Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.05.2013, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 17.05.2013, Blaðsíða 62
62 bíó Helgin 17.-19. maí 2013 Toby Ma- guire leikur sögumann- inn Nick Carraway sem vingast við Gatsby sem er þekktur á Langa- sandi fyrir stórkost- legar veislur sínar.  The GreaT GaTsBy DiCaprio í sTað reDforDs Á stralski leikstjórinn Baz Luhrman hefur haft frekar hægt um sig frá því hann sendi myndina Australia 2008. Áður en hann gerði þennan óð til móður- jarðar sinnar leikstýrði hann hinni litríku og mögnuðu Moulin Rouge! 2001. Í Moulin Rouge! léku Nicole Kidman og Ewan McGregor forboðna elskendur sem ekki var ætlað að fá að njótast en kynni þeirra hófust á hinum goðsagnarkennda næturklúbbi Rauðu myllunni í París. Forboðnar ástir virðast Luhrman mjög hugleiknar en hann sló í gegn árið 1996 með mjög svo líflegri og stílfærðri mynd um Rómeó og Júlíu og í The Great Gatsby bíður milljónamæringurinn hlédrægi endalaust eftir henni Daisy sinni Buchanan. Konu sem hann átti í ástarsambandi nokkrum árum áður. Hún er nú gift skítalabbanum Tom en Gatsby hefur ekki gefið upp vonina um að hann nái Daisy aftur. Leonardo DiCaprio og Claire Danes léku elskendurna í Romeo + Juliet og Luhrman teflir nú fram honum Rómeó sínum í hlut- verki Gatsby sem Robert Redford gerði eftir- minnileg skil fyrir tæpum 40 árum. Carey Mulligan leikur Daisy, Joel Edgerton leikur eiginmann hennar sem heldur við hina laus- beisluðu og frökku Myrtle sem Isla Fiser leikur. Þótt Tom sé framhjáhaldsslúbbert bregst hann hinn versti við þegar hann kemst að því að enn lifir í gömlum glæðum á milli Gatsby og Daisy og leggst í sóðalega ófræg- ingarherferð, gegn prúðmenninu Gatsby, sem á eftir að draga dilk á eftir sér. Toby Maguire leikur sögumanninn Nick Carraway sem vingast við Gatsby sem er þekktur á Langasandi fyrir stórkostlegar veislur sínar þótt hann sé svo hlédrægur að fæstir gestanna hafa nokkru sinni hitt hann. Nick er þunglyndur og alkóhólíseraður hermaður úr fyrri heimsstyrjöldinni sem fær innsýn í spilltan heim hinna ríku á Langa- sandi en þar stendur Jay Gatsby upp úr drullupollinum. Óspillur af auði sínum og vel liðinn af þeim fáu sem þekkja hann í raun og veru. Leikstjórinn Jack Clayton gerði kvikmynd byggða á The Great Gatsby, eftir handriti Francis Ford Coppola, árið 1974. Sem fyrr segir lék Redford aðalpersónuna en Sam Wa- terston, sem í seinni tíð er þekktastur sem saksóknarinn Jack McCoy í sjónvarpsþátt- unum Law&Order, lék sögumanninn Nick. Mia Farrow lék Daisy og Bruce Dern lék eiginmann hennar. Luhrman stillir sínu fólki því upp andspænis sterkum hópi leikara sem kastar stórum skugga frá árinu 1974. Luhrman hefur þó sýnt í sínum fyrr verkum að hann getur laðað fram mikla stemningu og er á heimavelli þegar kemur að búningum og stórum og stílfærðum senum. Gagnrýnendur hafa þó tekið nýjustu útgáfunni að The Great Gatsby nokkuð mis- jafnlega en aðsókn á myndina hefur engu að síður verið býsna góð. Aðrir miðlar: Imdb: 7,5, Rotten Tomatoes: 49%, Metacritic: 55% Skáldsagan The Great Gatsby, eftir F. Scott Fitzgerald, er almennt talin eitt lykilverka bandarískr- ar bókmenntasögu. Bókin kom fyrst út árið 1925 og hefur verið kvikmynduð nokkrum sinnum. Útgáfan frá árinu 1974, með Robert Redford í titilhlutverkinu, er sú þekktasta en Baz Luhrman setur nú Leonardo DiCaprio til höfuðs Redford í hlutverki hins dularfulla auðmanns Jay Gatsby. Sagan gerist á djössuðum sukktímum á Long Beach sumarið 1922 og greinir frá kynnum þung- lynda alkóhólistans Nick Carraway af Gatsby og mis spilltu fólki í kringum hann. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Ástir og örlög á Langasandi Nick kynnist hinum dularfulla glaumgosa Gatsby og verður ekki samur maður eftir þau dramatísku kynni. Sacha Baron Cohen gerir The Lesbian Sacha Baron Cohen, sem gert hefur garðinn frægan sem Ali G og Borat, hefur fengið dönsku háðfuglana úr Klovn, Casper Christensen og Frank Hvam, til þess að skrifa handrit kvikmyndarinnar The Lesbian sem hann stefnir á að gera á næstunni. Cohen gerði sér lítið fyrir og flaug til Danmerkur til þess að fá þá félaga til liðs við sig en eins og við mátti búast var það auðsótt mál. The Lesbian byggir á raunverulegum atburðum sem áttu sér stað þegar milljarðamæringur í Hong Kong bauð hverjum þeim karlmanni, sem gæti unnið hug lesbískrar dóttur sinnar, 65 milljónir dollara. Casper og Frank hafa undanfarið unnið að framhaldi hinnar vinsælu Klovn- kvikmyndar en einhenda sér nú í skrifin fyrir Cohen. Arnold Schwarzenegger er kominn aftur með látum og gæti birst í endurgerð hinnar stórundarlegu myndar The Toxic Avenger.  hanDriTsGerð samvinna Grínara Dönsku grínararnir Casper og Frank þurfa ekki að kvarta yfir verkefna- skorti og nú hefur Sacha Baron Cohen fengið þá til handritaskrifa.  sChwarzeneGGer furðuleGT verkefni Líklegur þjálfari Toxic Avenger Arnold Schwarzenegger var fljótur að hasla sér völl í kvikmyndum á ný eftir að hann hætti sem ríkisstjóri Kaliforníu. Hann hefur haldið sig á heimavelli spennumyndanna þrátt fyrir að ellin sé farin að narta í hæl- ana á honum. Hann gekk vasklega fram í hópi roskinna vöðvabúnta í The Expendables 2 og átti síðan sviðið einn í The Last Stand. Nú kemur hins vegar til greina að Arnold taki að sér hlutverk í endurgerð hinnar vægast sagt súru Troma-myndar The Toxic Avenger sem Lloyd Kaufman gerði árið 1984. Í Toxic Avenger breyttist ræsti- tæknirinn og lúðinn Melvin í ofurhetju þegar hann féll ofan í geislavirkan úrgang. Að vísu var fátt hetjulegt við hann þar sem hann afmyndaðist allur í eitur- baðinu en það aftraði honum ekki frá því að berja á óþjóðalýð með moppuna á lofti. Hugmyndin er að Arnold taki að sér hlutverk fyrrverandi sér- sveitarmanns sem tekur að sér að þjálfa Toxic Avenger og kenna honum að nota nýfundna krafta sína til góðs. Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu Okkar markmið er að allir landsmenn heyri vel Heyrnarþjónusta Hlíðasmára 11 – 210 Kópavogi- Sími 534-9600 – heyrn.is Laugavegi 25 - S: 553-3003 H ö n n u n a r h ú s www.hrim.is Opnunartími Mán-fös 10:00-18:00 Laugardaga 11:00-18:00 Sunnudaga 13:00-17:00 Flott hönnun er góð gjöf HANNAH ARENDT LAU - SUN: 17:50, 20:00 (L) JAGTEN LAU - SUN: 17:50, 22:00 (12) SKÓLANEMAR: 25% AfSLáTTUR GEGN fRAMvíSUN SKíRTEiNiS! MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.