Fréttatíminn - 17.05.2013, Page 4
4 fréttir Helgin 17.-19. maí 2013
Er ofnæmið að trufla?
Cetirizin-
ratiopharm
Fljótt að virka
Við einkennum
frá augum og nefi
Við einkennum
langvarandi ofsakláða
Notkunarsvið: Cetirizin-ratiopharm inniheldur cetirizin tvíhýdróklóríð,
ofnæmislyf fyrir fullorðna og börn frá 6 ára aldri; til að draga úr einkennum
frá nefi og augum vegna árstíðabundins eða stöðugs ofnæmiskvefs; til
að draga úr einkennum langvarandi ofsakláða. Frábendingar: alvarlegur
nýrnasjúkdómur, ofnæmi fyrir virka efninu, einhverju öðru innihaldsefni
Cetirizin-ratiopharm eða fyrir hydroxyzini eða píperazín afleiðum. Varúð: Einstaklingar með skerta nýrnastarfsemi, með
flogaveiki eða sem eiga á hættu að fá krampa skulu láta lækninn vita áður en lyfið er notað. Hætta þarf töku lyfsins þremur
dögum áður en farið er í ofnæmishúðpróf. Meðganga og brjóstagjöf: Forðast skal notkun lyfsins. Skömmtun: Fullorðnir
og unglingar eldri en 12 ára: Ráðlagður skammtur er 10 mg, ein tafla, á dag. Börn 6 til 12 ára: Ráðlagður skammtur er
5 mg, hálf tafla, tvisvar á dag. Sjá frekari upplýsingar í fylgiseðli. Algengar aukaverkanir: Þreyta, munnþurrkur, ógleði,
niðurgangur, svimi, höfuðverkur, syfja, kokbólga og nefkvef. Lesið vandlega fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. SmPC: Júlí 2012.
Nú 100 töflur án lyfseðils!
Sprenging í fjölda útigangsmanna
„Staðan í fyrra var hneyksli. Hún er enn
verri núna. Þetta er algjör sprenging,“
segir Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgar-
fulltrúi Vinstri grænna í Reykjavík, um
aukinn fjölda útigangsmanna á götum
borgarinnar. Á síðasta ári var 24 körlum
vísað frá Gistiheimilinu við Þingholtsstræti
sem er neyðarskýli fyrir þá sem eiga hvergi
höfði sínu að halla. Í svari velferðarráðs
borgarinnar við fyrirspurn Þorleifs í vikunni kom fram að á fyrstu 120 dögum þess árs
var körlum vísað 137 sinnum vísað frá skýlinu, að jafnaði meira en einum á dag.
Samkvæmt áætlun velferðarsviðs er ekki reiknað með nýju gistiskýli fyrr en eftir 6-9
mánuði. Þorleifur lagði því fram á fundinum í vikunni „að þegar í stað verði fundið
bráðabirgðahúsnæði til að leysa vandann. Ef annað kemur ekki í leitirnar er bent á
Tjarnarsal Ráðhússins eða þann hluta Hörpunnar sem ekki er í notkun.“ Tillagan er í
frestun. -eh
Mikil ásókn í
matjurtagarða í Reykjavík
„Þetta hefur verið mjög vinsælt og ég held
að það verði bara vinsælla með árunum enda
er fólk alltaf að verða grænna,“ segir Ann
Andreasen, deildarfulltrúi hjá Skipulags- og
byggingarsviði Reykjavíkurborgar.
Um 400 manns hafa leigt sér matjurtagarð
hjá borginni fyrir sumarið. Uppbókað er við
Þorragötu í Vesturbænum og í Laugardal og
þar er fólk á biðlista eftir görðum. Aðeins tveir
garðar voru eftir í Fossvogi í vikunni en enn eru
lausir garðar í Árbæ, Grafarvogi og í Breiðholti.
Garðarnir eru um 20 fermetrar og verða
plægðir nú um miðjan maí. Leiga fyrir sumarið
er 4.200 krónur. Þá einnig hægt að leigja 100
fermetra garð í Skammadal í Mosfellsdal. -hdm
Kirsuberjatré í blóma
í Hljómskálagarðinum
Kirsuberjatrén í Hljómskálagarðinum
eru nú í miklum blóma og skarta
fagurbleikum blómum. Trén eru í
vesturhluta Hljómskálagarðsins á horni
Hringbrautar og Bjarkargötu. Japansk-
íslenska félagið færði Reykjavíkurborg
kirsuberjatrén að gjöf árið 2011 í tilefni
af tuttugu ára afmæli sínu og þrjátíu
ára afmælis systurfélagins, Íslensk-
japanska félagsins. Krisuberjatrén
í Hljómskálagarðinum eru fimmtíu
talsins og tákna samanlagðan aldur
félaganna tveggja og vináttu og frið á
milli Íslands og Japan. Blóm kirsuberja-
trjánna eru nokkurs konar tákn Japans
og í hávegum höfð þar. dhe
Grænir fingur borgarbúa fá að njóta sín í
matjurtagörðum Reykjavíkur í sumar. Ljós-
mynd/Hari
Kirsuberjatrén í Hljómskálagarðinum
tákna vináttu Íslands og Japans og
standa nú í miklum blóma. Ljósmynd/
Hari
Viðskipti Áhrifafólk hittist að fríkirkjuVegi 11 og horfir til framtíðar
Efnahagsráðgjafi Obama í
einkasamkvæmi Björgólfs Thors
Björgólfur Thor Björgólfsson
fjárfestir býður fjölda áhrifafólks
í einkasamkvæmi að Fríkirkjuvegi
11 í dag, föstudag. Hér má sjá
boðskortið í samkvæmið.
„Samkvæmið er vettvangur til að hitt-
ast augliti til auglitis og ræða saman
um það sem vel er gert og það sem
betur má fara. Horfum til framtíðar
og veltum fyrir okkur möguleikum til
nýsköpunar og uppbyggingar,“ segir
Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir
í boðskorti fyrir einkasamkvæmi sem
hann heldur í dag.
Samkvæmið fer fram í Thors Jensen
húsi að Fríkirkjuvegi 11 í dag milli
klukkan 17-19. Sérstakir heiðursgestir
eru Reynir Harðarson, stofnandi CCP,
og Peter Blair Henry, rektor NYU
Stern viðskiptaháskólans, og flytja
þeir ávörp.
Að sögn Ragnhildar Sverrisdóttur,
fjölmiðlafulltrúa Björgólfs Thors,
hleypur fjöldi gesta á tugum en hún
vill ekki gefa upp nákvæman fjölda.
„Þetta er þokkalegur hópur fólks. Það
kemur héðan og þaðan úr viðskiptalíf-
inu og alls staðar að,“ segir hún.
Peter Henry er þekkt nafn vestan-
hafs enda hefur hann verið ráðgjafi
Baracks Obama Bandaríkjaforseta í
efnahagsmálum. „Þetta er hrika-
lega flottur náungi. Björgólfur Thor
situr í Dean’s Executive Board
hjá þessum viðskiptaháskóla sem
hann útskrifaðist frá og Henry
stýrir. Þess vegna er hann hingað
kominn,“ segir Ragnhildur.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
m innkandi hreyfing virðist vera helsta ástæðan fremur en bara ofát. Það eru afskap-
lega fá börn sem ná hreyfimarkmiðum
Landlæknis,“ segir Ragnar Bjarnason,
yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins, um
ástæður þess að börn þurfa á meðferð að
halda vegna offitu. Um fjórðungur níu
ára barna á höfuðborgarsvæðinu er of
feitur eða of þungur samkvæmt árleg-
um mælingum skólaheilsugæslunnar.
Heilsuskóli Barnaspítala Hringsins hef-
ur síðustu sjö ár boðið upp á hópmeðferð
fyrir of feit börn og hafa um tvö hundruð
börn, ásamt fjölskyldum sínum, leitað
sér þar aðstoðar.
Inngönguskilyrði í Heilsuskólann er
að þyngd barns sé 2,5 staðalfrávikum
yfir meðalþyngd. Til að glöggva sig á
þessari stærð falla um 98% barna innan
2,5 staðalfráviks frá meðalþyngd.
Þau börn sem eiga þess kost að fara
í Heilsukólann eru því komin mjög
mikið yfir eðlileg þyngdarmörk.
Börnin þar fara í sextán vikna hug-
ræna atferlismeðferð, HAM, þar sem
sett er upp hvatakerfi í stað þess að
telja hitaeiningar. Til að byrja með
mæta þau vikulega ásamt foreldri en
síðan sjaldnar. Sum börn halda áfram
í eftirfylgd hjá Heilsuskólanum en
einnig er mikil vinna sem fer fram hjá
heilsugæslum og skólahjúkrunarfræð-
ingum.
Yngstu börnin sem taka þátt í með-
ferðinni eru sjö ára. Ragnar bendir á
að þegar vaxtarkúrfa of þungra barna
er skoðuð sjást fyrstu frávikin gjarn-
an aldrinum 3-5 ára. Því eru vonir
bundnar við að hægt verði að bjóða upp
á fyrirbyggjandi úrræði fyrir þann ald-
urshóp. Það er þó ekki komið af stað
enda þarf að endurvinna allt námsefnið
sem í Heilsuskólanum nú er miðað við
að börnin getið lesið.
Spurður hvort offita barna á Íslandi
tengist fátækt líkt og erlendar rann-
sóknir hafa ítrekað sýnt segir Ragnar:
„Hér á landi er auðvitað ekki jafn
mikil stéttaskipting og annars staðar.
Það er samt ekki hægt að neita því
að það virðast einhver tengsl þarna
á milli.“ Ragnar bendir einnig á að á
Íslandi, líkt og erlendis, virðist offita
barna hafa hætt að aukast í kring um
aldamótin.
Hann leggur áherslu á að það séu
aðeins þau börn sem eiga við mestu
ofþyngdina sem komi í Heilsuskólann.
Eftirlit og forvarnir fara að mestu fram
í skólum, heilsugæslu og ungbarnaeft-
irliti. Þaðan væri börnum og foreldrum
þeirra mögulega vísað til sérfræðinga.
Heilsuskólinn er síðasta úrræðið þegar
annað hefur ekki borið árangur.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
heilsa íslensk börn nÁ almennt ekki hreyfimarkmiðum landlæknis
Sjö ára börn í
meðferð vegna offitu
Um 200 börn hafa leitað til Heilsuskóla Barnaspítala Hringsins vegna offitu á síðustu ár. Yngstu
börnin í Heilsuskólanum eru um sjö ára gömul en vonir standa til að hægt verði að bjóða enn
yngri börnum upp á fyrirbyggjandi úrræði gegn offitu.
Þegar vaxt-
arkúrfa of
þungra barna
er skoðuð sjást
fyrstu frávikin
gjarnan á aldr-
inum 3-5 ára.
Fjórðungur níu ára barna á höfuðborgarsvæðinu er of þungur eða of feitur samkvæmt árlegri mælingu skólaheilsugæslunnar.
Mynd/NordicPhotos/Getty
Hreyfing
barna
Samkvæmt ráðleggingum
Landlæknis eiga börn
að hreyfa sig í minnst
klukkustund á dag, jafn-
vel í 10-15 mínútur í senn.