1985, Blaðsíða 12
Starfsumhverfi
- varasöm efni
Inngangur
Eitt af meginvandamálum í sam-
bandi viö efnanotkun í prentiðnaöi
er sá aragrúi af efnum og efnasam-
böndum sem þar finnast.
Áriö 1977-1978 var byrjað á
könnun hér á landi á vegum Ör-
yggiseftirlitsins á efnanotkun í
prentiönaöi.
Þessari könnun var ekki lokið en
töluveröu af upplýsingum var safn-
að. Könnunin náði ekki til prentlita
þar sem búist var viö aö mjög erfitt
yröi aö fá upplýsingar um samsetn-
ingu þeirra. Alls fundust 221 vöru-
heiti hér á markaöinum. (Til sam-
anburðar var á sama tíma gerð
athugun á efnanotkun í dönskum
prentiðnaði og upp úr þeirri
könnun var gerö efnaskrá sem í
eru skráð u. þ. b. 1200 vöruheiti).
Mjög erfiölega gekk aö fá innflytj-
endur hér á landi til aö senda full-
nægjandi upplýsingar um efna-
samsetningu á þeim vörum sem
þeir höföu á boðstólum. Af þeim
upplýsingum sem fengust, var
hægt að skrásetja 84 hrein efni í
þessum vöruheitum. (Til sam-
anburöar reikna Norömenn meö aö
þar sé aö finna u. þ. b. 2000 hrein
efni sem notuð eru eitt sér eöa í
blöndun í norskum prentiðnaöi).
Þrátt fyrir aö markaöurinn hér á
landi sé mun minni er ekki ástæða
til aö ætla að efnanotkun tengd
prentiðnaðinum hér á landi sé af
annarri stærðargráðu en á hinum
Norðurlöndunum.
Efnamengun
Hægt er aö skipta uppruna efna-
mengunar í prentiðnaði upp í 4
þætti:
1. Lífræn leysiefni.
2. Ætandi efni.
3. Litarefni.
4. Gastegundir.
1. Aragrúi af lífrænum leysiefn-
um tengjast prentiðnaöi. Þau efni
sem ekki ættu aö finnast sem hrein
efni eða í efnablöndun eru:
1. Benzen.
II. Kolefnistetrakloríö.
III. Bensín, sem inniheldur
benzen.
IV. Kloroform.
V. Kolefnisdisulfið.
Á öll þessi efni hefur verið sönn-
uö eiturverkun. Hafa skal í huga að
öll meðferð lífrænna leysiefna er
skaöleg fyrir líkamann ef mikiö
magn er haft undir höndum í
langan tíma.
2. Mikið er notað af ætandi efn-
um viö vinnu í prentiðnaði. Sem
dæmi um slík efni er t. d.
- brennisteinssýra
- fosfórsýra
- saltpéturssýra
- flússýra
- ammoníakvatn (salmíakspír-
itus)
- sódi (natríumhydroxið)
Frekar auðvelt er að verjast
þessum efnum með notkun hlífðar-
gleraugna og hlífðarhanska. Einna
verst af þessum sýrum er flússýran
(HF), en ef hún lendir á húð,
óþynnt, fer hún í gegnum hana og
inn að beini og virkar ætandi þar.
3. Eitt helsta vandamáiið varð-
andi litarefni sem notuð eru í prent-
iðnaði er hversu lítið er vitað um
samsetningu þeirra og hversu erfitt
er að afla upplýsinga um hana.
Könnun sem gerð var 1977-1978
af Kinsley Kay í USA á 37 al-
12
PRENTARINN 3.5.'Q5