Prentarinn - 01.03.1985, Side 19
Svipmyndir frá ársfundinum, efst formaöur og
ritari NGU, neðst fulltrúar FBM.
lag bókagerðarmanna styrk að þessu
sinni, enda eina félagið sem átti í lang-
vinnri kjaradeilu.
Starfsemi NGU
Stærsta verkefni sem NGU hefur tekið
þátt í til þessa er Utopia verkefnið en
því er nú lokið. í því sambandi skal á
það bent enn og aftur að félagsmenn
geta haft aðgang að niðurstöðum þess
á skrifstofu félagsins auk þess sem vís-
að er til greina sem birst hafa í Prent-
aranum.
A síðasta starfsári hefur sú breyting
átt sér stað að búið er að taka upp
markvissari upplýsingaskipti á milli
aðildarfélaganna. Nýir samningar og
annað sem snertir hagsmuni félags-
manna er sent til aðildarfélaga jafn-
harðan. Þá var tekin upp sú nýbreytni
að halda upplýsingafundi á milli árs-
funda þar sem færri fulltrúar mæta, frá
fyrsta slíkum fundi hefur verið greint í
Prentaranum, 1. tbl. þessa árs.
A hverju ári eru svo haldnar
haustráðstefnur um hin ólíklegustu
efni sem snerta hagsmuni bókagerðar-
manna. Á þessu ári er svo jafnframt
haldin sérstök ráðstefna um málefni
ungs fólks, enda árið 1985 æskulýðsár
Sameinuðu þjóðanna.
m
Vaktavinna - Táknmál
NGU hefur gert könnun á samningum
á Norðurlöndunum um vaktavinnu.
Það var gert vegna fullyrðinga at-
vinnurekenda að þau vaktavinnufyr-
irkomulög sem viðgengjust væru of
ólík á milli landa. I þessu sambandi
var gerð sérstök samþykkt og er hún
birt hér með.
Að undanförnu hefur verið starf-
andi nefnd sem er ætlað að samræma
tákn og fagorð innan prentunarinnar á
Norðurlöndum. Greint var frá því sem
nefndin hefur gert hingað til og er
ætlunin að hún ljúki störfum 1986,
19