Dagfari - 01.10.2009, Blaðsíða 24

Dagfari - 01.10.2009, Blaðsíða 24
DAGFARI EKKERT NYTTIYFIRGANGI, HERNAÐI, MANNDRÁPUM, HEIMSKU OG FÓLSKU EFTIR BIRNU ÞÓRÐARDÓTTUR / Gerplu Halldórs IGljans Laxness, einhverri flott- ustu háðsádeilu er sett hef- ur verið saman um stríð og stríðsrekstur, er þar komið sögu er víkingar, á mála hjá Ríkarði jarli, hafa vaðið um ruplandi og rænandi, brennandi og berjandi, hengjandi og hús takandi í Nor- mandí. Þegar búandalýður tekur sig sam- an, nýtir vopn sín og verjur, tól og tæki er finnast heima fýrir og hægt er að grípa til þurfi örþir- faráðin, verður fátt um varnir útrásarvíkinganna og flóttinn eina vörn Þorgeirs Hávarssonar, meðan háðsglósur heimamanna, er báðu hann snauta heim, dynja yfir. Og Eimskip ekki farið að si- gla, eða kannski hætt! Ver ju- og vopnlaus snuddast hann í myrkrinu, bitinn af nöðrum og brenndur af netlum. Hve lágt ge- tur kappi lagst. Og engin Bónus- búð opin! Hvar er huggun að fá? Bjargar honum ekki að lokum kvinna eins þeirra er víkingar höfðu drepið, hengt sisona, til að létta sér lund. Ekki gekk húsfreyju að lífga kappann almennilega, þannig að leita þurfti hún afga- mallar tötrakonu, er að sjálfsögðu skildi skringimál útrásarvíkings, og sú hafði allt á hreinu: „Miklu kostarþú til, vesall maður, að fara svo lángan veg um úfin höf eða þcefast um þyrnikjörr og ormahreiður brenna hús fátcekra manna nokkurra útlendra er þú veist eingi deili á, eða festa uþþ bcendur á landareign þeirra sjálfra suðrí heimi, og svo aðra merki- lega menn sem þér hafa aldregi jyrir augu borið né til miska gert; eða hvað œtlastu jyrir, Þorgeir?“* Fátt var um svör hernaðarkapp- ans. Natóbasinn langt undan og enga vörn að fá. Kerling heldur áfram og spott- ar enn meir víkinga útrásarin- nar að norðan sem sigraðir voru með þeim einfalda máta að draga uppí ból þeirra kvenna, er það gátu hugsað sér til bjargar landi sínu og væntanlegum sonum sem dætrum. Gripu til þessara ráða óspjallaðar tignarmeyjar sem spjallaðar, portkonur og skækjur. á jjarlœgum löndum, til þess eins að //////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////^^^^ 24

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.