Prentarinn - 01.03.1985, Síða 24
Dansk Typograf-Forbund
Kaj Pedersen
Aðalkrafan
um
35 tíma
vinnu-
viku
Kaj Pedersen.
1
Dansk Typograf Forbund telur hið nor-
ræna samstarf afar mikilvægt.
Það er afar mikilvægt fyrir hvert ein-
stakt samband (félag) að geta notið
reynslu hvors annars í málum eins og:
samningum, menntunarmálum, sam-
starfssamningum við önnur verkalýðs-
félög, heilbrigðis- og hollustuháttum
o. s. frv.
Okkar skoðun er sú að Nordisk
Grafisk Union taki á þeim málum sem
eru í brennipunkti hverju sinni og
erum ánægðir með starfsemi NGU.
2
Auðvitað ættu einstakir félagsmenn að
svara þessari spurningu en almennt er
hægt að segja að áhugi þeirra sé mikill
fyrir hinu norræna samstarfi, alþjóð-
lega samstarfinu og samstöðustarfi
með félögum í öðrum löndum. Þessi
málaflokkur á sitt fasta pláss í blaði
okkar Grafia.
3
Þau ár sem hin borgaralegu öfl hafa
ráðið í Danmörku hafa þýtt mun verri
stöðu fyrir verkafólk. Því miður lítur
út fyrir að þessi þróun haldi áfram um
skeið eða á meðan ekki hefur tekist að
knésetja ríkisstjórnina.
Meðallaunin hjá félögum DTF eru í
dag ca. 3800 kr. danskar á viku eða ca.
16.500 á mánuði. Með lagasetningu
ríkisstjórnarinnar munu svo launin
hækka um U/2—2% á ári næstu 2 árin.
Aðalkrafan í samningaviðræðunum
var krafan um 35 tíma vinnuviku. Þar
sem ekki náðist árangur í viðræðum
hófust verkföll og verkbönn sem stóðu
í viku og snertu ca. 300.000 verka-
menn, en deilurnar stóðu þó í 3 vikur
með aðgerðum og mótmælum sem
ekki eiga sinn líka í Danmörku gegn
ríkisstjórninni. í lögum hennar felst að
vinnuvikan styttist um einn tíma frá 1.
desember 1986.
4-5
Sem svar við þessari spurningu lítum
við svo á að ársfundirnir séu afar þýð-
ingarmiklir þar sem tækifæri gefst til
þess að kynnast stöðunni í hverju landi
fyrir sig. Ársfundurinn á Islandi hefur
verið sérlega þýðingarmikill vegna
þess hve hægri öflin eru sterk í flestum
löndum um þessar mundir og því mik-
ilvægt að bera saman bækurnar. Hvað
ársfundinn á íslandi snertir að öðru
leyti þá hefur hann verið sérlega
ánægjulegur og hefur veðrið átt sinn
þátt í því og hin áhugaverða skoðunar-
ferð sem farið var í.
Vakta-
vinna
Ársfundur Nordisk Grafisk Union á
íslandi 3.-7. júní 1985 hefur fjallað
um auknar kröfur atvinnurekenda
fyrir frekari notkun vaktavinnu-
fyrirkomulags og annars óþægi-
legs og afbrigðilegs vinnutíma.
Nordisk Grafisk Union leggur
áherslu á það að bókagerðarfé-
lögin á Norðurlöndum leggist sam-
eiginlega gegn kröfum um afbrigði-
legan og óþægilegan vinnutíma.
Með tilliti til þeirra heilsuspillandi
áhrifa sem vinna á nóttunni og
vaktavinna hefur vilja bókagerðar-
félögin á Norðurlöndum hvert fyrir
sig og í sameiningu vinna gegn
frekari aukningu slíks vinnutíma.
[ þeim tilvikum þar sem ekki er
hægt að komast hjá slíkum vinnu-
tíma skal mæta því með styttri
vinnutíma án þess að það skerði
laun.
í gegnum stjórn Nordisk Grafisk
Union munu aðildarfélögin veita
hvort öðru upplýsingar um það
sem er að gerast á þessu sviði hjá
hvort öðru.
24